Vikan


Vikan - 05.06.1986, Page 60

Vikan - 05.06.1986, Page 60
H^ÍTkronú^áráÚtunni^r sólgleraugu ■ ml i ' ■ 1 i « 1 ; ' 1 j Fi V , 1 í*? ■. 7' . ÆtaBsá ¥ tf ‘ fl. Nú er blessuð sólin farin að skína á okkur hér uppi á sker- inu og kominn tími lil að taka fram sólgleraugun. Fram til þessa hafa sólgleraugu aðallega haft það hlutverk að verja augun fyrir of sterku sólarljósi og hrukkumyndun sem þvi er samfara. En nú eru sólgleraugu orðin tískuvara á borð við fatnað, skó og svo framvegis. Á undanförnum árum hefur orðið mikil breyling á hönnun bæði á sólgleraugum og gleraugum. Tískan núna einkennist af því að allt er leyfi- legt og það sama gildir uin sólgleraugnatískuna. Punk, funk línan er mikið áberandi, eins er farið svolítið aftur í tímann og gömlu, marglitu vængjagleraugun með semalíusteinaskreytingunum frá því 1950-60, sem oftast voru kölluð „amerísk kerlingagleraugu“, eru á toppnum núna. Stóru tískuhönnuðirnir, sem ílestir hafa lagað sig að kröfum markaðarins og farið út i fjöldaframleiðslu, eru líka farnir að hanna og selja sólgleraugu undir sínu náfni. í dag geta því þeir sem það vilja keypt sér sólgleraugu frá tískukóngum á borð við Dior, Mikli eða Emanuel Kahn svo einhverjir séu nefndir, en þurfa þá um leið að vera tilbúnir að borga eitt- hvað meira fyrir gripinn en annars gerist. Gleraugun á myndunum hér á eftir fundum við í gleraugnaversluninni Linsan, Miðbæjarmarkaðinum við Aðalstræti, en verslunin hefur á boðstólum mikið úrval af sólgleraugum á verðbilinu 1000-7000 krónur. Þar er hægt að fá lúxus tískugleraugu frá hönnuðum eins og Mikli, Emanuel Kahn, Lacoste og fleiri. Svona til að setja punktinn yfir i-ið notuðum við vara- liti í santa lit og gleraugun og slæðurnar. Snyrt er með No Name snyrtivörum frá snyrtistofunni NN, Laugavegi 27. 60 VIKAN 23. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.