Vikan - 29.06.1989, Blaðsíða 44
HÁR
Ný hárgreiðsla
- nýtt útlit
TEXTI: BRVNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Eitthvað nýtt og öðruvísi. Þannig
er hárlínan í vor- og sumartísk-
unni hjá Sebastian í Ameríku og
til að íslendingar fengju að fylgj-
ast með því sem hjá þeim er að gerast þá
sendu þeir fulltrúa sinn til landsins,
Antony Maldonaldo, og á vegum hár-
snyrtistofunnar Kristu í Kringlunni hélt
hann námskeið og sýnikennslu fýrir starfs-
menn og eigendur hársnyrtistofa hér.
Antony er fæddur í Arizona og starfar á
stofu Sebastian í Los Angeles, á þessum
slóðum er víst heldur lítið um snjó og
kannski hafði Antony aldrei séð slíkt fyrir-
brigði áður. Hann var því líklega einn af
þeim fáu á landinu sem gladdist yflr snjó-
komu vorsins. Hingað kom Antony á leið
sinni heim frá Finnlandi þar sem hann
hafði haldið 14 námskeið á 10 dögum, en
auk þess að starfa dags daglega á Sebastian
stofu þá var Antony annar af tveim sýn-
endum frá Sebastian í heimsmeistara-
keppninni í Dusseldorf í ár. Hann hafði því
mörgu að miðla til starfssystkina sinna hér,
enda námskeiðið fjölmennt því á því voru
um 100 manns frá mjög mörgum stofúm,
þannig að vænta má að margar geti boðið
upp á Sebastian sumarlínuna.
Fólk þurfti Antony til að nota í sýni-
kennsluna og því var auglýst eftir ungu
fólki sem vildi láta snyrta hár sitt eftir
kúnstarinnar reglum og koma síðan fram
til að aðrir gætu skoðað árangurinn. Miklu
fleiri sóttu um en komust að og til að Viku-
lesendur gætu fylgst með störfum hár-
greiðslumeistarans og kynnst þessari nýju
línu þá létum við taka mynd af sýningar-
fólkinu áður en hann fór höndum um hár
þeirra og síðan aftur eftir að störfum hans
var lokið.
Antony notaði nýtt hárefni frá Sebastian,
Laminates, í hár allra stúlknanna, en það
efni gefur hárinu mikinn gljáa, hreyfan-
leika og gerir það silkimjúkt. Ekki eru not-
aðir nema örfáir dropar af efhinu í hárið
hverju sinni, þannig að dropateljari er á
glasinu. Sebastian menn segja að eftir að
permanent hafi ráðið ríkjum í áraraðir þá
megi nú fara að vænta þess að sjá aftur
sléttari, mýkri og rómantískari línur og
eru þeir því nú að vinna að hönnun efnis
sem hjálpar til við að ná þessum eiginleik-
um ffam í hárinu. Árangur vinnu Antonys
sést hér á myndunum, en eins og fyrr segir
voru teknar myndir af fólkinu fyrir snyrt-
ingu og efitir. Hanna Maja sá um förðun og
notaði Choices vor- og sumarlínuna frá
Trucco.
Antony Maldonaldo leggur síðustu hönd á greiðsluna.
J
42 VIKAN 13. TBL. 1989