Vikan - 13.07.1989, Side 36
Ávaxtasalat
Ábætir
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 12 mín.
Höfundur: Örn Garðarsson
INNKAUP:
ADFERD:
1 vatnsmelóna
2 grape
3 appelsínur
1 askja jarðarber
1-2 ástríðuávöxtir
6 kiwi
Helstu áhöld: Góður beittur hnifur og
salatskál.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur S) Má frysta □ Annað:
■ Skorið er ofan af melónunni og hún hreinsuð að innan. Innihaldið er
skorið í bita og sett í skál.
■ Allir aðrir ávextir eru hreinsaðir, þeim blandað saman og settir í melón-
una og framreiddir í henni. Afgangnum af salatinu er bætt á seinna.
■ Hægt er að nota allflesta ávexti í ávaxtasalat, svo sem allar melónur,
banana, ananas, döðlur, mangó, papaya, ferskjur, öll ber o.fl.
DC
O
“3
1
œ
o
z
o
<
2
2
C/)
O
Samloka í lautarferöina
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 15 mín.
Höfundur: Örn Garðarsson
Smáréttur
INNKAUP:
2 frönsk snittubrauð
1 haus iceberg, hreinsaður
3-4 bufftómatar, skornir í sneiðar
7 harðsoðin egg
5-7 stk skinkusneiðar
4 msk Dijon sinnep
1/2 agúrka í sneiðum
2 fallegir laukar, í sneiðum
200—300 gr rækjur
1 ds túnfiskur
Helstu áhöld: Góður beittur brauðhníf-
ur, áleggshnífur, bretti.
Ódýr S Erfiður □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
ADFERD:
■ Snittubrauðin eru skorin eftir miðju og þau opnuð. Smurð með sinnepi
(að sjálfsögðu má nota smjör, sýrðan rjóma eða kotasælu til að smyrja
með, jafnvel hræra einhverju af þessu saman við sinnepið). Kál sett í og
síðan er öllu álegginu raðað upp eftir smekk.
■ Ólífuskreyttum tannstönglum stungið í brauðið og það skorið niður.
■ Frönsk snittubrauð eru mjög vel fallin til samlokugerðar því þau nýtast
mjög vel. Hægt er að nota hvaða álegg sem er. Áætla má að eitt snittu-
brauð dugi fyrir 3-4.
5
(ö
o
□