Vikan


Vikan - 19.11.1987, Síða 17

Vikan - 19.11.1987, Síða 17
Ólafur Laufdal ásamt Jóhanni Frímannssyni hótelstjóra en hann hefur séð um bókhald Hollywood og Broadway undanfarin ár. Hótel ísland séð frá bílastæðinu fyrir framan Hollywood. Hótel ísland: Afmælishátíð blaðamanna fyrsta veislan Austurhlið hússins gefur hugmynd um stærð þess. Hinn 2500 manna danssal- ur á Hótel Islandi, sem verið er að byggja í Armúlanum, verður teldnn í notkun í desember og verður 90 ára afmælishátið Blaðamanna- félags íslands fyrsta veislan í salnum. Ólafur Laufdal eigandi hótels- ins segir að nú sé unnið af full- um krafti við byggingu hótelsins en opna á það formlega þann 28. apríl á næsta ári. Hótelið verður 120 herbergi að stærð og óttast Ólafur ekki að gesti muni skorta í það í framtíðinni. Aðspurður um hvort hann teldi ekki að hinn nýi danssalur, eða skemmtistaður, myndi taka gesti ffá öðrum stöðum hans segir Ólafur svo ekki vera. „Þótt þetta sé 2500 manna staður er engin hætta á að menn fái víðáttubrjálæði þar enda hægt að hólfa staðinn niður í þrennt. í þessu sambandi má nefha að stað af þessari stærð, sem tekið getur 1300 manns í mat, hefur skort undir árshátíðir stærstu fyrirtækjanna hér,“ segir Ólafur. Á staðnum verður fullkominn sviðsútbúnaður, ljós, leiktjöld o.fl. þannig að möguleikarnir á ýmsum skemmtunum eru ótak- markaðir. í hótelinu verður sömuleiðis , öll hugsanleg þjónusta svo sem líkamsrækt, hárgreiðslu og snyrtistofa, bílaleiga o.fl. Nafhið á hótelinu segir Ólafur að ekkert vandamál hefði verið að fá enda það ekki skráð neins- staðar. „Við ákváðum að hafa nafnið þjóðlegt til að róa niður þá menningarvita sem mest hafa gagnrýnt okkur fyrir nöfnin Hollywood og Broadway," segir Ólafur. Hótelstjóri á Hótel ísiandi verður Jóhann Frímannsson. —FRI. VIKAN 15 LJÓSM.: M. HJÖRLEIFSSON

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.