Vikan - 29.06.1989, Síða 9
5JÓMVARP
Þessi teikning fylgcli viðtalinu við Benedikt Gröndal í Vikunni fyrir 25 árum. Myndatextinn var
á þessa leið: „íslenska sjónvarpsstöðin þarf ekki að vera neitt stórhýsi til að byrja með. Hér er
teikning af lítilli sjónvarpsstöð, en stöðin hér mundi verða eitthvað í líkingu við hana.“
tæki voru dýr, miklu meiri fjár-
festing heldur en þau eru í
dag, og við vissum að fólk
myndi ekki leggja út í þessa
fjárfestingu nema það væri til
einhvers að vinna — að dag-
skráin væri það góð að það
borgaði sig. Og þá settum
við upp hugsanlegar dag-
skrár. Það eru ákaflega margar
hugmyndir þarna sem síðar
urðu að veruleika. Ég skal
nefna þér eina. í einni af ferð-
unum, þegar við vorum að
kanna þetta, var ég staddur í
London og sá þar í sjónvarpi
fornleifafræðing sem var með
ýmsa smámuni fyrir framan sig
og tók þá upp, talaði um þá og
lýsti þeim. Mér fannst þetta
vera gott; auðvelt í ffam-
kvæmd og við áttum nóg af
góðum mönnum. Ekki síst
hafði ég í huga þáverandi
þjóðminjavörð, Kristján
Eldjárn. Þetta var síðan
framkvæmt. „Munir og minjar"
var þáttur sem Kristján Eldjárn
var með og sumir hafa sagt að
þessir sjónvarpsþættir hans
hafi kynnt hann inni á hverju
heimili og að mörgu leyti ver-
ið undirstaða þess að fólk fékk
það gott álit á honum að hann
var kosinn forseti íslands í
harðri samkeppni við vinsælan
stjórnmálamann. Svo að þetta
hafði allt sína þýðingu.
Héma sé ég líka þátt sem
heitir „Um daginn og
veginn“ sem hafði lengi
verið fastur þáttur í útvarpi.
Ja, þetta er farið að koma aft-
ur því að á Stöð 2 eru þættir
sem eru svipaðir, „Leiðarinn".
En hefúr í dagskrá ís-
lenska sjónvarpsins nokk-
um tíma verið sent út eins
hátt hlutfall af íslensku efni
og gert var ráð fyrir í upp-
hafi?
Ég held að jafnvel þessar
dagskrár séu ekki með nema
um 35 prósent af íslensku efni
af því að liðirnir sem þú sérð
þarna eru mislangir. Kynning á
tíu mínútna þætti er álíka löng
og á tveggja klukkutíma filmu.
Svo að við töldum það fljót-
lega vel viðunandi að íslenskt
efhi, að meðtöldum fféttum,
yrði svona kringum 35
prósent. Það held ég að hafi
haldist nokkuð vel. Það getur
engin smáþjóð gert ráð fyrir
meiru. Það þarf bara að velja
vel það sem eftir er.
Hvemig er þetta annars
staðar á Norðurlöndunum?
Ég þekki nú ekki prósent-
urnar. En þetta er fúrðu
nálægt. Þeir nota gríðarlega
mikið erlent efhi. Þetta er nú
einu sinni svona að Engilsaxar,
þeir Bretar og Bandaríkja-
menn, urðu fljótt ráðandi í
kvikmyndum og framleiðslu
sjónvarpsefnis. Þeir hafa
heimsmál. Fyrst þegar við fór-
um að spyrja um efhi í Þýska-
landi og Ítalíu þá bara gláptu
menn þar á okkur og sögðu:
„Hva, við höfum það ekki til-
búið.“ Vandinn við að fá keypt
sjónvarpseíni er sá að höf-
undarrétturinn er svo flókinn.
Bretar og Bandaríkjamenn
höfðu hins vegar lært það á
ffamleiðslu kvikmynda að þeir
gátu keypt höfundarréttinn af
öllum sem unnu að viðkom-
andi verki; öllum sem unnu að
lýsingu og hljóði, myndatöku,
búningum, förðun og fleiru.
Sennilega hafa þeir getað borg-
að þessu fólki mjög vel en fyrir
bragðið gátu þeir selt hverja
mynd án nokkurra ffekari
vafhinga. En ef svona samningar
eru ekki til er þetta voðalegt
vandamál.
Hvað þá um norrænu
samvinnuna á þessum svið-
um - hugmyndina um
Tele-X og allt það?
Það hlaut að koma að því að
Norðurlöndin, sem hafa svo
náið samstarf, sérstaklega í
menningarmálum, hugsuðu
sér að falla ekki í heimssam-
keppni um sjónvarp til að geta
orðið nokkuð sterkur aðili en
það hefur bara hreinlega ekki
tekist. Norðurlöndin sem einn
sjónvarpsmarkaður eru ekki
spennandi því að tungumálin
eru erfið. Þeir skilja ekki mikið
af íslensku og finnsku í
Svíþjóð.
En samt hafa þessar þjóð-
ir alltaf skipst á efni.
Samstarf sjónvarpsstöðv-
anna er gamalt og við nutum
góðs af því á sínum tíma. Danir
settu upp námskeið fyrir okk-
ur og við sendum hóp íslend-
inga til að læra rekstur sjón-
varpsstöðva í Danmörku. Svíar
lánuðu okkur heilan strætis-
vagn sem var innbyggð sjón-
varpsstöð og lengi vel var
hann stjórnherbergi og hafður
fyrir utan sjónvarpshúsið við
Laugaveg. Útsendingum var
stjórnað úr honum þangað til
við gátum keypt allar græjurn-
ar. Norðmenn sendu okkur
sérfræðinga sem hjálpuðu okk-
ur mikið í sambandi við dreifi-
kerfið. En við athuguðum líka
13. TBL. 1989 VIKAN 9