Vikan - 29.06.1989, Side 48
UTIVERA
EIRÍKSJÖKULL
Itærsti stapi jarðar
^— > eosið var svo öfluet að áður cn nokkrir skriðiöklar norður ov hvors manns hani aö villasf frni
TEXTI OGLJÓSM.:
BJÖRN HRÓARSSON
JARÐFRÆÐINGUR
Hæsta fjall á vestanverðu
íslandi, vestan hábungu
Hofsjökuls, er jökul-
krýndur stapi norðvestan Lang-
jökuls sem heitir Eiríksjökull og
nær 1675 metra yflr sjávarmál.
Eiríksjökull hefur myndast við
feikimikið gos undir jökli, að öll-
um líkindum á síðasta kulda-
skeiði isaldarinnar fyrir 20—40
þúsund árum. tsaldarjökullinn
hefur þá verið um 1000 m þykk-
ur þar sem Eiríksjökull er nú.
Kvika hefúr brotið sér leið upp á
yfirborð og hlaðið upp móbergs-
hrúgald í geil í ísinn sem hitinn
frá jarðeldinum myndaði. Eld-
gosið var svo öflugt að áður en
yfir lauk náði það upp gegnum
1000 m þykkan ísinn og flæddu
þá hraun frá efsta hluta móbergs-
hrúgaldsins og yfir á ísinn. Þegar
jökullinn fór, fyrir um 10.000
árum, stóð svo móbergsstapinn,
sem nú nefnist Eiríksjökull, eftir
á sléttunni austan Borgarfjarðar.
Á veðrabestu tímabilum nú-
tímans (síðustu 10.000 árum)
varð Eiríksjökull jökullaus með
öUu en á kaldari tímabilunum,
eins og því sem nú stendur yfir,
myndast jökulhetta á Eiríksjökli.
Jökulbreiðan sem nú krýnir
jökulinn á sinn þátt í því að gera
hann að einu fegursta fjalli á ís-
landi og þó víðar væri leitað.
Jökullinn er nú um 22 ferkíló-
metrar og níundi stærsti jökull
landsins. Frá Eiríksjökli falla
nokkrir skriðjöklar norður og
norðaustur af jökulstallinum og
bera nöfn eins og Klofajökull og
Ögmundarjökull.
Uppganga á Eiríksjökul er öll-
um fær þó um erfiða göngu sé að
ræða. Ferðafélag islands og ferða-
félagið Útivist eru með skipu-
lagðar ferðir á jökulinn og má
þannig ná tindi þessa stærsta
stapa jarðar og mesta fjalli á vest-
anverðu íslandi á öruggan hátt.
Venjulega er gengið á Eiríksjökul
upp með austurbakka gils upp á
Stallinn, en svo er halinn er geng-
ur til vesturs frá fjallinu kallaður.
Hamrabeltin eru þó sums staðar
kleif allt austur í Flosaskarð, milli
Eiríksjökuls og Langjökuls, en
þegar lengra dregur norður úr
Flosaskarði er jökull allt ffam á
klettahengiflugið og þar yrði það
hvers manns bani að villast fram
af og ógengt upp.
f skriðum Eiríksjökuls að norð-
an er klettadrangur hár og þver-
hníptur sem heitir Eiríksgnípa.
Þjóðsaga segir að einn útilegu-
manna úr Surtshelli, Eiríkur að
nafni, hafi flúið undan byggðar-
mönnum og klifið upp bjargið en
svo nærri komust þeir honum að
einn þeirra hjó undan honum
annan fótinn. Um það er sagt að
Eiríkur hafukveðið:
Hjartað mitt er hlaðið kutt,
bvergi náir skeika.
Meðfótinn annan fór ég á burt,
fáir munu eftir leika.
Samkvæmt sögunni fengu
jökuUinn og gnípan nafh af Eiríki
þessum en áður gekk Eiríksjökull
undir nafriinu BaUjökull.
46 VIKAN 13. TBL. 1989
X