Vikan


Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 14

Vikan - 17.09.1987, Blaðsíða 14
SKELFING Á SKURÐSTOFUNNI líkamshlutinn er ekki lengur til staðar. Nú vinnur hann að því að uppgötva sjálfan sig, aðhæfa hreyfmgar og jafnvægisskyn þessu breytta ástandi og líta á líkamann sem eina heild. Andlega líður sjúklingurinn miklar raunir. Laskaður líkaminn veldur skömm og minnimáttarkennd. Loks tekst sjúklingnum að sætta sig við nýja sjálfsmynd, hann lítur á líkamann sem eina heild og lifír í samræmi við breytt ástand. Fjölskyldan og uppskurðurinn I Iangflestum tilfellum verða nánir að- standendur sjúklings áhyggjufullir þegar hann verður að gangast undir erfiðan upp- skurð. Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á tengslum milli viðbragða fjöl- skyldu annars vegar og andlegs ástands og batahorfa sjúklings hins vegar. Það hefur komið í ljós að flestir aðstand- endur fyllast ótta við aðgerðina sjálfa. Þeir hræðast að uppskurðurinn mistakist og að sá sjúki verði öryrki eða jafnvel deyi af völdum aðgerðarinnar. Annar hópur að- standenda treystir ekki starfsfólkinu og óttast að ónóg umönnun dragi úr líkum á skjótum bata. Loks hræðast margir að and- legri líðan sjúklinga hraki að loknum uppskurði og að persónuleiki þeirra breyt- ist til hins verra. Það kom einnig í ljós að margir aðstand- endur fylltust ótta sem beindist að þeim sjálfum en ekki þeim sjúka. Þessir upplifðu allar þær kvalir sem þeir ímynduðu sér að sjúklingurinn yrði að þola. Þeir áttu erfitt með svefn, köstuðu upp af kvíða og kvört- uðu sáran undan óþægindum í sama líkamshluta og sjúklingurinn. Samkvæmt niðurstöðum virðast makar komnir á efri ár taka uppskurði næst sér. Áður var sögð sagan af Jóni og reynslu hans á sjúkrahúsinu. Nú verður hins vegar fjallað um fjölskyldu Jóns og þær tilfmning- ar og andstreymi sem hún varð að horfast í augu við. Jón er giftur Guðrúnu og eiga þau tvær dætur sem voru sjö og ellefu ára þegar Jón var lagður inn. Guðrún segist hafa orðið mjög áhyggjufull þegar Jón fór á spítalann. Vissulega var hún fegin því að æxlið skyldi fjarlægt og maður hennar mundi þar með losna við óþægindi sem því fylgdu. Hins vegar kveið hún fyrir aðgerðinni og eftir- köstum hennar. Hún óttaðist að svæfmgin mistækist svo að Jón vaknaði ekki aftur eða yrði að henni lokinni skaddaður eða lamaður fyrir lífstíð. Eftir að hafa fengið haldgóðar upplýsingar hjá hjúkrunarkonu, sem annaðist Jón, minnkaði hræðslan til muna. Þegar leið að uppskurðinum jókst kvíðinn á nýjan leik. Þessa daga átti Guð- rún erfitt með svefn, hún gat ekki einbeitt sér að vinnu og missti matarlyst. Hún var á sjúkrahúsinu meðan á uppskurðinum stóð og nreð stuðningi einnar starfsstúlk- unnar tókst henni að halda hræðslunni í skefjum. Uppskurðurinn gekk vel fyrir sig og þungu fargi var létt af Guðrúnu. Hins vegar jókst spennan á ný þegar hún sá hversu vanmáttar- og vonleysistilfinningin hafði náð sterkum tökum á rnanni hennar. Nú kom starfsfólkið aftur að góðu gagni og skýrði þær miklu geðsveiflur sem marg- ir sjúklingar eiga við að stríða að loknum uppskurði og útskýrði jafnframt fyrir henni á hvaða hátt hún gæti stutt mann sinn og styrkt. Með þessu móti gat Guðrún beint allri orku sinni i réttan farveg. Hún reynd- ist Jóni ómetanleg stoð fyrstu vikurnar eftir uppskurðinn og jók á sjálfstraust hans. Uppskurðurinn kom