Vikan - 29.06.1989, Blaðsíða 14
Er seinni sambúð betri
eða er þetta allt sama tóbakið?
TEXTI: GUÐNÝ DÓRA GESTSDÓTTIR / LITLJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Ymsir hafa haldið því fram að
seinni sambúð sé betri en sú
fyrri. Ástæðan sé m.a. sú að
fólk hafi öðlast ákveðna
reynslu úr fyrra hjónabandi sem geti
nýst í því seinna. Þessir sömu aðilar
segja ennfremur að fólk geri einfald-
lega ekki sömu vitleysuna tvisvar og
þess vegna sé seinna hjónabandið
betra. Þessi rök telja aðrir ansi hald-
lítil og benda á að forsendur hjóna-
banda séu svo margvíslegar að full-
yrðingar af þessu tagi standist ekki
enda afar erfitt að slá einhverju
föstu í þessum efnum.
Hjónabandi getur lokið með
þrennum hætti, við lát maka, ógild-
ingu hjónabands eða lögskilnað.
Þetta er flokkun sem Hagstofan
styðst við í skráningu skilnaða
fólks. En engin flokkun er til yfir
persónulegar ástæður skilnaða
■ Vikan ræðir við
nokkra einstaklinga
sem eru í seinni
sambúð eða eiga
tvær sambúðir að
baki.
enda erfitt að henda reiður á þeim
því þær eru bæði margvíslegar og
flóknar.
Frá árunum 1961-65 til 1986-87
hefur tíðni lögskilnaða rúmlega tvö-
faldast. Árið 1987 urðu 40% hjú-
skaparslita vegna andláts
mannsins, 19% vegna andláts kon-
unnar og 40% vegna lögskilnaðar.
Ennfremur entust hjónabönd að
meðaltali skemur fram til 1980. En
jafnvel þó að skilnuðum hafi fjölgað
virðist ástæðan ekki vera sú að fólk
vilji búa eitt. í mörgum tilfellum fer
fólk í aðra sambúð og oft líður ekki
langur tími þar til ný sambúð hefst.
Vígslum áður gifts fólks, þá einkum
fráskilins fólks, fjölgaði talsvert fram
á áttunda áratuginn en ekki sem
neinu nemur síðan. Hafa ber í huga
að pör hafa í vaxandi mæli valið
þann kost að búa í óvígðri sambúð.
Hér er rætt við nokkra einstak-
linga sem allir eiga það sameiginlegt
að vera í seinni sambúð eða eiga
tvær sambúðir að baki. Ekki er ætl-
unin að túlka þessar frásagnir á
neinn hátt. Þetta eru einungis dæmi
um mismunandi reynslu fólks af
seinni sambúð. Ennfremur er rætt
við félagsráðgjafa og prest, en það
eru þeir aðilar sem hvað mest af-
skipti hafa af þeim málum er varða
hjónabandið og sambúð fólks.
14 VIKAN 13. TBL.1989