Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 5
INÆSTU VIKU
32
Séra Rögnvaldur Finnbogason,
prestur á Staðastað á Snæfells-
nesi, er í Vikuviðtalinu og kjarnyrt-
ursem fyrr.
42
Draumráðandinn hefur í mörg horn .. - . . • . . ;o*.
aðlítanúen honumferstverkið
vel úr hendi að vanda. Hvað táknar
draumur um fallhlífarstökk, barns-
fæðinqu, samfarir við systur sína?
44
Madonna er óþrjótandi uppspretta
fyrirfjölmiðlana. Húneröðruvísi
og veit af því. Sagt frá Madonnu
I poppþættinum. V jfeítv
46
Barna-Vikan. Framhaldsögunnar
sem var í síðasta tölublaði.
49
Megrunarkúr Bo Derek hefur
reynst henni vel og sjálfsagt að
lesa hann yfir og læra eitthvað nýtt.
;
52
Réttur tími til að drepa, sakamála-
sagaeftir Julian Symons.
57
Líf og lyst hefst með listaverki eftir
listamanninn helga skj. friðjóns-
son. Síðan taka Jón Karl Helgason -
og Einar Garibaldi við með texta
og jjósmyndjrafspyrnu.
MÆÐGUR I LÚXEMBORG, Ingunn Þorvaldsdóttir
og Ragnhildur Richter, eru teknar tali en þær hafa
búið í LUX hátt á annan áratug. Samheldni íslending-
anna í Lúxemborg er þekkt og þær mæðgur segja
frá högum landanna þar.
VIKU-ANNÁLL. Vikan verður fimmtíu ára á næsta
ári og er með elstu tímaritum landsins. Hún hefur
stundum á æviferlinum skipt um eigendur og gerði
það nýlega. Nýr eigandi Vikunnar tekur við um næstu
mánaðamót og verður því næsta tölublað það síð-
asta sem núverandi ritstjórn stýrir. Á þessum
tímamótum ætlum við að bregða upp nokkrum svip-
myndum úr fyrri Vikum. Af nógu er að taka á tæplega
fimmtíu ára ferli.
ANNA ROSS heitir íslensk kona sem fæddist í Borg-
arfirði en hefur um árabil verið búsett í Buenos Aires
og París. Hún býr nú á Flórída. Anna er í heimsókn
hér á landi og í næsta blaði birtum við viðtal við
þessa merkiskonu. Hún hefur á litríkum æviferli um-
gengist heimsfrægar kvikmyndastjörnur og listamenn
og er fjórgift.
HIN TVÍKYNJA HVÖT. Eitt birtingarform Erosar er
„bisexuality" eða tvíkynhneigð en svo kallast það
ástarfar þegar menn leggja ástir við karlmenn jafnt
sem konur. i mjög ítarlegri grein í næstu Viku er
hugað að þessu tvítogi kynhvatarinnar og hvernig
hinn vestræni heimur bregst við karlmönnum sem
eru „bæjó". Meðal sumra þjóðflokka er tvíkynhneigð
eðlileg talin og án dulúðar.
38. TBL VIKAN 5