Vikan - 29.06.1989, Síða 4
VIKAN kostar kr. 180 eintakið í
áskritt. Áskriftargjaldið er innheimt
sex sinnum á ári, fjögur blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn. Aðrir fá senda
gíróseðla. VIKAN kemur um sinn út
aðra hverja viku. Tekið er á móti
áskriftarbeiðnum í síma 83122.
Utgefandi:
Sam-útgáfan
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Ingvar Sveinsson
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Markaðsstjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Flöfundar efnis í þessu tölublaði:
Þorsteinn Eggertsson
Pétur Steinn Guðmundsson
Guðný Dóra Gestsdóttir
Jóhanna Harðardóttir
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Ragnar Lár
Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir
Guðm. Sigurfreyr Jónasson
Björn Hróarsson
William Faulkner
Guðjón Baldvinsson
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Gísli Ólafsson
Fríða Björnsdóttir
Ljósmyndir í þessu tölublaði:
Magnús Hjörleifsson
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Björn Hróarsson
Páll A. Pálsson
Gunnar Leifur
Katrín Elvarsdóttir
Egill Egilsson o.m.fl.
Setning og umbrot:
Sam-setning
Útlitsteikning:
Ásgrímur Sverrisson
Þórarinn Jón Magnússon
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndina tók Katrín
Elvarsdóttir af Elínu Reynisdóttur
klæddri samkvæmt sumartiskunni í
ár. Fötin eru frá versluninni 17 við
Laugaveg og í Kringlunni.
Við segjum nánar frá sumartískunni
á bls. 28-33.
6 Benedikt Gröndal sendiherra
setti fram tillögu að hugsanlegri
sjónvarpsdagskrá íslensks sjón-
varps fyrir aldarfjórðungi síðan
hér í Vikunni. Vikan og Benedikt
rifja upp þessi dagskrárdrög og
bernskuspor sjónvarpsins.
12 FM 95,7 heitir hún einfaldlega
nýja útvarpsstöðin sem hóf út-
sendingar fyrr í þessum mánuði.
Vikan ræddi stuttlega við fjár-
málastjóra stöðvarinnar.
14 Seinni sambúðin er til ræki-
legrar umfjöllunar í þessari Viku.
Er hún betri eða er þetta allt sama
tóbakið? Rætt er við tvítugan
mann í síðara hjónabandi, tæp-
lega fertuga konu, rúmlega þrí-
tuga konu, tvítugan homma í
sambúð með síðari manni og
mann á fimmtugsaldri. Auk þess
er rætt við félagsráðgjafa og
prest.
20 Ritarastarfið heillar marga
konuna. Þar er boðiö upp á hrein-
lega vinnu, snyrtilegt umhverfi,
góðan vinnutíma og þokkaleg
laun. Vikan átti viðtal við þrjár
konur, sem útskrifast hafa úr Rit-
araskóla Stjórnunarfélags
Islands.
24 Er nafnið þitt eða barnsins
þíns á listanum á blaðsíðu 24? Ef
svo er gæti glæsilegt reiðhjól frá
Fálkanum af gerðinni Velamos
eða Schauff komist í ykkar hend-
ur þann 13. júlí nk. Kannaðu mál-
ið nánar.
EFNI5YFIRLIT
27 Hjónin Helga og Helgi eru
frægt par og oftast nefnd í sömu
andránni. Þau hafa oft leikið
saman. Núna í leikritinu Hver er
hræddur við Virginíu Woolf?
28 Sumartískan er kynnt á sex
síðum í þessu blaði, en Vikan
spurðist fyrir um tískuna í nokkr-
um tískuverslunum borgarinnar.
34 Ragnar Lár raupar og rissar í
þessari Viku um fræga barátt-
ujaxla, séra Jakob Jónsson, Björn
í ASÍ, Kristján í LÍÚ og Sigurð
Sigurðsson útvarpsmann.
35 Hjá Kim heitir veitingastaður í
borginni. Eigandinn er frá Kóreu,
en í viðtali við Vikuna segist hann
ekki vera lengur Kóreubúi. „Við
hjónin skruppum þangaö árið
1978 og þá fannst mér mikil
mannmergð þarna og áttaði mig á
því hvað mér þótti gott aö vera
einmana á íslandi."
38 Endurkoma Jesú Krists og
spádómar þar að lútandi er um-
fjöllunarefni Guðmundar S. Jón-
assonar (þess sama og skrifaði
bókina um spámanninn Nostra-
damus). Forvitnileg grein sem
vekur til umhugsunar.
42 Ný hárgreiðsla - nýtt útlit.
Vikan fylgdist með fulltrúa frá
snyrtivörufyrirtækinu Sebastian
er hann hélt sýnikennslu fyrir
starfsfólk hárgreiðslu- og snyrti-
stofa nýlega.
44 Vinsælasta barnastjarna
sjónvarps og kvikmynda í dag
heitir Fred Savage. Hann leikur
m.a. aðalhlutverkið i sjónvarps-
myndaflokknum „Bernskubrek" á
Stöð 2. Hann þykir einstaklega
góður svipbrigðaleikari. Hann
hefur þó aldrei lært leiklist.
46 Eiríksjökull, stærsti stapi
jarðar, er til umfjöllunar á síðu
Björns Hróarssonar jarðfræðings
í þessari Viku.
48 Smásagan er eftir William
Faulkner og heitir „Kona af háum
stigurn".
54 Parísarferðin eftirsóknar-
veröa, sem farin verður í næsta
mánuöi í boði Vikunnar, Flugleiða
og tískukóngsins Pierre Cardin,
verður dregin út 13. júlí. Þá er
eins gott að þú verðir búinn að út-
fylla og senda inn seðilinn með
lesendakönnun Vikunnar. Og svo
býða líka tvær boðsferðir til Costa
del Sol með Veröld fyrir tvo hvor
eftir því að verða dregnar út...
56 Stúlkan með súrefnisgrím-
una er yfirskrift fréttar af þriggja
ára gamalli enskri telpu, sem er
með torkennilegan lungnasjúk-
dóm, sem veldur því að hún er
bundin súrefnisgrímu á daginn og
súrefnistjaldi á næturnar.
57 Hafa konur og karlar áhyggj-
ur af því sama þegar í bólið er
komið? Vikan birtir athyglisverðar
niðurstöður bandarískrar könnun-
ar þar að lútandi.
60 Pósturinn birtir tvö bréf og
fjölda auglýsinga frá þennaglöðu
fólki út um allan heim sem vill
komast í bréfasamband við þig.
62 Óæskileg hár eru margri
manneskjunni til mikils ama. Vik-
an segir frá rafmagnsmeðferð
sem beitt er í barátlunni við
óæskilegu hárin og nokkrar
snyrtistofur hér á landi eru farnar
að beita.
64 Krossgáta.
65 Stjörnuspá og síðari hluti um-
fjöllunar um þá sem fæddir eru í
krabbamerkinu.
66 Unga leikkonan Uma Thur-
man hefur vakið mikla athygli fyrir
leik sinn í kvikmyndinni „Danger-
ous Liaisons", sem sýnd hefur
veirð hér undanfarnar vikur við
mikla aðsókn. Vikan segir stutt-
lega frá þessari hæfileikaríku leik-
konu.
4 VIKAN 13. TBL.1989