Vikan - 17.09.1987, Síða 45
Umsjón: Helga Margrét Reykdal
hún lauk skólanum fór hún á
sex vikna námskeið í nútíma-
dansi og þaðan lá leiðin til
New York þar sem hún eyddi
næsta sumri. Veturinn eftir
lagði hún stund á ballett og
nútímadans í Michigan. Þar
kynntist hún trommaranum
Steve Bray, manni sem átti
eftir að verða henni góður
félagi. Eftir eins árs nám hætti
hún og sneri aftur til New
York. Hún leigði íbúð sem
var varla búandi í og fæðan,
sem hún lifði á, var poppkorn
þar sem það var ódýrt og gaf
góða magafylli. Eftir að hafa
verið í ýmsum störfum kynnt-
ist hún tónlistarmanninum
Dan Gilroy, varð ástfangin
af honum og flutti til hans í
íbúð sem hann leigði með Ed
bróðursínum.
Við lá að Madonna sækti
um hvert einasta starf sem var
auglýst í skemmtanaheimin-
um. Eitt þeirra var bakrödd
hjá Patrick Hernandez, þeim
sem sló i gegn með laginu
Born to Be Alive. Umboðs-
menn hans kolféllu fyrir
Madonnu og buðu henni að
fara til Parísar þar sem hún
fengi góða íbúð, næga pen-
inga og tækifæri til að syngja
inn á plötu. Madonna tók
þessu tilboði fegins hendi, fór
til Parísar og bjó í íbúðinni
sem henni var lofað og lifði
góðu lifi, fyrir utan það að inn
á plötu söng hún ekki.
Þar kom að Madonna fékk
nóg af þessu lífi og sumarið
1979 pakkaði hún saman og
fór frá París, sagðist vera að
fara í frí en sneri ekki til baka.
í New Y ork gekk hún í
hljómsveit sem Dan Gilroy
var í, sú sveit kallaðist The
Breakfast Club. Meðlimir
þessarar sveitar voru Dan og
Ed Gilroy, Angie Smith og
Madonna. Madonna lék á
trommur en greip líka í gítar.
Eftir ár var hún búin að fá
nóg, hún vildi fá að syngja.
Hún hætti því í sveitinni og
flutti til Manhattan.
Þar hafði hún samband við
gamlan vin sinn, Steve Bray.
Madonna og Steve stofnuðu
hljómsveit sem lék undir ýms-
um nöfrtum, The Millionair-
es, Modern Dance,
Emmemon og Emmy. Á
sama tíma lék hún i mynd sem
kallast A Certain Sacrifice,
mynd sem hefur hlotið slæma
dóma. Einnig sat hún fyrir á
nektarmyndum til að vinna
sér inn peninga fyrir mat.
Eina hugsunin, sem hélt henni
gangandi, var að þetta væru
bara skref í áttina til frægðar.
Madonna ákvað nú að
snúa sér frá rokkinu og fara
yfir í diskómúsík. Sá eini sem
fylgdi henni úr hljómsveitinni
Emmy var Steve Bray. Hún
kynntist Mark Kamins diskó-
tekara og hann spilaði fjögur
lög sem þau höfðu tekið upp
fyrir forstjóra Sire Records. í
framhaldi af því fékk
Madonna plötusamning og
nú voru gefin út lög eins og
Everybody, Burning up og
Ain’t No Big Deal. Lög þessi
gengu nokkuð vel en samt
ekki nógu vel.
Madonna var um þessar
mundir með diskótekara að
nafni John „Jellybean"
Benitez. Hann fann fyrir hana
lag sem kallast Holiday og
leiðin upp vinsældalistana var
greið.
Madonna hefur gefið út
þrjár breiðskífur og hafa þær
orðið hver annarri vinsælli.
Sú fyrsta heitir Madonna og
næsta Like a Virgin. Af henni
komust íjölmörg lög inn á
lista, til dæmis titillagið, Like
a Virgin, Material Girl,
Angel, Dress You up og fleiri.
Titillagið af þriðju breiðskíf-
unni, True Blue, varð líka
vinsælt, auk þess Live to Tell,
Papa Don’t Preach, Open
Your Heart og La Isla
Bonita.
Kvikmyndaferill Madonnu
nær yfir meira en bara A
Certain Sacrifice. Hún kom
fram i myndinni Vision Quest
þar sem hún söng í nætur-
klúbbi. Úr þeirri mynd urðu
fræg lögin Crazy for Y ou og
Gambler. Hún lék eitt aðal-
hlutverkið í myndinni
Desperately Seeking Susan en
þar fannst mörgum hún vera
að leika sjálfa sig þar sem
persónan Susan var i mörgu
lík Madonnu. Úr þeirri mynd
varð lagið Into the Groove
vinsælt. Næst kom Shanghai
Surprise, mynd sem margir
urðu fyrir vonbrigðum með,
ekki síst Madonna. Nýjasta
mynd hennar verður frum-
sýnd í byrjun næsta árs. Sú
heitir Who’s That Girl og
hefur titillagið úr þeirri mynd
nú þegar farið á topp vin-
sældalista víðs vegar um
heiminn.
Árið 1985, á tuttugasta og
sjötta afmælisdaginn sinn,
giftist Madonna leikaranum
Sean Penn. Það kom mörgum
á óvart, viðstöddum hafði
verið boðið i afmælisveislu
sem endaði sem brúðkaups-
veisla. Hjónaband þetta
heyrir nú sögunni til en með-
an á því stóð sáu þau hjónin
slúðurdálkum dagblaða víða
um heim fyrirefni.
Madonna hefur verið köll-
uð hin nýja Marilyn Monroe
þar sem hún hefur látið lita á
sér hárið og klæðir sig ekki
ósvipað Marilyn Monroe.
Hún hefur líka verið kölluð
drottning poppsins. Hún er
allavega umdeild drottning
og mun sjálfsagt halda áfram
að vera umdeild og koma
fólki á óvart.
NAFN: Madonna Louise
Ciccione.
FÆDD: 16. ágúst 1959.
HÆÐ: 154 cm.
HÁRAL.: Dökkskolleitur.
AUGNL.: Grænn.
BREIÐSKÍFUR:
Madonna,
Likea Virgin,
True Blue.
AÐDÁENDAKLÚBBUR:
Madonna
c/o Jo Edwards
„Winterland“, Suite 500
150 Regent Street
LondonWl
England
38. TBL VIKAN 46