Vikan - 29.06.1989, Side 26
ATVimiUMÁL
Guðlaug við heimilisstörfin. „Maðurinn minn tók því vel þegar ég hugleiddi að hefja
nám í Ritaraskólanum og það hjálpaði hka að komast af stað.“
E.S.G.: Ég reyni líka að komast á hest-
bak eins oft og ég get þegar ég er fyrir
austan hjá ættingjunum. Ég átti hesta einu
sinni og hef aldrei losnað við delluna. Ann-
ars eru aðaláhugamál mín handavinna og
ferðalög. Ég bíð spennt núna eftir sumrinu
svo ég geti komist í útilegu með vinum
mínum og kunningjum. Það er það
skemmtilegasta sem ég veit.
Eftir að viðtalinu var formlega lokið sát-
um við nokkra stund við kaffiborð og
ræddum vinnuaðstöðu og anda á vinnu-
stað. Allar voru þessar konur sammála um
5ITTHVAÐ
að á hverjum vinnustað væri nauðsynlegt
að fólk gæti ræðst við á opinskáan og heið-
arlegan hátt og að það þætti sjálfsagt að
hæla fólki fyrir það sem vel er gert, jafn-
framt því sem það þætti sjálfsagt að gagn-
rýna þegar þess þyrfti með, en þá á já-
kvæðan hátt. Þeim fannst bera of mikið á
samkeppni á vinnustöðum firekar en sam-
starfi og því miður væru það oftar konur
sem ættu hlut að máli en karfar. En þær
voru allar bjartsýnar á starf kvenna á
vinnumarkaðinum og ánægðar með það
skref sem þær stigu þegar þær ákváðu að
takast á við skólann til að láta drauminn
um betra starf rætast □
Ný nöf n á gömlum stööum
Tvö sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur
hafa skipt um nafh eftir að þau urðu
kaupstaðir. Mosfellsbær hét áður Mosfells-
sveit og Garðabær hét áður Garðahreppur.
Svona nafhabreytingar eru að vísu ekki al-
gengar hér á landi en úti í löndum er tölu-
vert um þetta. Heilu landsvæðin skipta um
nafh ef svo ber undir.
Landið sem heitir Eþíópía í dag hét einu
sinni Abbyssinía og Zaire hét Belgíska
Kongó. Bangladesh hét áður Austur-Pak-
istan en þar áður var landsvæðið kallað
Bengal og Sri Lanka hét Ceylon, Sambía
var áður Norður-Ródesía og Simbabve var
Suður-Ródesía, Ghana gekk undir nafhinu
Gullströndin, Taiwan hét Formósa, Thai-
land var Siam og íran hét Persía.
Mun fleiri lönd hafa skipt um nafh og
þess vegna gætum við íslendingar hæglega
skipt um nafh á landinu okkar ef við fyll-
umst einhvern tíma minnimáttarkennd út
af kuldalegu nafni á því. Við gætum t.d.
skipst á nafhi við Grænlendinga eða kallað
landið Frón. Og þó, ísland er orðið það vel
þekkt og vel kynnt erlendis að það væri
bara asnalegt.
Svo hafa ýmsar stórborgir skipt um nafn
líka. Endur fyrir löngu stóð borg við
Svartahaf sem gekk undir nafhinu Nýja
Róm. Annars kölluðu Grikkir hana Býsant-
ínum og hún var seinna nefnd Konstantín-
ópel en heitir núna Istanbúl. Osló, höfúð-
borg Noregs, hét einu sinni Kristjanía,
Gdansk í Póllandi hét Danzig, Leníngrad
hét Sankti Pétursborg og tvær amerískar
borgir skiptu svo rækilega um nafh að þær
urðu nær óþekkjanlegar á eftir. Chicago í
Illinoisfylki var áður Fort Dearbom í Ind-
jánahéraði og New York í fylkinu New
York hét áður Nýja Amsterdam í Nýja
Hollandi. Borgin Torontó í Ontaríó í Kan-
ada hét áður Fort Rouillé í Nýja Frakk-
landi. Nokkrir staðir á íslandi hafa orðið
fyrir nafhabreytingum áður en kaupstað-
irnir í nágrenni Reykjavíkur breyttu um
nafh. Gerðar á Suðurnesjum hétu áður
Skagagarður. Akranes hefur lengi gengið
undir nafhinu Skipaskagi, Akureyri er ekki
svo mjög gamalt nafh á byggðinni sunnan
Oddeyrar við Eyjafjörð og einu sinni hét
Grundarfjörður á Snæfellsnesi Grafarnes.
Frh. af bls. 23
og peninga í þetta nám og sá fram á at-
vinnuleysi að mér fannst. En þetta bjargað-
ist, ég var ekki atvinnulaus nema í viku. Ég
var að mála baðherbergið þegar hringt var
í mig og ég boðuð í viðtal eftir hálftíma.
þetta var svakalegt, ég var með málning-
una í hárinu, baðherbergið allt í rúst og ég
eins og aumingi til fara. En einhvern veg-
inn komst ég og fékk vinnuna í Pharmaco
þótt ég kæmi þarna svo að segja beint úr
sturtunni, blaut og skellótt.
Mér líkar alveg ágætlega. Ég vinn frá
8-4 og hef þokkaleg laun. Vinnan er fólgin
í að ganga frá pöntunum, gera skýrslur og
sendast smávegis. Mér finnst góð tilbreyt-
ing í því. Þetta er fínt.
Hin hliðin
G.Þ.I.: Það er margt annað en vinnan og
fjölskyldan sem tekur upp tímann. Ég hef
mjög gaman af félagsmálum og tek mikinn
þátt í þeim. Auk þess stunda ég badminton
einu sinni í viku með vinnufélögunum,
það er mjög gaman. Svo má ekki gleyma
hundinum mínum. Ég á fjögurra ára gamla
poodle-tík sem mér þykir mjög vænt um.
Hún er eitt af aðaláhugamálunum. Það er
gaman að því hversu skynsamir og góðir
félagar hundar eru bæði fyrir börn og fúll-
orðna. Það er enginn einn sem á hund.
K.S.: Ég tek líka töluvert þátt í félags-
störfúm. Það er bara verst hvað tímarnir í
sólarhringnum eru alltof fáir. Mig vantar
miklu fleiri til að koma áhugamálum mín-
um fyrir. Ég gef mér helst tíma fyrir hesta-
mennskuna, hún er stór hluti af lífinu
ásamt köttunum sem eru eiginlega manns-
ins míns. Svo hef ég mjög gaman af handa-
vinnu og prjóna töluvert og sauma fatnað.
Ég hef alltaf gaman af því að fara ekki
troðnar slóðir; að sauma fötin sín sjálfur
gefur manni tækifæri til að hanna sinn eig-
in stíl. Ég hef líka mjög gaman af því að
ferðast en hef því miður aldrei haft nógu
mikinn tíma til þess að sinna því ennþá.
26 VIKAN 13. TBL. 1989