Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 3
VIKAN 28. JANÚAR 1986
VIKAN ÞRIÐJA MEST LESNATÍMARITIÐ
Vikan mestiesin at
allri fjölskyldunni
Þórarinn Jón Magnússon, sem
keypti Vikuna á síðasta ári, sést
hér blaða í gömlum árgangi af
þessu sívinsaela heimlisblaði.
Ljósm.: Gunnlaugur Rögnvaldsson
Niðurstöður úr
könnun á lestri
dagblaða og tímarita
liggja nú fyrir en
það var Verslunar-
ráð íslands sem lét
Félagsvísinda-
stofnun Háskólans
annast þessa
könnun.
Þaö eru ánægjuleg tíð-
indi fyrir okkur hér á Sam-
útgáfunni aö Vikan er nú
þriöja mest lesna tímaritiö
á markaðnum ásamt Nýju
lífi. í fyrsta sæti er Mannlíf
og í öðru sæti er Hús og
híbýli en það tímarit er
einnig gefið út af Sam-út-
gáfunni.
Sam-útgáfan tók við
rekstri Vikunnar á síðasta
ári og vitað var að tímaritið
var þá komið í mikla lægð.
Þær breytingar á efni og
útliti tímaritsins sem fram-
kvæmdar voru strax hafa
því heppnast vonum fram-
ar og mun verða haldið
áfram á þeirri braut sem
mörkuð var að gera tíma-
ritið að alhliða blaði fyrir
alla fjölskylduna.
Þegar athugaðar eru
niðurstöður í þessari
könnun kemur glögglega
fram að Vikan er það tíma-
rit sem mest er lesið af allri
fjölskyldunni en kannað
var sérstaklega hver væri
fjöldi heimilismanna sem
lesa þau tímarit er spurt
var um. í Ijós kom að í
40% tilvika lásu 4 eða fleiri
heimilismenn Vikuna og
var það langhæsta hlutfall-
ið í þessum flokki. Næst
kom Mannlíf en í 29% til-
vika lásu 4 eða fleiri heim-
ilismenn það tímarit.
NUDD
Nudd er tekið til rækilegrar
umfjöllunar í þessu tölu-
blaði Vikunnar og greinin
studd ljósmyndum sem
ljósmyndari Vikunnar tók
af Silju Kristjánsdóttur er
hún var með Unni Steins-
son sýningarstúlku og flug-
freyju á bekknum. Hér er
hins vegar mynd af Silju
ásamt Bandaríkjamannin-
um Rick Gaines þar sem
hann er að skýra henni frá
nýjustu handtökunum í
nuddi sem farið er að beita
í heimalandi hans þar sem
hann rekur fjölda nudd-
stofa. Gaines þessi kemur
reglulega hingað til lands
til að leiðbeina íslenskum
nuddurum eins og fram
kemur í greininni á bls. 12.
ÚTGEFANDI:
SAM-Útgáfan,
Háaleitisbraut 1,
105 Reykjavík.
Sími 83122.
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Hrafnkell Sigtryggsson
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Magnús Guðmundsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Bryndís Kristjánsdóttir
Menning:
Gunnar Gunnarsson
Blaðamenn:
Adolf Erlingsson
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Friðrik Indriðason
Ljósmyndarar:
Páll Kjartansson
Magnús Hjörleifsson
Útlitsteikning:
Sævar Guðbjörnsson
Setning og umbrot:
SAM-setning
Pála Klein
Sigríður Friðjónsdóttir
Árni Pétursson
Litgreiningar:
Korpus hf.
Filmusk., prentun, bókband:
Hilmir hf.
Dreifing og áskrift:
Sími 83122
VIKAN kemur út á fimmtudögum. Verð í
lausasölu 170 kr. Áskriftarverð: 550 kr. á
mánuði, 1650 kr. fyrir 13 tölublöð árs-
fjórðungslega eða 3300 kr. fyrir 26 blöð
hálfsárslega. Áskriftarverðið greiðist
fyrirfram. Gjalddagar eru i nóvember,
febrúar, maí og ágúst. Áskrift í Reykja-
vík og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
ATHUGIÐ: Ákjósanlegasta greiðslufyr-
irkomulagið er notkun EURO eða VISA.
VIKAN 3