Vikan

Tölublað

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 36

Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 36
EFTIfí ONNU ÚLAFSDÚTTUfí BJÖfíNSSON Ungi baráttumaðurinn Dylan ásamt Joan Baezí London 1965. Húner enn í fullu fjöri og kemur á listahátíð í voren hann... Dylan með Söru, eiginkonu sinni (fyrrverandi), á Wright-eyju 1969. Tímarnir eru að breytast, var sungið árið 1966. Söngvarinn var með rifna rödd og varð þegar í stað postuli kynslóðar sem seinna kenndi sig við stúdentaýfmgar, mannréttindabaráttu og árið 1968. Hann heitir Bob Dylan og er enn að. Honum hefur ekki tekist að halda sömu reisn og sumir hinna sem fram komu á sjöunda áratugnum og enn lifa. Ræfilslegi og raddlitli söngvarinn, sem tróð upp í lok Live-Aid tónleikanna í Bandaríkjunum, var ekki nema skugginn af baráttumann- inum Bob Dylan. Dylan hefur gengið í gegnum alls konar skeið á ferli sínum, sungið sveitatónlist með upprisna bófanum Johnny Cash, verið upptekinn af nýtekinni kristni og látið skilnaði og önnur persónuleg vanda- mál hafa áhrif á sig og feril sinn. Fortíð Dylans er athyglisverðari en nútíðin og sem betur fer hafa verið hljóðrituð sönn- unargögn um fyrri afrek mannsins. Hér er smáyfírlit yfir ferilinn. Hann er orðinn miðaldra, reiði, ungi maður- inn, verður hálffimmtugur þann 24. maí i vor. Hann bjó mestalla barnæsku sína í Hibbing í Minnesota, rétt við landamæri Kanada. Bærinn var líkur mörgum flatneskjulegum bandarísk- um bæjum, með breiða og óaðlaðandi aðalgötu. Þar var hann einfaldlega Robert Zimmermann, af gyðingaættum í rammkaþólskum bæ. Af og til hefur hann reyndar verið minntur á uppruna sinn, kallaður ágjarn lítill púki án þess það væri rökstutt frekar. Ýmsir hafa hagnast á ris- lægri ferli en Dylan án þess að vera sí og æ sakaðir um gróðasjónarmið. Það skyldi þó aldrei vera grynnra á gyðingahatrinu en af er látið? FYRSTU ÁRIN í NEW YORK Zimmermann hinn ungi fór í háskólann í Minnesota og þá var hann farinn að kalla sig Bob Dylan. Hann tolldi þar ekki nema rúmt ár en fór þá til New York. Þá var komið árið 1960 og Greenwich Village var staðurinn sem allir, sem vildu kalla sig bóhema, sóttu til. Woody Gurthie var átrúnaðargoð hans, þekkt- asta nafnið í þjóðlaga- og mótmælasöngvaheim- inum. Þegar Dylan sagði vinum sínum að nú ætlaði hann til New York að hitta Woody trúði enginn þeirra almennilega á það. Hann fór, fann Woody á Greystone sjúkrahúsinu og ræddi við hann á banabeðinum. Woody hafði mikil áhrif á Dylan og eftir á sagði hann oft frá því að hann hefði hitt Woody fyrr, eða farið á hljómleika hjá honum, en varð tvísaga í því. Það má undarlegt teljast að þessi goðsögn heillar kynslóðar var aldrei beinlínis vinsæll í vinahópi. Hann þótti hrokafullur og upptekinn af sjálfum sér og kynnunum við Woody þegar þau komu til og var sagður helst vilja láta öll samkvæmi snúast upp í tónleika sjálfs sín. Anthony Scaduto, sem varð fyrstur til að skrifa ævisögu Dylans - hún kom út 1971, held- ur því fram að Dylan hafi komið til New Ýork með þann bjargfasta ásetning að verða ríkur og frægur og það hafi verið kaldhæðni örlag- anna sem gerði hann að krossbera uppreisnar, jafnréttis og friðar, hugsjóna sjöunda áratugar- ins. Ævisaga þessi er talin fremur áreiðanleg og Dylan hrósaði henni sjálfur þegar hún kom út, þó upp á vinskapinn við höfundinn hefði slest þá þegar. New Ýork varð vendipunktur í lífi Dylans, hann hætti að vera plága í partíum, vann mark- visst að því að koma fram fyrir sífellt fieiri áheyrendur á krám þorpsins, Greenwich Vil- 36 VIKAN 23. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.