Vikan - 05.06.1986, Page 51
P 0 S T U R
v i i\ n
FÆÐINGAR-
DAGAR OG
KÍNVERSK
STJORNUSPA
Kæri Póstur!
Ég er hér með nokkrar spurningar og ég
vona að þú birtir þetta.
1. Mig langar að vita hvenær Jean Paul
Belmondo, Claudia Cardinale, Michael Ca-
ine, Michael Douglas og Jón Gústafsson
eru fædd.
2. Kinversk stjörnuspá: Getur þú sagt mér
hvaða merki hafa verið frá 1936-1986 eða
bara 1936, 1941, 1956, 1958, 1970, 1973,
1977 og 1982?
3. Hver er munurinn á einkarétti og einok-
un, sko orðunum?
4. Hvernig fer með Duran Duran og Arcadiu
nú þegar Roger er hættur?
6002-0418
orð sem hefur mun neikvæðari merkingu.
Eiginlega merkir orðið einokun nokkurn veg-
inn það sama og einkaréttur. en einokun
hefur alltaf neikvæða merkingu vegna þess
að sá sem einokar hefur venjulega ekki nein
viðurkennd réttindi til einokunarinnar.
Stundum er þó einkaréttur kallaður einokun
vegna þess að hann þykir óréttátur og rang-
ur, jafnvel þó hann sé fyllilega löglegur. Til
dæm/s þótti sumum mjög óréttlátt að rikið
hefði einkarétt á að selja eldspýtur og köll-
uðu það einokun. en sá réttur var afnuminn
nú í lok síðasta þings. Einokunarverslun
Dana á íslandi var fyllilega lögleg samkvæmt
dönskum lögum. Danir gáfu sér einkarétt á
verslun við íslendinga en islendingum
fannst þessi réttur afar ósanngjarn og köll-
uðu einokun.
Pósturinn hefur ekki spádómsgáfu og
getur því ekki sagt hvað verður um Duran
Duran og Arcadiu nú. Sennilegast þykir
honum þó að þetta verði til þess að Duran
Duran verði endanlega lögð niður en Arca-
dia gæti hugsanlega starfað áfram.
Jean Paul Belmondo er fæddur 9. 4.
1933. Claudia Cardinale 14. 4. 1939. Micha-
el Caine 14. 3. 1933. Michael Douglas 25.
9. 1941 og Jón Gústafsson 29. 7. 1963.
I kínversku stjörnuspánni er miðað út frá
tunglári og þvi er austurlenskt nýár aldrei á
sama degi og miðast ekki við áramót hjá
okkur. Þann 9. febrúar í ár byrjaði ár tígris-
dýrsins og þá lauk ári uxans. Dýrin, sem
árin eru kennd við. eru tólf þannig að ár tígr-
isdýrsins rennur aftur upp árið 1998. Röðin
er þessi: tigrisdýrið. kötturinn. drekinn. snák-
urinn, hesturinn, geitin. apinn. haninn,
hundurinn. svínið. rottan. uxinn. Árið 1936,
það er frá 24. janúar til 10. febrúar 1937.
var ár rottunnar, en ársbyrjunin féll undir ár
svínsins. Árið 1941. frá 27. janúar til 14.
febrúar 1942, var ár snáksins og ársbyrjunin
ár drekans. Ár apans byrjaði 12. febrúar
1956 og stóð til 30. janúar 1957, en árs-
byrjun 1956 var ár geitarinnar. Frá 19.
febrúar 1958 til 8. febrúar 1959 varár hunds-
ins en ársbyrjunin ár apans. Árið 1970, frá
6. febrúar til 26. janúar 1971. var ár hunds-
ins. 2. febrúar 1973 byrjaði ár rottunnar og
þará undan var ár svínsins. 17. febrúar 1977
til 7. febrúar 1978 var ár snáksins og 1982
byrjaði ár hundsins i febrúar en ársbyrjun
féll undirárhanans. Önnurárgeturþú reikn-
að út frá þessu.
Orðið einkaréttur merkir að sá sem hefur
þann rétt má einn framleiða eða selja ein-
hverja ákveðna vöru. til dæmis fá menn oft
einkarétt á ákveðinni uppfinningu. Það er
gert til þess að menn fái sanngjarna umbun
eða laun fyrir verk sin og aðrir geti ekki stol-
ið uppfinningunni og hagnast á henni.
Einnig fá sumir einkarétt á að selja sumar
vörur. Sumir hafa einkaumboð frá framleið-
endum eða þá að rétturinn er bundinn í
lögum eins og þegar ríkið hefur einkarétt á
að selja áfengi. Um einkarétt má segja að
hann er alltaf eitthvað sem er löglegt og
menn viðurkenna. Einokun er á hinn bóginn
HEIÐURS-
BORGARAR,
HÁRÆÐASLIT
OG HÚS-
NÆÐISMÁL
Kæri Póstur!
Ég vona að þú sjáir þér fært að svara eftir-
farandi spurningum:
1. Hvaða skilyrði þurfa menn að uppfylla til
að öðlast sess heiðursborgara Reykjavíkur?
