Vikan - 29.06.1989, Síða 5
SUMARBROSIÐ 1989
Til mikils að vinna
i brosmyndakeppninni
Ferð til Hamborgar - filmur og sautjón myndavélar
í síðasta tölublaði Vikunnar kynntum við nýjan leik. Ljósmynda-
samkeppni Kodak Express Gæðaframköllunar og Vikunnar. Það er
einfalt að taka þátt. Þú þarft einungis að taka einhverja broslega
mynd eða af brosandi fólki eða dýrum. Verðlaun fýrir tvær bestu
sjálftakara. Verðmæti hverrar vélar er
9900 krónur. Sextán heppnir ljósmyndar-
ar fá þessa vél í Sumarbrosi Vikunnar og
Kodak.
myndirnar eru glæsileg.
TEXTI: PÉTUR STEINN GUÐMUNDSSON
Fyrstu verðlaun er helgarferð fyrir tvo
til Hamborgar með ferðaskrifstofunni
Sögu að verðmæti 64.000 krónur. Gist
verður á glæsilegu hóteli, Hotel Reichshof,
í hjarta Hamborgar. Þaðan er aðeins
þriggja mínútna gangur í aðalverslunar-
götuna. Hamborg er opnari en margar aðr-
ar þýskar borgir og þá ekki síst vegna AI-
stervatns í miðri borginni. Það ætti engum
að leiðast í Hamborg. Söfh, garðar og tón-
leikahús er aðeins lítil upptalning á því
sem taka má sér fyrir hendur. Fyrir þá sem
vilja ferðast „með stæf“ má segja ffá því að
hægt er að leigja sér Rolls Royce og kosta
þrjár klukkustundir aðeins 450 þýsk mörk,
sem samsvarar um 13.500 krónum, með
bílstjóra auðvitað.
Önnur verðlaun er CHINON GENESIS
GS-7 myndavél. Hún er í hópi svokallaðra
„Bridge Camera“ eða „brúar myndavéla“
og er búin öllum helstu eiginleikum lítilla
kompakt-véla og stóru SLR myndavélanna.
CHINON GENESIS er tákn nýrrar kynslóð-
ar þar sem allar nýjungar sameinast í einni
vél. Lögun og hönnun er einnig frábrugðin
öðrum vélum sem við eigum að venjast.
Meðal eiginleika er sjálfvirk skerpustilling
og 35 til 80 mm aðdráttarlinsa með
macro-stillingu. Alsjálfvirkt flass er alltaf
reiðubúið ef birtan er ekki nægjanleg og
sjálfvirk ftlmufærsla er einnig til staðar.
Verðmæti vélarinnar er um 21.000
krónur.
Tuttugu aukaverðlaun verða veitt fyrir
athyglisverðar myndir. Gullfllman frá
Kodak ásamt framköllun. Þessi fllma gefur
betri skerpu og hefur víðara lýsingarsvið
sem hjálpar þeim sem nota einfaldar
myndavélar með innbyggðu flassi.
Fjórar viðurkennlngar verða veittar í
hverjum mánuði á meðan leikurinn stend-
ur yflr, fyrir athyglisverðar myndir. Þessar
myndir birtast hér á síðum Vikunnar og í
næsta tölublaði verða fýrstu myndirnar
birtar. Höfúndar myndanna fá eina full-
komnustu myndavélina frá Kodak, Kodak
AF 2. Hún hefúr innbyggt sjálfvirkt flass,
sjálfvirka filmufærslu, skerpustillingu og
Til þess að geta tekið þátt í leiknum
þarf myndin að vera tekin á Kodak filmu
og framkölluð hjá Kodak Express Gæða-
framköllun sem er víðs vegar um landið:
□ Verslanir Hans Petersen, Bankastræti,
Glœsibœ, Austuweri, Kringlunni og
Lynghálsi.
□ Ljósmyndaþjónustatt, Laugavegi 178.
□ Kaupstaður í Mjódd.
□ Veda, Hamraborg, Kópavogi.
□ Filmur og framköllun, Strandgötu,
Hafnarfirði.
□ Ljósmyndahúsið, Dalshrauni 13, Hafn-
atfirði.
□ Hljómval, Keflavík.
□ Bókaverslun Andrésar Níelssonar,
Akranesi.
□ Bókaverslun Jónasar Tómassonar, ísa-
firði.
□ Pedrómyndir, Hafnarstrœti og Hofsbót,
Akureyri.
□ Nýja filmuhúsið, llafnarstrœti, Akur-
eyri.
□ Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki.
□ Vömhús KÁ, Selfossi.
13. TBL. 1989 VIKAN 5