Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 22
OFURLEÐNIVIÐ
HÁTT HfTASTIG
GREIN EFTIR DR. SVERRI ÓLAFSSON
* mmwUtrJii ^'.11
Prófessor Laibowitz hefur tekist aö hanna næfurþunnar ræmur úr ofurleiðnum efnum sem
hægt veröur aö nota í rafleiðslur á klippum tölva.
a undanförnum vikum og mánuðum
/I liafa eðlisfræðingar, sem vinna að
/ \ rannsóknum á eiginleikum fastra efna,
verið í miklu uppnámi. Ástæðan fyrir
* 1 þessu er skriða tilkynninga um ofur-
leiðni í nokkrum efnum við óvenjulega hátt
hitastig. Fyrstu fréttirnar, sem gerðu vísinda-
mönnum og almenningi ljóst að mikilvægir
hlutir voru að gerast, komu frá Paul C.W.
Chu og samstarfsmönnum hans við háskól-
ana í Alabama og Houston í Bandaríkjun-
um. Chu og félagar mældu ofurleiðni í
blöndu af baríni (Ba), yttríni (Y), kopar
(Cu) og súrefni (O) við mínus 180° C. Mikil-
vægi þessara niðurstaðna er augljóst ef haft
er í huga að þangað til hafði ofurleiðni ein-
ungis mælst við hitastig á bilinu frá mínus
272,9 til mínus 250° C. Nýi ofurleiðarinn var
sótsvartur á litinn, einna líkastur potti, harð-
ur og hrökkkenndur.
Fyrir tæpu ári datt fáum vísindamönnum
í hug að ofurleiðni við slíkt hitastig gæti
nokkurn tíma orðið að veruleika. Uppgötv-
un þessi kom því mjög á óvart, jafnvel þó
flestir trúi því nú að hún eigi eftir að hafa
byltingarkennd áhrif á mörgum sviðum
tækni og vísinda. Einnig er ljóst að ýmis
atriði þeirra kenninga, sem hingað til hafa
skýrt fyrirbærið ofurleiðni, þarfnast endur-
skoðunar. Mikil vinna er því framundan,
allt í senn á sviði fræðilegrar, tilrauna- og
hagnýtrar eðlisfræði.
22 VIKAN 38. TBL