Vikan - 29.06.1989, Blaðsíða 42
DULFRÆÐI
Arið 1961 staðhæfði Joseph Simonton, sem býr í
Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum, að geimskip
hefði lent í húsagarði hans og utanjarðarvera
gcngið út og geflð honum pönnuköku. Til þess
að kanna nánar þessa ótrúlegu frásögn sendi
bandaríski flugherinn dr. J. Allen Hynek á
vettvang. Dr. J. Allen Hynek er stjörnufræðingur
og var á þeim tíma vantrúaður á lýsingar á fljúg-
andi fúrðuhlutum og flokkaði þær undir missýn-
ir. Hann færði vísindamönnum flughersins þessa
fágætu pönnuköku til rannsóknar og kom í ljós
að hún var að öllu leyti eðlileg og innihélt nær-
ingarríkt heilhveiti. Dr. Hynek álítur að reynsla________________
Josephs Simonton hafi verið raunveruleg. Dr. Jacques Vallee rannsakaði jafnframt
þennan atburð og er sannfærður um að Simonton hafl sagt satt. Simonton hefúr
sjálfúr enga hugmynd hvers vegna hann, af öllum íbúum jarðar, var valinn til þess
að veita þessari óvenjulegu gjöf viðtöku.
Efst er teikning Iistamanns af lýsingu Simontons á geimfarinu sem heimsótti hann
og innfellda myndin sýnir Joseph Simonton virða fyrir sér pönnukökuna sem utan-
jarðarveran gaf honum.
útihús, sem eru norðar og standa nokkru
hærra en íbúðarhúsið, enda virtist mér
hann ekki fara í meir en tveggja metra hæð
yflr þök þeirra. Hnöttur þessi virtist mér
sem hlemmur í laginu og nokkru stærri en
stór súpudiskur. Hann var hvítglóandi og
virtist blágrænn baugur umhverfis hann.“
Verulegur hópur fólks í ýmsum löndum
segist hafa orðið vitni að lendingu þessara
óþekktu loftfara og jafhvel staðið augliti til
auglitis við verur ffá öðrum stjörnum. Vís-
indamenn hafa rannsakað gaumgæfllega
nokkrar ffásagnir af þessu tagi. í því skyni
beittu þeir fygamælingum og ítarlegum
yflrheyrslum, líkt og um rannsókn á glæpa-
máli væri að ræða, einnig dáleiðslu og
læknisfræðilegu mati á andlegri og líkam-
legri heilsu viðkomandi einstaklinga. Þeir
gátu enga skýringu gefið á því hvað olli
reynslu þessa fólks. Engu að síður eru
margir vantrúaðir á að skynsemi gæddar
verur frá öðrum hnöttum ferðist um geim-
inn í geimskipi og komi til jarðarinnar
þegar þeim býður svo við að horfa.
Eru englar
utanjarðarmannkyn?
Englar eru annað fyrirbæri í Biblíunni
sem fæstir hafa nokkra trú á. Orðið engill
er komið úr grísku og merkir boðberi. Á
málverkum kirkjunnar eru englar yfirleitt
hafðir með vængi en í Biblíunni eru þeir
aldrei útskýrðir þannig. Samkvæmt Ritn-
ingunni eru englar mennskir í útliti, full-
komnari verur í mannsmynd, sem koma
„að ofan“; frá öðrum heimi. Þessar verur
grípa skyndilega inn í rás atburðanna á af-
gerandi hátt og hverfa síðan jafnharðan.
Svo virðist sem samneyti þeirra við jarðar-
búa sé haft í algeru lágmarki. í öndverðu
fóru „englarnir" hins vegar ekki huldu
höfði. f fyrstu Mósebók er sagt frá þeim
tíma er „synir Guðs höfðu samfarir við
dætur mannanna og þær fæddu með þeim
sonu.“ Þar segir: „Er mönnunum tók að
fjölga á jörðinni og þeim fæddust dætur
sáu synir Guðs, að dætur mannanna voru
fríðar, og tóku sér konur meðal þeirra, all-
ar sem þeim geðjuðust."
Jesú Kristur fúllyrðir margoft að hann sé
í tengslum við verur ffá öðrum heimi.
Hann sagði við samtíðarmenn sína: „Þér
eruð neðan að, ég er ofan að. Þér eruð af
icssum heimi, ég er ekki af þessum
heimi.“ Það má til sanns vegar færa að
utanjarðarverur hafi haff hönd í bagga
með upprisu Jesú Krists. í Lúkasarguð-
spjalli segir ffá því að þegar Kristur um-
myndaðist á fjallinu stóðu tveir menn hjá
honum og „ræddu um brottför hans, er
hann skyldi fúllna í Jerúsalem." Mennirnir,
sem lærisveinarnir álitu vera Móses og
Elía, hurfú á brott með „skýi“ eftir að hafa
ráðfært sig við Krist um upprisuna. Þá er
kunnugt að þegar María Magdalena og
fleiri konur fóru til að líta á gröf Jesús voru
þar fyrir „tveir menn í leiftrandi klæðum".
í Jóhannesarguðspjalli er talað um „tvo
engla í hvítum klæðum“. í Matteusarguð-
spjalli er sagt frá því að jarðskjálfti hafi
orðið „því engill Drottins sté niður af
40 VIKAN
himni“ og „var sem elding ásýndum og
klæðin hvít sem snjór“.
Hvað verður úr fyrirheitinu
um komu hans?
Utanjarðarverur koma síðan við sögu á
Olíufjalli þegar Jesú Kristur yfirgefur jörð-
ina í „skýi“ að lærisveinum sínum ásjáandi.
Þá stóðu hjá þeim tveir menn í hvítum
klæðum og sögðu: „Galilíumenn, hví
standið þér og horfið til himins. Þessi Jesú,
sem var upp numinn ffá yður til himins,
mun koma á sama hátt og þér sáuð hann
fara til himins." í Opinberun Jóhannesar
segir að Jesú Kristur komi aftur sem sigur-
vegari og að með honum verði „hersveit-
irnar, sem á himni eru“. Jesú Kristur segir
sjálfur að „eins og elding, sem leiftrar og
lýsir ffá einu skauti himins til annars, svo
mun Mannssonurinn verða á degi sínum“
(Lúkas 17:24).
Skyldu hinir fljúgandi diskar, sem þús-
undir manna víða um heim hafa séð, vera
þau „tákn á himni“ sem Kristur sagði að
yrði einn af fyrirboðum endurkomunnar?
Fátt er hægt að fúllyrða með vissu í þessu
sambandi en eitt er víst, ffamtíðin er og
hefúr ávallt verið fúrðulegri og ótrúlegri
en nokkur hefur getað ímyndað sér.
Þessi mynd af „fljúgandi diski“ var tekin úr farþegaflugvél Avena-flugfélagsins í Ven-
esúela árið 1963. Á myndinni sjást greinilega skuggar „disksins“ og flugvélarinnar.
Þetta loftfar minnir á „eldhnöttinn“ sem Þórður Þórðarson, oddviti Hrunamanna-
hrepps, sá árið 1952 yfir heimili sínu í Syðra- Langholti.
13. TBL. 1989