Vikan - 29.06.1989, Side 63
PÓ5TURINN
...og ég vor sá aumingi
ad gera það
Elsku póstur!
Þannig er mál með vexti að í
nóvember 1988 fór ég á ball
þar sem ég kynntist strák sem
við skulum kalla E. Þessi strák-
ur er úr sama kaupstað og ég
þannig að við þekktum hvort
annað í sjón. Ég sat við borð á
ballinu þegar hann kom og
settist niður og fór að spjalla
við mig. Ég var auðvitað himin-
lifandi af því ég var búin að vera
hrifin af stráknum í ár en ekkert
hafði gerst.
Við fórum að tala saman um
það með hverjum við hefðum
komið. Einhver vinur E. keyrði
fyrir hann en ég kom með syst-
ur minni. Ég minntist á að ég
þyrfti að redda mér fari til baka
en hann sagði þá að ég gæti
komið með sér — sem ég gerði.
Þegar ballið var búið fórum við
út í bíl en þar var þá vinur hans,
hálfdauður, og bílstjórinn.
Á leiðinni heim vorum við
farin að gerast býsna ástleitin
hvort við annað sem endaði
með því að hann bað mig um
að koma með sér heim. Ég neit-
aði en þá bað hann mig um að
koma inn smástund og ég var sá
aumingi að gera það. Þetta end-
aði svo með því að ég svaf hjá
honum.
Enn þann dag í dag er ég ást-
fangin af honum en hann lætur
sem ég sé ekki til í veröldinni.
Ég talaði við vin hans og hann
sagði að E. segði að ég væri
bæði heimsk og vitlaus. Hann
er með stelpu núna, held ég, og
mér líður svo ferlega illa þegar
ég sé þau saman en hann er að
vísu laus i rásinni í sambandi
við stelpur þannig að í hvert
sinn sem ég sé hann með nýrri
stelpu vona ég að ég verði sú
næsta.
Ég hef oft ákveðið að tala við
hann en hef guggnað á síðustu
stundu. Ég er 16 ára, bráðum
17, enhann er 18, að verða 19.
Með von um hjálp,
476
Gleymdu honurn alveg á
stundinni! Heldurðu að hann
breyti um skoðun á þér þegar
hann sér og veit að þú ert enn
að bíða eftir honum eftir að
hann hefur komið svona fram
við þig og talað svona illa um
þig - og eflaust sagt eitthvað
verra sem vinur hans hefur ver-
ið svo ruergœtinn að segja þér
ekki. Og vertu nú alveg hrein-
skilin við sjálfa þig og sþyrðu
þig hvað þú grœddir á því að
verða „sú nœsta". Hvað held-
urðu i raun að það myndi end-
ast lengi? Það eru margirfiskar
í sjónum — vertu bara ekki sami
„auminginn" ncest!
Elvis Presley
Kæri póstur!
Ég er mikill aðdáandi rokk-
kóngsins Elvis Presley. Fyrir
utan söfnunaráráttu að Elvis-
plötum og Elvis-myndböndum
hef ég líka áhuga á að kynna
mér líf hans og met þau sem
hann setti á tónlistarsviðinu.
Því hef ég hér fram að færa
nokkrar spurningar sem ég
vonast til að þú getir leyst úr,
ágæti póstur.
1. Hvað hafa honum hlotnast
margar gullplötur?
2. Önnur plötuverðlaun, svo
sem platínuplötur og fleira?
3. Árangur á plötulistum?
4. Hve lengi var hann í
hernum?
5. Hvað er talið að margir hafi
séð þáttinn „Aloha from
Hawaii" sem sýndur var
beint í gegnum gervihnött
12. janúar 1973?
Með fýrirfram þökk.
Leifur
Varðandi fyrstu tvcer sþum-
ingar þínar er erfitt að gefa
svör. Enn í dag er verið að gefa
út nýjar þlötur tneð söfnum
laga hans. Það er talið að
þtjár milljónir platna með
Elvis seljist að meðaltali á
hverju ári. Mismunandi er
fyrir hve mikla sölu gull- og
platínuviðurkenningar eru
veittar. Þó má segja frá því að
enginn hefur enn getað slegið
listamet hans í Bretlandi þar
sem hann hefur átt flest lög
með sama flytjandanum í 1.
sceti. Viðurkenningar haris
skipta eflaust þúsundum.
Elvis Presley hefur átt 149
lög á toþþ 100 listanum
bandaríska, þar af 17 í 1. sceti.
Ef við tökum þann tíma sem
hann átti lög á toþþnum er
það samtals 81 vika. Seinasta
lagið, sem komst í efsta sceti
bandaríska listans, var Suspi-
ciousMind 1. nóvember 1969.
Elvis var í hemum í tvö ár,
frá 24- mars 1958 til 5- mars
1960, lengst af í Þýskalandi.
Þátturinn Aloha from Ha-
waii þótti tímamótaþáttur á
sínum tíma. Aldrei JýiT hafði
rokkstjama verið Ijóslifandi
fyrir jafttmörgum milljónum
manna í sömu útsetidingunni.
Engin oþinber tala liggurfyrir
um hve margirsáu þessa beinu
útsendingu en þátturinn var
seldur víða um heim. Hug-
myndin að þcettinum var að
Elvis þyrfti ekki að ferðast til
fjarlœgra landa, til dcemis
Japan.
Að lokum vil ég betida þér á
tvcer bcekur sem hcegt er aðfá
um líf og starf Elvis Presley.
Önnur heitirElvis og er eftir Al-
bert Godtnann, gefin út af Al-
menna bókafélaginu, og hin
heitir Me and Elvis og er skrif-
uð af Priscillu Presley. Þar cett-
ir þú að geta fengið svör við
mörgum af þeim fjölda spum-
inga sem vakna um mestu
rokkstjömu sögunnar, Elvis
Presley.
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
isj/ejn jnjeq uuunBBeipuen 9 '|S|Anjpp je pisph s jddeuLip
je uesÁed -p u6ue| je ujwoiqjmis 'E 'Jbiuba uujiueÁig j '1-uaBj rne u|Sp|0 'j
13. m. 1989 VIKAN 61
VIKAN, Pósturinn, Háaleitisbraut 1. Pósthólf 5344,105 Reykjavík