Vikan


Vikan - 19.11.1987, Síða 57

Vikan - 19.11.1987, Síða 57
Ekkert fararsnið á Michael Fox úr Fjölskylduböndum Hann er alltaf jafn smá- strákalegur, sama hvort hann er að leika uppann Alex Keaton í Fjölskylduböndum, tímaflakk- arann í Back to the Future eða framagosann f The Secret of My Success sem sýnd er í Laugarásbíói þessa dagana. Michael J Fox er einfaldlega pínulítill og barnalegur í fram- an þrátt fyrir að vera 26 ára gamall. Og á því græðir hann stórfé. Michael Fox og sjónvarps- þættirnir Fjölskyldubönd eiga hvoru öðru mikið að þakka. Þætt- irnir gerðu hann vinsælan og hann er aftur á móti ómissandi fyrir þættina eigi þeir að halda vinsældum sínum. Eftir að hafa slegið í gegn í Fjölskylduböndum var Michael boðið aðalhlutverkið í myndinni Back to the Future. Myndin varð vinsælasta mynd ársins og litli sakleysislegi drengurinn var skyndilega orðinn súperstjarna. Forráðamenn sjónvarpsþáttanna fylltust þá skelfingu þar sem van- inn er að sjónvarpsstjörnur yfir- gefi þættina sína um leið og þær eru búnar að hasla sér völl í kvik- myndum. Ekkert slíkt er þó á dagskránni hjá Michael. Hann segir að án þáttanna væri hann ekkert, þeir hafi gert hann að því sem hann er í dag, og honum finnist hann standa í þakkarskuld við fram- leiðendurna fyrir að hafa gefið honum tækifæri. Það er samt enginn dans á rós- um að leika bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. f raun er það alveg tvöföld vinna og mjög krefjandi. Þegar Michael var að leika í Back to the Future vann hann frá sjö á morgnana fram yfir miðnætti sex daga í viku. Fyrir hádegi las hann handrit og mætti svo á æfingar og tökur fyrir þætt- ina. Þegar því var lokið seint um eftirmiðdaginn fór hann beina leið í tökur á myndinni sem stóðu svo fram yfir miðnætti. Síðan hefur hann varla átt frí- dag og verkefnin hrannast upp auk þess sem vinna þarf einn sjónvarpsþátt í hverri viku. Mic- hael er þó ekki á því að álagið sé of mikið. - Ég er alger vinnusjúkl- ingur. Mér Ifður illa ef ég hef ekki einhver verkefni til að einbeita mér að, segir hann. Þó hefur hann ekkert á móti því að sletta úr klaufunum þegar tækifæri gefst og hann er þekxtur fyrir að koma ótrúlega miklu magni af bjór ofaní ekki stærri iíkama. Þegar blaðamaður spurði hann hvað væri mesta magn sem hann hefði drukkið, svaraði hann: - Áður fyrr gat ég, eftir staðgóða máltíð sem samanstóð af tveimur pylsum, hamborgara og frönskum, komið niður ellefu dósum. Síðan brosti hann kank- víslega og sagði: - En ég var mun eldri þá. Ég er miklu yngri núna. Þrátt fyrir alla velgengnina hef- ur Michael þó reynt að halda sér á jörðinni. Hann heldur mjög góðu sambandi við fjölskyldu sína og reynir að ofmetnast ekki. Hann segir meira að segja að sér finnist visst óréttlæti í því að hon- um skuli hafa vegnað svona vel á meðan ekkert gengur hjá öðrum. - Það tók mig langan tíma að sættast við sjálfan mig. Þegar manni gengur svona vel á maður það til að segja „hvað hef ég gert til að verðskulda þetta?“. Manni finnst maður vera hálfgerður svik- ari. Hvers vegna ætti ég að geta leyft mér hluti sem fæstir geta lát- ið sig dreyma um? Svo mikið er víst að þegar partýið er búið og öllum er sama um hvað Michael Fox er að gera verð ég mjög sátt- ur með mitt. Ég vona samt að þetta endist I nokkur ár í viðbót. Ég er alger vinnusjúklingur. Mér líður illa ef ég hef ekki eitthver verkefni til að einbeita mér að segir Michael Fox sem ekki þarf að kvarta yfir velgengninni. „ VIKAN 55

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.