Vikan - 12.03.1987, Side 20
Þegar vertíðin stendur
sem hæst finnst Eiði Eiðs-
syni upplagt að matreiða
þennan meiri háttar fisk-
rétt. Vinsældir fiskrétta af
ýmsu tagi hafa aukist gífur-
lega hin síðustu ár og
kannski ekki nema von þar
sem fiskur er bæði hollur
og hið mesta lostæti. Prófið
þessa uppskrift, hún er
hreinasta snild.
Pönnusteiktur fiskur með
rjómalagaðri möndlusósu:
Uppskriftin er fyrir 4.
HRÁEFNI: Um það bil 1
kg fersk fiskfiök, til dæmis
karfi, ýsa eða smálúða.
PANNERING: 1 bolli
heilhveiti, 'A bolli rúgmjöl,
1 tsk. paprika, 1 tsk. karrí,
1 tsk. hvítlauksduft, 1 tsk.
timian, 1 msk. picauta
grænmetiskraftur ('A msk.
salt).
SÓSA: 1 msk. smjör, 50-60
gmöndlufiögur, 1 dlvatn
(sérrí), 1 peli rjómi, 1 tsk.
picauta('/2 tsk. salt), 1 tsk.
estragon, 1 msk. maizena-
mjöl til þykkingar.
FISKUR: Roðfiettið og
beinhreinsið fiökin og sker-
ið þau í hæfilega bita. Hitið
smjör á pönnu og veltið
fiskinum upp úrmjölinu.
Steikið fiskstykkin í um það
bil 3 mínútur á hvorri hlið,
eftir þykkt stykkjanna.
S ÓSA: Bræðið smjörið á
pönnu, stráið síðan
möndlufiögunum og pic-
auta (salti) á pönnuna.
Ristið möndlurnar þar til
þær eru orðnar ljósbrúnar
(varist að brenna þær).
Bætið síðan vökvanum út í
og látið sjóða í 2-3 mínút-
ur. Bætið rjómanum og
estragoninu út í og látið
suðuna koma upp. Þykkið
með maizenamjölinu ef
með þarf.
MEÐLÆTI: Kartöfiur,
hrísgrjón og hvers kyns létt-
soðið grænmeti.
20 VIKAN 11. TBL