2. Hvert er hægt að leita ef maður er með
háræðaslit í andliti? Getur lýtalæknir gert
eitthvað í því eða ... ?
3. Hvaða skilyrði þarf maður að uppfylla til
að komast í lögregluna? Er hægt að komast
inn ef maður uppfyllir þau skilyrði eða þarf
maður samt að hafa einhvern sterkan aðila
á bak við?
4. Getur ungt par með 25.000 krónur á
mánuði og lítið barn eignast hús eða íbúð
á eigin spýtur? Hvað er best að gera? Hvert
á maður að leita? Er hagstæðara að byggja
eða kaupa í Reykjavík eða úti á landi? Segðu
mér allt um lánakjör og fleira í sambandi við
þetta.
Með fyrirfram þökk!
Ein forvitin.
1. Það er ekki hægt að sækja um heiðurs-
borgaratitil og þeir sem titilinn hafa hlotið
þurftu ekki að uppfylla nein skilyrði. Heiðurs-
borgarareru kjörnir af borgarstjórn að tillögu
borgarfulltrúa. Tveir menn hafa verið gerðir
að heiðursborgurum Reykjavikur en þeir eru
báðir látnir og þvi ber enginn þetta sæmdar-
heiti nú. Heiðursborgararnir voru séra Bjarni
Jónsson og Kristján Sveinsson augnlæknir.
Að auki má nefna að Tómas Guðmundsson
skáld var oft kallaður Reykjavíkurskáld og
var í hugum margra heiðursborgari Reykja-
víkur þótt hann hlyti þann titil aldrei form-
lega.
2. Hjá sumum okkar kemur fram háræðaslit
þegar húðin verður fyrir miklu álagi og þar
sem húðin í andlitinu er nánast alltaf óvarin,
en er jafnframt fíngerð og viðkvæm, þá fer
hún stundum illa. Ekki kann pósturinn neitt
ráð við þessu þegar slitið er á annað borð
komið en til að reyna að fyrirbyggja háræða-
slit er gott að bera mýkjandi og verjandi krem
á andlitið. bæði þegar kalt er og eins þegar
sól er sterk. Sjálfsagt er að leita til læknis
ef þetta veldur þér miklum áhyggjum og þá
er réttast að tala fyrst við heimilis- eða
heilsugæslulækni sem kannski vísar á sér-
fræðing i húðsjúkdómum. Lýtalækninn
munu þeir benda á ef ástæða er til en at-
hugaðu að háræðaslit i andliti er nú varla
hægt að kalla lýti - við erum misjöfn i útliti
og höfum öll einhverjar áhyggjur af því.
3. Fólk sækir um lögreglustarf á skrifstofu
lögreglustjóra i sínu umdæmi. Þar á að fylla
út umsóknareyðublað þar sem spurt er um
þetta venjulega. aldur, menntun. fyrri störf
og fleira. Til að fá starfið þarf umsækjandi
að vera orðinn tuttugu ára og sakaskrá hans
má hvorki vera löng né Ijót. Þegar nýr lög-
reglumaður er ráðinn til starfa fer hann á
stutt námskeið. Aðalnámskeiðin eru svo á
haustin og veturna og standa í 6 vikur og
þau taka allir lögreglumenn við fyrsta tæki-
færi. Eftir tveggja ára starf kemur að Lög-
regluskólanum sem er eins vetrar nám. Þeir
sem fara i hann eru á launum á meðan.
Pósturinn telurað hversem uppfyllir skilyrð-
in, sem sett eru á umsókninni, komi til greina
þegar nýir lögreglumenn eru ráðnir og því
sé engin þörf á sterkum bakhjarli.
4. Þetta er erfið spurning. Ekki vill Pósturinn
draga úr þér kjarkinn en því miður telur hann
harla vonlaust að þriggja manna fjölskylda
með svo litlar tekjur geti ráðið við að kaupa
sér húsnæði eins og málin standa. Hús-
byggjendur, þar með taldir þeir sem eru að
kaupa eldra húsnæði, hafa átt í miklum erfið-
leikum undanfarin tvö eða þrjú ár, eins og
þú eflaust þekkir af fréttum. Lánamálin eru
óviss, fjármagnskostnaður hefur verið gifur-
legur og ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til
hjálpar húsbyggjendum hafa verið svona
upp og ofan og alls ekki nægjanlegar að
margra mati. Vegna þessa er ábyggilega erf-
itt að ráðast í húsnæðiskaup nú. En at-
hugaðu að það hefur sjálfsagt alltaf verið
og verður erfitt svo hver og einn verður að
meta þetta með tilliti til sinna persónulegu
aðstæðna.
Það er yfirleitt ódýrara að byggja úti á
landi en á höfuðborgarsvæðinu. En með til-
liti til atvinnumöguleika. menntunarmögu-
leika barna og annarrar þjónustu þarf það
hins vegar ekki að vera hagstæðara.
Húsnæðisstofnun ríkisins. Laugavegi 77,
Reykjavík, rekur ráðgjafarþjónustu sem þú
gætir leitað til og fengið nánari upplýsingar
um þessi mál. Þar eru líka veittar upplýsing-
ar i síma 28500 á milli klukkan níu og ellefu.
23. TBL VIKAN 51