Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 10
1. tbl. 49. árg. 1.-7. janúar 1987. Verð 150 krónur.
FORSÍÐAN
Forsíðan
Völva Vikunnar er aðalefni þessa
tölublaðs. Helgi Friðjónsson,
Ijósmyndari okkar, varð að koma
með forsíðumynd án þess að
hitta hina raunverulegu völvu.
Sú sem hljóp í skarðið fyrir þá
raunverulegu á þakkir skildar fyr-
ir viðvikið.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Jóhanna Margrét Einars-
dóttir, Unnur Úlfarsdóttir.
LJÓSMYNDARI: Helgi Friðjóns-
son.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SÍMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
RÖDD RITSTJÓRNAR I í ÞESSARIVIKU
Þórunn
Gestsdóttir
ritstjóri
4
Karakterföt um áramót. Fötin skapa
manninn. Gerður í Flónni klæðirfólk
af öllum stærðum og breiddum í föt
sem henta hverjum persónuleika.
8
Áramót
Það er hefð að staldra aðeins við
um áramót, líta yfir farinn veg og
strengja heit inn í framtíðina.
Blendnar tilfinningar bærast með
fólki á tímamótum. Suma angrar
að liðinn tíma hefði mátt nota betur
og minnast glataðra tækifæra
Það skiptast á skin og skúrir í lífi
flestra og á tímamótum renna bæði
skúrir og skin í gegnum hugann.
En rétt er að hafa í huga máltækið
sem segir að það sé fernt sem aldr-
ei komi til baka; töluð orð, skotin
ör, liðin ævi og ónotuð tækifæri.
Það segir í gömlum sögum að
fólk hafi setið á krossgötum á ný-
ársnótt til að bíða frétta. Sá sem á
krossgötum sat átti að hafa með
sér gráan kött, gæruskinn, húðir
og öxi. I fjölmiðlaheiminum, þar
sem allir eru á krossgötum að leita
frétta, eru önnur tæki komin í stað
gráa kattarins, skinnsins, húðanna
og axarinnar.
Það eru töivur og nútíma fjar-
skiptatæki sem menn vígbúast
þegar þeir bíða frétta á krossgötum
í dag. Undantekningar finnast þó
á vinnubrögðum á krossgötum,
það eru vinnubrögð völvunnar.
Hún styðst ekki við fjarskiptatæki
nútímans er hún segir fyrir um
óorðna atburði. Það er ávallt eftir-
vænting í loftinu þegar völva
Vikunnar kveður sér hljóðs. Hún
bregst ekki væntingum manna nú
frekar en endranær.
Það má segja að spá völvunnar
fyrir árið 1987 lofi góðu fyrir lands-
menn. Hún spáir ári umróts og
breytinga í íslensku þjóðlífi. Það eru
góð teikn um framþróun. Ritstjórn
Vikunnar óskar landsmönnum far-
sældar á nýja árinu og þakkar gott
samstarf á nýliðnu ári.
Þjóðleikhúsið tekur um þessar mund
ir í notkun nýtt leiksvið, Litla sviðið,
með nýju leikriti Þórunnar Sigurðar-
dóttursem nefnist í smásjá.
12
Áramót og áramótasiðir fyrri tíma
gefa tilefni til skemmtilegs saman-
burður við áramót eins og við þekkj-
umþau ídag.
16...................................
Nafn Vikunnar að þessu sinni er
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona.
Hún hefur skrifað leikgerð um líf og
verk Kajs Munk sem frumflutt verður
nú í byrju n ársins í riallgrimskirkju.
18
Dögg Pálsdóttir lögfræðingur fjallar
um aðhlynningu aldraðra í heima-
húsum í grein sinni um öldrunarmál.
20
Gestur í eldhúsi Vikunnar að þessu
sinni er Rósa Gísladóttir og býður
hún upp á ýsu fyllta með camembert
osti.
22
Völva Vikunnar er löngu landsþekkt
og hefur oft reynst ótrúlega sannspá.
Hún spáir fyrir um atburði ársins
1987.