Vikan - 06.08.1987, Side 4
Vikan
32. tbl. 49. árgangur. 6.-12. ágúst 1987. Verð 150 krónur
FORSÍÐAN 1 RÖDD RITSTJÓRNAR í ÞESSARIVIKU
Friðrik Sophusson, iðnaðarráð-
herra og varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, er í Vikuviðtal-
inu. Hann er orðinn sjóaður í
stórsjó stjórnmálanna og hefur
frá mörgu að segja. Forsíðu-
myndina tók Ijósmyndari Vik-
unnar, helgi skj. friðjónsson.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Jóna Björk Guðnadóttir,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Sig-
ríður Steinbjörnsdóttir, Sigrún Ása
Markúsdóttir.
LJÓSMYNDARI: helgi skj. frið-
jónsson.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
HANDRIT OG PRÓFARKIR:
Guðrún Svava Bjarnadóttir, Hildur
Gunnlaugsdóttir.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SÍMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Tíminn
Stimpilklukkuþrælar eru af-
kvæmi vestrænnar menningar.
Baráttan við mínúturnar og
stimpilklukkuna er einn hvim-
leiðasti menningarangi sem
maðurinn gat leitt yfir samfélag-
ið. Tímaskynjun þrælanna tekur
mið af stimpilklukkunni og þykir
hún harður húsbóndi. Þeir sem
búa með náttúrunni, fuglunum í
fjörunni og fjallalömbunum,
hljóta að hafa mildara tímaskyn
en stimpilklukkuþrælarnir.
En mannlífið er undir pressu
tímans því allt gerist hratt nú til
dags. Ástæðurnar eru, auk hrað-
ans, fjölbreytnin og tæknin. Það
sem var nothæft í gær verður
úrelt á morgun á þessari tækni-
öld sem við lifum.
í þessari Viku er afar fróðleg
grein um tímann og spjallað er
við fólk sem hefur ólík viðhorf
til tímans eða mismunandi tíma-
skyn. Það er rétt að gefa sér tíma
til að lesa þá grein.
Annað athyglisvert efni er við-
talið við iðnaðarráðherra og
varaformann Sjálfstæðisflokks-
ins, Friðrik Sophusson. Hann
talar um kynslóðaskipti og þar
kemur einmitt tíminn við sögu.
Þótt Friðrik sé ungur maður að
árum á hann nokkuð langan
pólitískan feril að baki og er ný-
sestur í ráðherrastól í fyrsta sinn,
líklega á hátindi ferilsins. Fyrir
þá sem áhuga hafa á straumum
í pólitíska kjölvatninu er viðtalið
áhugavert. Fyrir þá sem hafa
áhuga á manninum á bak við
stjórnmálamanninn Friðrik Sop-
husson er þetta viðtal einnig
áhugavert. Fyrir þá sem hafa
„rétt" tímaskyn er þetta viðtal í
takt við daginn í dag.
6
Ziirich í Sviss er geysifögur borg
og þangað skrapp hópur blaða-
manna einn laugardag í skoðunar-
ferð, svona rétt eins og aðrir
skreppa í Flóann.
8
Lánastarfsemi heimsborgaranna er
fjölbreytt: nýjasta fyrirbærið á
markaðnum eru leg sem leigð eru
eða lánuð í níu mánuði -fróðleg
grejn.
10
Tímaskyn manna er afstætt og
margir segja að það sé aðeins af-
brigði af menningaráhrifum og úr
tengslum við náttúruna. Hvernig
skynjarfólk annars tímann?
18
Valdimar Hermannsson, verslunar-
stjóri í Hagkaupi í Kringlunni, er
nafn Vikunnar.
20
Aldeilis frábærir Suðurríkjaréttir —
baunir, krydd og kruðerí - í Viku-
eldhúsinu.
22
Nýjasta kvikmynd ástralska leik-
stjórans Philippe Mora, Death of a
Soldier, ergóð að mati Hilmars
Karlssonar, kvikmyndaskribents
þessa merka vikurits.
24
Hvatberar, fjórðu deildar gaurar á
keppnisferð, góðglaðir, hnyttnirog
hittnir í samskiptum og fótbolta.
Donni þjálfari tekinn tali.
4 VIKAN 32 TBL