Vikan - 19.11.1987, Page 17
Ólafur Laufdal ásamt Jóhanni Frímannssyni hótelstjóra en hann
hefur séð um bókhald Hollywood og Broadway undanfarin ár.
Hótel ísland séð frá bílastæðinu fyrir framan Hollywood.
Hótel ísland:
Afmælishátíð
blaðamanna
fyrsta veislan
Austurhlið hússins gefur hugmynd um stærð þess.
Hinn 2500 manna danssal-
ur á Hótel Islandi, sem verið
er að byggja í Armúlanum,
verður teldnn í notkun í
desember og verður 90 ára
afmælishátið Blaðamanna-
félags íslands fyrsta veislan í
salnum.
Ólafur Laufdal eigandi hótels-
ins segir að nú sé unnið af full-
um krafti við byggingu hótelsins
en opna á það formlega þann
28. apríl á næsta ári. Hótelið
verður 120 herbergi að stærð
og óttast Ólafur ekki að gesti
muni skorta í það í framtíðinni.
Aðspurður um hvort hann
teldi ekki að hinn nýi danssalur,
eða skemmtistaður, myndi taka
gesti ffá öðrum stöðum hans
segir Ólafur svo ekki vera.
„Þótt þetta sé 2500 manna
staður er engin hætta á að menn
fái víðáttubrjálæði þar enda
hægt að hólfa staðinn niður í
þrennt. í þessu sambandi má
nefha að stað af þessari stærð,
sem tekið getur 1300 manns í
mat, hefur skort undir árshátíðir
stærstu fyrirtækjanna hér,“ segir
Ólafur.
Á staðnum verður fullkominn
sviðsútbúnaður, ljós, leiktjöld
o.fl. þannig að möguleikarnir á
ýmsum skemmtunum eru ótak-
markaðir.
í hótelinu verður sömuleiðis ,
öll hugsanleg þjónusta svo sem
líkamsrækt, hárgreiðslu og
snyrtistofa, bílaleiga o.fl.
Nafhið á hótelinu segir Ólafur
að ekkert vandamál hefði verið
að fá enda það ekki skráð neins-
staðar.
„Við ákváðum að hafa nafnið
þjóðlegt til að róa niður þá
menningarvita sem mest hafa
gagnrýnt okkur fyrir nöfnin
Hollywood og Broadway," segir
Ólafur.
Hótelstjóri á Hótel ísiandi
verður Jóhann Frímannsson.
—FRI.
VIKAN 15
LJÓSM.: M. HJÖRLEIFSSON