Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 26
Markaðssetning og kynning, þar með taldar
auglýsingar, munu taka á sig breytta mynd á
árinu, sérstaklega vörukynningar og auglýs-
ingar. Heildsalar og kaupmenn munu knýja
á um að fá rýmkaðar þær reglur sem gilda
um auglýsingar, einkum í ríkisfjölmiðlum.
Það mun þó ekki auðsótt. Eftir að gildi aug-
lýsinga í sjónvarpi hefur rýrnað um helming,
nema auglýst sé á báðum stöðvunum, munu
auglýsingar aukast verulega í blöðum og tíma-
ritum.
Ég sé fyrir mér talsverðar breytingar á íjöl-
miðlamarkaðinum og mun þar verða um að
ræða hvort tveggja í senn, dauða og fæðingu.
Óhemjumikil eftirspurn mun verða eftir
erlendum gjaldeyri á árinu og munu stjórn-
völd þurfa að gera sérstakar ráðstafanir til
að koma til móts við óskir landsmanna að
þessu leyti. Þær ráðstafanir verða vel þegnar
af sumum og taldar tímabærar en aðrir munu
reyta hár sitt en mun þó lítt stoða.
Frægð og frami
Kristján Jóhannsson óperusöngvari mun
enn auka við frægð sína með nýjum samningi
við þekkt óperuhús. Leikari af yngri kynslóð-
inni verður mjög eftirsóttur af frægum fyrir-
tækjum og leikstjórum, jafnframt því sem um
hann verður slegin skjaldborg af leikhópum
hérlendum með samvinnu fyrir augum.
Jón Páll Sigmarsson hinn sterki verður mik-
ið á faraldsfæti um heiminn og auk þess sem
hann kemur fram við hin ólíklegustu tækifæri
verður hann mikilvægur milliliður í kynningu
á íslenskum iðnaðarvörum.
Mezzoforte verður enn í sviðsljósinu á
næsta ári og mun hljómsveitin auka vinsældir
sínar í Þýskalandi og svo um munar í Suður-
Evrópu fyrri hluta ársins. Á íþróttasviðinu
verður viðburðaríkt í meira lagi. Fyrst er það
að nokkrir Keflvíkingar fara til Bretlands til
æfinga og verða „keyptir" upp af breskum
knattspyrnuliðum. ítalskt knattspyrnulið
sækist eftir íslenskum knattspyrnumanni sem
nú leikur erlendis.
íslenskur leikflokkur fer í ferðalag vestur
um haf með leiksýningu og hlýtur mikið lof
fyrir. En eftirmálin eiga eftir að hlaða utan á
sig...
Þjóðhöfðinginn og þingmenn þjóðarinnar
verða talsvert á faraldsfæti utan landsteinanna
og verður fátt til að tefja fyrir þeim ferðalög-
in nema stjórnarmyndun snemma sumars og
heimsókn forsætisráðherra frá einu Norður-
landanna.
• En frægð Islands á árinu mun þó ekki ein-
göngu speglast í því sem hér hefur verið
minnst á heldur minnisstæðum atburði sem
ber upp á með óvæntum hætti og allsendis
ófyrirséðum. Þann atburð læt ég hjá líða að
útskýra nánar því hann er ekki til þess fallinn
að varpa birtu á landið og umhverfi þess. En
frægðin fer heldur ekki alltaf eina braut. Hún
getur líka verið með endemum.
Frægast af öllu frægu innlendu efni verður
samt sem áður tilkynningin um að leggja skuli
nýjan skatt á landsmenn, „virðisaukaskatt
húsasölu“, sem ætlaður verður til að „jafna
út“ mismun á söluverði húsa úti á lands-
byggðinni og í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæð-
Ragnhildur Helgadótt-
ir veröur annar
tveggja núverandi
ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins sem verður
áfram í ríkisstjórn.
Ferskfiskútflutningur með flugvélum mun stórlega aukast.
viV
26 VIKAN 1. TBL