Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 49
Megrunarkúr
Bo Derek
Bo borðar mikið af nautakjöti sem sérfræðingar telja
ekki heppilega fæðu fyrir þá sem þurfa að halda sér grönn-
um en Bo segist ekki trúa að nautakjöt sé óhollt. „Ég er
mjög vinnusöm manneskja og þarf mikið af próteinum
og þau fæ ég úr nautakjöti. Dagsdaglega borða ég mikið
af ávöxtum oggrænmeti. Þegar ég þarfað léttast finnst
mér miklu betra að setja saman mína eigin kúra en fylgja
megrunarkúrum sem byggjast á því að borða einhæfa
fæðu. Ég fylgi þeirri meginreglu að forðast fitu eins og
heitan eld. A yngri árum var ég vön að hakka i mig
súkkulaði. Ég fitnaði náttúrlega og varð að velja á milli
þess að verða með tímanum að spikhlussu eða láta af
súkkulaðiátinu. Ég lærði líka að matbúa og las mér til
um næringarefnafræði. Öll hreyfing er afhinu góða, sjálf
hef ég verið í lyftingum og leikfimi. Það nýjasta hjá mér
er að læra ballett. Mér frnnst ballett alveg ofsalega
skemmtilegur og hann styrkir og fegrar líkamann. Að
endingu ætla ég að gefa ykkur uppskrift að nýjasta
megrunarkúrnum mínum. Það á náttúrlega ekki að borða
allt sem er á seðlinum í hvert mál heldur á að velja sér
einn rétt.“
Morgunverður:
Grapesafi og músli með mjólk eða egg og beikon. Ef
svengd gerir vart við sig, þegar líða tekur á morguninn,
skal eitt af þessu þrennu snætt: gulrót, sellerí eða hálfur
bolli af hnetum.
Hádegi:
Túnfísksalat, kjúklingasalat eða heit tortilla með brædd-
um osti, græmetissalat eða tærar kjúklinga- og kjötsúpur
með grænmeti og bræddum osti. Um miðjan daginn er
svo gott að fá sér gulrót, sellerí eða nautakjötsflís.
Kvöldverður:
Ofnsteikt eða grillað nautakjöt, bakaðar kartöflur, salat,
ávaxtasafi, pasta með tómatsósu og osti, pitsa með græn-
um pipar, tómötum, sveppum, pepperoni og osti, fiskur
með grænmeti, köld nautatunga með grænmeti og sósu
úr sýrðum rjóma og tómatsósu.
38. TBL VIKAN 49