Vikan


Vikan - 28.01.1988, Page 30

Vikan - 28.01.1988, Page 30
Stríðsleikur — Ósköpin munu dynja yfir snemma morguns, milli klukkan þrjú og fjögur. Of margir munu vita hvað sá dagur ber í skauti sér, of margir munu verða hræddir og of margir munu slas- ast aivarlega áður en yfir lýkur. Hætta er á að margir, úr báðum liðum, liggi í valnum... Því hópur stjórnmálamanna hefúr tekið ákvörðun: „Ryðjið Krist- janíu!“ — Á þennan hátt dramatísera dönsku blöðin hugsanlegar að- gerðir gegn Kristjaníu og full- yrða að leynileg áform séu full- mótuð, bæði hjá lögregluyfir- völdum og íbúum Kristjaníu. Jafhframt er velt vöngum yfir því hvort það verði lögreglan eða herinn sem ræðst til atlögu — eða . jafnvel sameiginleg aðgerð. Hvort skotvopn verði notuð og hvort Kristjaníubúar séu reiðubúnir til að mæta slíkri árás og hve lengi þeir telji sig geta varist. Talið er víst að fyrstu aðgerð- ir lögreglu eða hers verði að loka öllum inngönguleiðum inn í Kristjaníu til að koma í veg fyrir utanaðkomandi aðstoð ffá hústökufólki og öðrum stuðn- ingsmönnum. Því vitað er að Kristjaníubúar hafa komið sér upp símaaðvörunarkerfi til að geta m.a. kallað á utanaðkom- andi hjálp. Síðan mun stríðs- leikurinn hefjast með tilheyr- andi tækjum og tólum og hraðri stígandi. Sextán ára kaffitíma- snakk löggæslumanna verður loks raunveruleiki. En er það í verkahring lög- reglunnar að ata sig út fyrir póli- tikusa sem óttast að missa at- kvæði? spyrja sumir. Aðrir láta sig það litlu varða, glæpahyskið skuli á brott. Kristjanítar og rokkarar Hverjir eru þá þessir Kristjan- íubúar, þetta glæpahyski sem á að uppræta og helst tortíma? Varla er gamla hippalífið enn í algleymi þarna í Kristjaníu? Af lestri sumra dagblaða mætti í fljótu bragði ætla að íbúarnir væru glæpamenn upp til hóþa því varla líður sú vika að ekki blasi við flennifyrirsagn- ir og myndir af alls kyns glæpum sem ffamdir eru á staðnum. Og nýlega gerðist það að póstmenn og aðrir opinberir starfsmenn hættu að fara inn í hverfið. M.a.s. lögreglan er treg til. En staðreyndin er sú að það er æði mislitur hópur sem held- ur til í Kristjaníu. Kristjanítarnir svokölluðu, eða hinir þvottekta 30 VIKAN Indkobscentralen og útsýnistum. Kristjaníubúar, hafa búið á staðnum í mörg ár, sumir allt lfá upphafi. Þeir voru um tíu þús- und er flest var en eru nú um eitt þúsund að staðaldri og eru flestir hverjir ósköp venjulegar heiðvirðar sálir á fertugs- og fimmtugsaldri. Þetta fólk hefúr byggt upp sitt eigið samfélag, sitt eigið ríki, sem út á við líkist hverju öðru smáþorpi. Það kýs að fá að lifa áffam í friði og ró samkvæmt eigin lögum og reglum. Aðrir íbúar eða dvalargestir hafa leitað skjóls í fríríkinu af dálítið öðrum ástæðum en hinir fýrrnefndu. Þeirra á meðal eru rokkararnir svonefndu, hvers kyns smáglæponar sem og eftir- lýstir afbrotamenn. Það er fýrst og ffemst þetta utangarðsfólk sem sér fjölmiðlum fyrir æsi- fréttum. Kristjanítarnir eru eðli- lega lítt hrifnir af þessum ná- grönnum en hafa reynt að sýna þolinmæði og beðið átekta. Upp úr sauð þó nýlega hjá Kristjanít- unum eftir að foringi rokkara- hljómsveitarinnar Bullshit varð uppvís að morði og líkið fannst þakið steinsteypu í gólfi mótor- hjólaverkstæðis hljómsveitar- innar á staðnum. Kristjanítarnir fengu lögregluna til að fjarlægja eigur rokkaranna, lokuðu hús- inu og vakta nú svæðið í sjálf- boðavinnu til að varna þeim inngöngu. Óvíst er hver eftir- máli þessara aðgerða verður, því Bullshit meðlimirnir eru óhemju atkvæðamiklir og höfðu þar að auki tögl og hagldir í fíkniefnasölu staðarins. Sumir eru þeirrar skoðunar að hin „félagslega tilraun" í Kristjaníu hafi mistekist, því óhjákvæmilega sæki utangarðs- fólk og afbrotamenn í sælu frí- ríkisins. En aðrir kenna um sí- felldu óvissuástandi sem ríkt hefur um framtíð staðarins, það hafi komið í veg fyrir að tekið hafi verið raunhæft á málum í tíma. Einnig er talið víst að helstu ástæðuna fyrir brottflutn- ingi margra Kristjaníta megi rekja til hins síðarnefhda — þó einhverjir kunni einfaldlega að hafa týnt draumnum sínum. í næstu Viku: Stefiiumót við Ole í Kristjaníu. — Er Krist- janía algjört ruslabæli sem þyrfti að tortíma hið bráð- asta?

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.