Vikan - 19.11.1987, Blaðsíða 46
Hádegismatur fyrir fjóra
Heitt
osta
salat
Fersk salatblöð og steiktur ostur - er
nýjasta salatsamsetningin - og ofan á
er sett bragðmikil sinnepssósa!
4 bollar af blönduðum salatblöðum, (t.d.
kínakál, iceberg eða annað kál sem
fæst).
5 msk. olífu olía
3 msk. sítrónusafi
2 tsk. fínsaxaður graslaukur
1 tsk. Dijon sinnep
1 egg, hrært saman
1/3 bolli brauðmylsna, krydduð eftir
smekk
1 msk. Parmesan ostur
1 msk. sesamfræ, ristuð
1 krókostur, skorinn í þykkar sneiðar.
olífur ef vill
2-3 msk. smjör.
Salatblöðin þvegin og þurrkuð og raðað
á diska, plastfilma sett yfir og kælt.
Blandið saman olíu, sítrónusafa og sinn-
epi í krukku með loki á. Hristið vel sam-
an og kæliö.
Eggið sett í grunna skál, brauðmylnsnu
parmesanosti og sesamfræjum blandað
saman í annarri skál.
Ostsneiðum dýft í eggið, síðan hulið með
raspblöndunni. Smjör hitað á pönnu og
osturinn látinn útí. Hitaður við meðalhita
í 4-5 mínútur þar til gullin brúnn, snúið
við og hin hliðin elduð eins.
Salatsósan hrist vel og hellt yfir salat-
blöðin. Osturinn settur út á og meiri
salatsósu hellt yfir. Borið fram strax.