Vikan - 13.07.1989, Qupperneq 34
MATREIÐ5LA
Verðlcauncahcafi
Bensa frænda
Peter Bennameer og verðlaunahaflnn margfaldi, Margrét Þórðardóttir, við hrís-
grjónaréttaborðið.
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: JÓHANN KRISTJÁNSSON
Uncle Ben’s hrísgrjónafyrirtækið
efndi á dögunum til samkeppni
um hrísgrjónarétti þar sem að
sjálfsögðu átti að nota Uncle
Ben’s hrísgrjón á sem nýstárlegastan og
Ijúffengastan hátt. Samkeppnin var haldin í
samvinnu við DV en umsjón með keppn-
inni hafði Guðrún Bachmann hjá Samein-
uðu auglýsingastoíúnni. Gífurleg þátttaka
var í samkeppninni - alls sendar inn 315
uppskriftir - enda til mikils að vinna því
fyrstu verðlaun voru ferð til Flórída og
þeir sem lentu í 2.—10. sæti fengu potta-
sett úr eðalstáli frá Hackman í Finnlandi
og Nathan & Olsen flytja inn.
Eftir mikla vinnu tókst að velja þá tíu
rétti úr öllum uppskriftunum sem þóttu
hæfa í 1. —10. sæti og var þar haft í huga að
réttirnir væru hvoru tveggja gómsætir og
nýstárlegir. Verðlaunaafhendingin fór
ffam á veitingastaðnum Þrem Frökkum
sem Úlfar Eysteinsson, veitingamaðurinn
kunni, rekur nú. Úlfar eldaði verðlauna-
réttinn og þrjá aðra af þeim tíu sem kom-
ust í úrslit. Blaðamenn og aðrir gestir
gæddu sér síðan á réttunum. Peter Benn-
ameer ffá Uncle Ben’s afhenti Margréti
Þórðardóttur fyrstu verðlaun fyrir rétt
hennar, Nú er í koti kátt, en Margrét hefúr
margsinnis unnið til verðlauna í hinum
ýmsu uppskriftasamkeppnum.
RETTUR I 2. - 10. S/ÍTI
Uppáhalds-
ábœtisréttur
Bensa frœnda
HÖFUNDUR: INGIBJÖRG FLYGENRING
250 g döölur
2 bananar
300 ml Bristol Cream sérrí
1V4 dl vatn
100 g hrísgrjón
’rí l mjólk
150 g suðusúkkulaði
V2 l rjómi
Döðlur og bananar brytjað og Iátið
liggja í sérríi í sólarhring.
150 g af súkkulaði brytjað.
Vatn og hrísgrjón soðið í 2 mín. Mjólkin
sett í og látið malla undir loki við lítinn
hita í 35 mín. Hrært í af og til. Grauturinn
látinn kólna. Þá er döðlu- og bananamauk-
inu hrært út í ásamt 100 g af súkkulaðinu.
Rjóminn þeyttur og hrærður út í þegar
grauturinn er kaldur.
Sett í skál og skreytt með afganginum af
súkkulaðinu.
Verðlaunarétturinn: Nú er í koti kátt.
FYRSTU VERÐLAUNA
„Nú er í koti kátt“
HÖFUNDUR: MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR
Forréttur jyrir 6 manns
I. Sjávarkakan
200 g jlökuð ýsa
100 g humar
100 g léttsoðin Uncle Ben's hrísgrjón
1V2 tsk. salt
V4-V2 tsk. Ijós pipar
1 msk. jerskur sítrónusaji
2 eggjahvítur
3 dl rjómi
2 msk. smjör
Ýsuflakið er roðflett og hreinsað. Það er
skorið í litla bita og sett í blandara ásamt
salti, pipar, sítrónusafa og eggjahvítum.
Látið maukast. Síðan er rjómanum blandað
varlega saman við og að lokum léttsoðn-
um hrísgrjónunum.
Smyrjið 6 lítil bökunarmót að innan
með smjörinu. Þekið þau síðan með u.þ.b.
2/i hlutum af deiginu. Takið humarinn inn-
an úr skelinni ef það hefúr ekki þegar ver-
ið gert. Skerið hann niður í minni bita.
Setjið í miðjuna og fyllið yflr með af-
ganginum af deiginu. Raðið formunum í
eldfast mót sem hefúr verið fyllt til hálfs
með vatni. Bakist við 200°C í 15-20 mín.
II. Sósan
100 g butnar
1 msk. jerskur sítrónusaji
1 tsk. estragon
2 dl rjómi
V2 dl hvítvín
Humarinn er settur í blandara ásamt
sítrónusafanum og kryddinu. Maukist.
Rjómanum er síðan blandað varlega sam-
an við. Sett í pott og látið sjóða þar til sós-
an þykknar. Að síðustu er hvítvíninu
blandað saman við.
III. Framreiðsla
Sjávarkökunum er hvolft úr mótunum á
heita diska og sósunni síðan hellt yfir.
Skreytt með dilli og sítrónubát og borið
fram.
34 VIKAN 14. TBL. 1989