Vikan - 01.01.1987, Side 13
Teikning:
Helgi Friðjónsson
margar aldir fram. Ef særingamaðurinn hafði
staðfestu til að horfa í axareggina og líta aldr-
ei út af og tala ekki orð frá munni hvað sem
á gekk mundi hann ekki einungis allt sem
hinir framliðnu sögðu honum heldur gat hann
hvenær sem hann vildi eftir það leitað frétta
af þeim að ósekju um alla hluti sem hann
girnti að vita með því að sitja úti.
Þjóðtrú
Eins og áður sagði hefur þjóðtrúin varð-
andi útisetur á krossgötum breyst í að það
væru álfar sem freistuðu manna í stað forynja
og drauga. Og gat það margt happið fært
þeim er voru nógu stilltir og kunnu nógu vel
með að fara en vanvirðu hinum er létu freist-
ast. Til er saga af kalli nokkrum er settist
niður á krossgötur á gamlárskvöld með öxi í
höndum og einblíndi í egg hennar. Nú kemur
álfafólkið og fer að ávarpa hann og bjóða
honum alla hluti, gull og gersemar, dýrindis
klæði og krásir, þangað til einn býður honum
flot. Þá segir kalltetrið: „Seinast mun ég flot-
inu neita,“ enda ærðist hann þá.
A nýársnótt verður allt vatn snöggvast að
víni, kirkjugarðar rísa og kýrnar tala í fjós-
inu. Þá er talið víst að óskastundin sé þessa
nótt. Þá er það gömul trú að maður eigi að
geta séð konuefni sitt, eða kona mannsefni,
með því að horfa í spegil í koldimmu her-
bergi. Fyrst koma kynjamyndir í spegilinn en
svo á að koma hönd með hníf eða eitthvert
vopn. Hún á að koma þrisvar sinnum en ekki
má snerta hlutina eða taka við þeim, því það
verður manni til ógæfu. Seinast fara myndirn-
ar í speglinum að skýrast en loksins kemur
fram hin rétta mynd, varir nokkrar sekúndur
og svo hverfur hún. Svo má Iíka liggja á kross-
götum, til dæmis þar sem búr- og eldhúsdyr
mætast í göngum á bæjum. Þá birtist manni
tilvonandi kona hans, eða konu mannsefni
hennar; koma þau og bjóða manni gjafir. Þær
má maður ekki þiggja því það verður til
ógæfu. Maður einn lá á krossgötum og kom
konuefni hans þar ti! hans og bauð honum
margt; loksins þáði hann rýting einn fagran.
Löngu síðar, er þau voru gift, varð þeim sund-
urorða og féll manninum það svo illa að hann
drap sig með rýtingnum.
Hér látum við staðar numið við að segja
frá undrum nýársnætur.
Stuðst við: Þjóðsögur Jóns Árnasonar. í jólaskapi,
Árni Björnsson. Saga daganna, Árni Björnsson, íslensk-
ir þjóðhættir, Jónas Jónasson. Rauðskinna hin nýrri,
Jón Thorarensen tók saman og ritaði.