Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 56
VIK A N
STJÖRNUSPÁ
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
28. DESEMBER-3.
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Of mikið er í húfi til að borgi sig
fyrir þig að efna til ófriðar. Þér þyk-
ir ef til vill full ástæða til að leita
réttar þíns en sóknin verður að vera
vel undirbúin og þú þarft á staðfestu
að halda. Gættu þess sérstaklega að
fóma ekki meiri hagsmunum fyrir
minni og varastu fljótfæmi.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Þú getur haft þitt á þurru en það
er meira en hægt er að segja um
ýmsa þá sem í kringum þig eru.
Blandaðu þér ekki í vandræði ann-
arra, að þessu sinni hentar þér betur
að halda þig til hliðar. Nú eru að
gerast þeir atburðir sem seinna gætu
haft veruleg áhrif á daglegt líf þitt.
LJÓNIÐ 24. júlí—23. ágúst
Hafirðu ekki þegar komið reiðu á
fjármálin ættirðu ekki að láta það
dragast öllu lengur. Fyrsta skrefið
er að gera sér grein fyrir stöðunni.
Þú ert að vinna þig út úr vanda og
sækist þótt seint fari. Búast má við
að þér aukist bjartsýni og einnig það
er spor í rétta átt.
VOGIN24.sept.-23.okt.
Þér finnst að óeðlilega margt hafi
farið úrskeiðis hjá þér að undan-
fömu og skilur ekki hvers þú átt að
gjalda. Fljótt fymist yfir ófarirnar
enda horfir strax betur fyrir þér.
Utanaðkomandi öfl verða til þess
að skyndilega eygirðu möguleika þar
sem þeirra virtist síst að vænta.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Þú verður óvanalega yfirvegaður og
kemur bæði sjálfum þér og öðrum
á óvart með því að sýna jafnaðargeð
undir kringumstæðum sem allajafna
kæmu þér úr jafnvægi. Þetta verður
til þess að venju fremur friðsamt
verður í kringum þig og vera má að
þú getir eitthvað af því lært.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Þú kemur fólki á óvart með því að
bregðast við atvikum á annan hátt
en búast má við af þér. Þetta verður
þér ánægjuleg reynsla, þú þarft ekki
að standa neinum skil á gerðum þín-
um og getur notið þess að hafa
sjónarmið þín fyrir þig. Þetta mun
að auki efla öryggiskennd þína.
JANÚAR
NAUTIÐ 21. apríl—21. maí
Gefðu þér góðan tíma til að sinna
persónulegum málum og láttu þá
ekki stjórna þér sem hæst hafa. Þú
lætur hversdagsþarfir sitja á hakan-
um og slíkt getur spillt fyrir þér þótt
ekki komi það strax í ljós. Sýndu
umburðarlyndi þótt einhver villist á
vegi sem þér finnst auðrataður.
KRABBINN 22. júni-23. júlí
Láttu ekki á þig fá þótt ekki verði
allt eins og þú hafðir hugsað þér.
Ýmislegt síst lakara getur borið fyrir
þig og ekki skaltu velta vöngum yfir
því sem hefði getað orðið. Það er
allsendis óþarfi að fyllast dapurleika
um áramót, mun vænlegra er að
horfa með bjartsýni fram á veginn.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Góð áform verða ofarlega á baugi
og hugur í þér um áramótin. Ekki
er nema gott um það að segja en
meira máli skipta þó efndimar. Því
er ráð að stilla heitstrengingum í hóf
svo að vegur sé að framfylgja þeim.
Láttu aðra umfram allt njóta góðs
afbjartsýninni.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Greiði gegn greiða er ekki svo frá-
leitt fyrirkomulag. Þetta ættir þú að
hafa í huga áður en þú ferð fram á
að aðrir hliðri til fyrir þér. Stundum
er affarasælla að bjargast við það
sem handbært er en láta vera að
setja allt á annan endann til að full-
komna hlutina.
STEINGEITIN 22. des.-20.jan.
Láttu réttlætiskenndina vísa þér veg-
inn, þú þarft á því að halda. Þér
mun þykja tími til kominn að breyta
til enda ástæðulaust að sætta sig við
illþolandi ástand. Vera má að þú
þurfir að slá striki yfir eitthvað
óuppgert en slíkt getur reynst betra
en önnur tiltæk úrræði.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Þú kemst að raun um að ekki er
allt sem sýnist. Hvort sem þér er það
ljúft eða leitt áttu ekki annarra kosta
völ en þreifa þig áfram skref fyrir
skref og getur búist við að reyni á
ýtrustu þolinmæði eigi þér eitthvað
að verða ágengt. í þessu máli sáir
þú áreiðanlega eins og þú uppskerð.
Við heiðrum steingeitur að þessu sinni með sérstakri stjörn-
uspá fyrir hvern dag vikunnar.
Sunnudagur28. desember:
Vertu ekki hikandi í samskiptum við annað fólk, eins þótt
þú þekkir það ekki náið. Sýnir þú einlægni uppskerðu viðmót
sem gleður þig og gerir þér gott. Þú hefðir ekki nema gott af
því að hreyfa þig dálítið.
Mánudagur 29. desember:
Búast má við erfiðum degi, einkum framan af. Þótt ekkert
sérstakt komi til er hversdagurinn dálítið erfiður eftir öll há-
tíðahöldin. Þar að auki finnst þér þú eiga ólokið erfiðum
viðfangsefnum sem ekki er unnt að fresta öllu lengur.
Þriðjudagur 30. desember:
Þér gefast góð færi. Breyttu því sem þú sérð fram á að geta
breytt en láttu hitt sigla sinn sjó. Þú ert best fær um að meta
þarfirnar og ættir að láta til skarar skriða en forðast alla bak-
þanka.
Miðvikudagur 31. desember:
Þetta verður friðsæll dagur svo framarlega sem þú lætur vera
að stilla upp einhverri sparimynd. Leyfðu þér og öðrum að
njóta þess sem upp á er boðið án þess að allt þurfi að vera
í föstum skorðum.
Fimmtudagur l.janúar:
Lífið brosir við þér og þú getur horft björtum augum fram á
nýtt ár. Láttu þérekki nægja að hlusta á aðra, taktu þátt í
samræðum og viðraðu óhikað sjónarmið þin og skoðanir. Þú
átt nefnilega möguleika á að taka þátt í skemmtilegum og
áhugaverðum samræðum.
Föstudagur 2. janúar:
Þér lætur betur að dvelja við eigin hugrenningar heldur en
beinlínis að hella þér út í aðgerðir. Þetta er tilvalinn dagur til
að meta stöðuna og skipuleggja það sem enn er ólokið af því
sem þú hefur verið að fást við upp á síðkastið.
Laugardagur 3. janúar:
Þú lætur heillast af nýjungum og tilbreyting freistar þín. Kunn-
ingi kemur þér á óvart og sýnir að í honum býr fleira en þú
hugðir.
56 VIKAN 1. TBL