Vikan - 17.09.1987, Síða 29
Vikan og tilveran
Haustflensan
Síðan ég man eftir mér fyrst hefur haustflensan verið
jafnárviss og haustið. í haust hefur hún þó verið óvenju
snemma á ferðinni, til að mynda fékk ég mína strax í
byrjun ágúst, sonur minn í byrjun september en maðurinn
minn hefur enn ekki orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að
fá flensuna.
Fyrir nokkru rölti ég Laugaveginn og snýtti mér á skýj-
unum og fór þá að hugsa um haustflensuna, ekki vegna
þess að flensa sé eitthvað sérlega skemmtilegt fyrirbrigði
heldur af vorkunnsemi við þá sem á þeirri stundu lágu
veikir í rúmum sínum. Flensuþankarnir leiddu huga minn
að því að við hjónin eigum rétt á fjórtán dögum á launum
á ári við að hugsa um barnið okkar þegar það er veikt.
Jón og Gunna í næsta húsi við mig eiga líka þennan rétt,
munurinn er bara sá að þau eru að ala upp þrjú börn en
við eitt. Svo mitt barn getur sem sagt vænst hjúkrunar
heima í fjórtán daga
þurfi það á því að halda
en börn Jóns og Gunnu
einungis í 4,6 daga
hvert. En málið er víst
ekki svona einfalt. Einn
af karlmönnunum, sem
ég vinn með, var að
diskútera þessi mál um
daginn. Hann er prent-
ari en konum í prent-
arastétt er víst að Qöfga.
Það taldi hann nú ekki
beinlínis æskilegt því
konurnar lækkuðu
heildarlaunin því þær
semdu alltaf upp á lægra kaup en karlarnir, svo væru það
alltaf þær sem sætu heima þegar börnin væru veik þar
sem þær hefðu í flestum tilvikum lægri laun en karlarnir.
Hálf-flensukenndar staðreyndir.
Ég fór því næst að velta því fyrir mér að ég á víst tvo
borgaða veikindadaga í hverjum mánuði. Sem betur fer
er ég nú það heilsuhraust að ég þarf yfirleitt ekki að nýta
alla þá tuttugu og fjóra veikindadaga sem ég á ári. Hins
vegar hefur maður spurnir af fólki sern tekur sér frí og
nýtir sér veikindadagana sína án tillits til þess hvort við-
komandi sé veikur eður ei. Hvers vegna er þá þeim
heilsuhraustu ekki umbunað með lengra sumarfríi eða
einhverju ámóta?
Þegar ég var komin niður í bæ og á móts við Reykjavík-
urapótek datt mér í hug að flensurnar grasséra ekki bara
á heimilunum, hornsteinum þjóðfélagsins, heldur virðist
ríkisvaldið fá flensuköst af og til. Mér datt í hug að ríkis-
stjórnin hefði sýkst alvarlega í kjölfar Útvegsbankamálsins
en önnur frétt og miklu minni fannst mér þó enn skondn-
ari þennan dag, en það var frétt þess efnis að ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar hefði fært Leikfélagi Akureyrar sjö
milljóna króna gjöf á 125 ára afmæli Akureyrarbæjar nú
fyrir stuttu. Það var bara einn galli á gjöf Njarðar en
hann var sá að það var enginn peningur til. Til dæmis
átti Byggðastofnun að láta fímm milljónir af hendi rakna
en það hafði víst alveg gleymst að láta vita þar, þeir
heyrðu fyrst um málið í fréttum ríkisfjölmiðlanna. Á
stjórnarfundi, sem haldinn var stuttu síðar, var það fyrsta
verk stjórnarmanna að óska eftir því við fjármálaráðu-
neytið að fá fimm milljón króna aukafjárveitingu.
Jón Baldvin tók fyrir stuttu saman lista yfir þau ríkis-
fyrirtæki sem hann vildi losa ríkið við. Vissulega er
þjóðþrifaverk að reyna
að selja sum þessara
fyrirtækja en það orkar
tvímælis að selja önnur.
Lyfjaverslun ríkisins er
eitt þeirra. Ríkið er
stærsti kaupandi lyfja
og hjúkrunargagna af
Lyfjaversluninni, enda
stendur í lögum um fyr-
irtækið að það eigi að
útvega sjúkrahúsum og
stofnunum á vegum
hins opinbera sjúkra-
gögn á sem hagstæðustu
verði. Það hvílir líka á
herðum þessarar stofnunar að eiga til á lager ýmis lyf sem
ekki er mikil sala í, fyrir sjúkrahús og Almannavarnir
ríkisins. Þarna er því öryggisþáttur sem verður að leysa
öðruvísi verði Lyfjaverslunin seld. En á meðan heilbrigðis-
þjónustan er rekin á félagslegum grunni er nokkuð
augljóst að kostnaðurinn, sem yrði af sölunni, félli að
verulegum hluta á ríkissjóð þar sem hann er langstærsti
kaupandi lyfja og hjúkrunargagna í landinu og tæplega
getur það orðið kappsmál einkaframtaksins að selja rík-
inu lyf og hjúkrunargögn á sem hagstæðustu verði á
hverjum tíma. Eða hvað?
Eini munurinn á haustflensunni á mínu heimili og þeirri
sem hefur grassérað hjá ríkisstjórninni er að ríkisstjórnin
fékk lungnabólgu í kjölfar Útvegsbankamálsins en ég hef
fyrir löngu náð fullri heilsu og fer sjálfsagt ekki að velta
fyrir mér flensu fyrr en næsta flensutímabil gengur í garð.
Texti: Jóhanna Margrét Einarsdóttir
38. TBL VIKAN 29