verr við telpurnar. Skyndilega var pabbi þeirra kominn inn á spítala. Hann sem varði þær, veitti þeim öryggi og hvatti til dáða lá nú lítill og úmkomulaus á sjúkrastofu. Sú yngri fylltist mikilli reiði; henni fannst pabbi sinn hafa brugðist sér. Sú eldri varð hins vegar mjög hrædd um pabba sinn og hélt að hann væri að deyja. Báðar skynjuðu kvíðann sem hafði náð tökum á mömmu þeirra. Mikið óöryggi greip báðar telpurnar, þær áttu erfitt með svefn, urðu mjög uppstökkar og þurftu á ást og umhyggju Guðrúnar að halda. Þegar faðir þeirra kom heim jafnaði sú eldri sig fljótt en sú yngri átti erfitt með að taka hann í sátt og var hin argasta yfir þeirri athygli sem pabbi vakti hjá mömmu og öðrum ættingjum. Otti náinna aðstandenda virðist hafa tvenns konar áhrif á þá sjúku. Annars veg- ar brotna sjúklingar niður þegar þeir skynja áhyggjur og kvíða vandamanna. Þeir þurfa mjög á styrkri stoð að halda úr þessari átt og þegar hún er ekki fyrir hendi missa þeir fótfestuna. Hins vegar verða margir sjúkl- ingar harðari af sér og það blæs í þá kjarki þegar fjölskyldan fellur saman. Þeir hug- hreysta hana og hugga. Báðir hóparnir ná seinna bata en þeir sjúklingar sem eru hvattir og studdir af íjöl- skyldunni og þeir ná síst fullri heilsu sem verða að hvetja aðstendur og sannfæra. Á þeim liggur tvöfalt álag sem er einum manni ofraun að ráða við. Þá getur kvíði fjölskyldumeðlima haft neikvæð áhrif á samband sjúklings við þá fyrrnefndu. Sjúklingurinn gleymir ekki hvernig hans nánustu brugðust við á rauna- stundu og hann verður gramur, bitur og tortrygginn. Á hinn bóginn er ómetanlegt ef fjölskyldu tekst að sýna stillingu og veita sjúkum ætt- ingja alla þá aðstoð og styrk sem hann þarf. Slíkt verður seint fullþakkað. Leiðsögn og kennsla Rannsóknir sýna að ótvíræð tengsl eru á milli óttans sem sjúklingurinn upplifir og bata. Vonin um skjótan bata eykst til muna ef sjúklingurinn gengst rólegur og yfirveg- aður undir uppskurð. Það hefur komið í ljós að haldgóð leið- sögn og kennsla, sem upplýsa sjúklinginn um tilgang, eðli og eftirköst uppskurðar, draga úr ótta og koma í veg fyrir þung- lyndi, sektarkennd og blygðun. Fræðsla og tilsögn af fyrrgreindum toga er í inikilli sókn og gildi slíkrar ráðgjafar nú talið meira en nokkurn tíma fyrr. Bæði í Bandaríkjunum og Skandinavíu hafa ver- ið gerðar rannsóknir á nauðsyn og gildi góðrar leiðsagnar. Meðal annars uppgötv- uðu menn að margir sjúklingar voru alls- endis ófróðir um það umstang sem þeir áttu í vændum á sjúkrahúsinu og þessi fá- fræði jók óöryggi, ótta og kvíða. Kennsla og upplýsing er mjög mikilvæg allt frá fyrstu stund. Flestir sjúklingar eru að upplifa eitthvað nýtt og heldur óskemmtilegt og það veldur þeim ýmiss konar sálarangist. Þeir sjúklingar, sem fengu upplýsingar og leiðsögn um gang mála frá því að þeir voru lagðir inn og þar til að uppskurði kom, héldu hræðslunni i skefjum, gengust yfirvegaðir undir upp- skurðinn og náðu fyrr fullri heilsu. Uppfræðing að loknum uppskurði er ekki síður mikilvæg. Fyrstu dagana eru flestir sjúklingar undir miklu tilfinningalegu álagi. Þeir verða að sætta sig við sársauka, breytta sjálfsmynd og nýtt hlutverk sem hún skapar. Það kom í ljós að þeir sjúkling- ar, sem fengu haldgóðar upplýsingar og umönnun, náðu fyrr fullum bata og voru 14 VIK A N 38. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.