Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 46
Vikan — böm
Einu sinni voru konungur
og drottning í ríki sínu...
Hér kemurframhaldið af sögunni í síðasta blaði. Sagan er um tvœr
postulínsbrúður, kóng og drottningu, sem lifna við á nœturnar og lendaþá
íýmsum œvintýrum.
í Lækjargötunni var töluvert af fólki.
Margir voru að koma úr ellefubíó og
aðrir voru á heilsubótargöngu fyrir
svefninn.
Litlu skötuhjúin skutust á milli fólks-
ins og komu sér í öruggt skjól upp við
hús. Það var gaman að horfa á mann-
fólkið. Þeir sem voru að koma úr bíóinu
voru ennþá að japla á poppkorni. Marg-
ir þeirra voru líka hálfskrítnir í framan,
hafa líklega verið að horfa á hryllings-
mynd. Það er nú ekki gott, svona rétt
fyrirsvefninn.
Þarna kom ógurlega ástfangið par
gangandi. Þau tóku nokkur skref í einu,
staðnæmdust og kysstust, nokkur skref
og kysstust meira og svo framvegis.
Kóngurinn nennti ekki að horfa á
þetta kossastand og dró drottninguna
sína af stað. Búðargluggarnir voru al-
deilis spennandi. Skólarnir voru nýbyrj-
aðir og í gluggum ritfangaverslunarinn-
ar var allt fullt af fallegum skólavörum,
pennaveskjum, skólatöskum, bókum og
skrítnu og skemmtilegu smádóti. „Þetta
þætti Gullu gaman að fá,“ sagði drottn-
ingin og benti á stóran litakassa.
í næsta búðarglugga voru undirföt og
magabelti og þar við hliðina var stór
gluggi á leikfangaverslun. Kóngur og
drottning námu staðar og störðu hug-
fangin inn um gluggann. Mikið var allt
fallegt þarna inni, yndislega fallegar
brúður, bangsar, bílar og heilu dúkku-
húsin með húsgögnum.
Þarna voru Barbídúkkur með ótrúleg-
ustu þægindi, sundlaug hvað þá heldur
ÉÉÍÉíSlH
Baðtími.
46 VIKAN 36 TBL