Vikan - 31.05.1990, Page 12
n
n
y
OLAFUR GAUKUR OG SVANHILDUR JAKOBSDÓTTIR
klaki á pollunum og við sem ælluðum að fara
að veiðal"
„Okkur var alveg skítkalt og urðum dauðfeg-
in að komast heim. Þessi ferð varð til þess að
við misstum áhugann á hálendinu!" segir
Svanhildur. „Það er þó aö minnsta kosti hægt
að leita skjóls í samkomuhúsunum,“ segir
Ólafur Gaukur hlæjandi.
„ÉG VAR ALLTAF
EIN AF STRÁKUNUM"
Svanhildur, hvernig var að vera eina konan í
hópnum þegar þið voruð að skemmta?
„Ég var alltaf ein af strákunum - ein úr
hópnum, skulum við segja."
„Á pallinum vorum við ekki hjón. Ég sá bara
um hljómsveitina og hún var söngkonan.
Þannig verður það að vera,“ segir hann ákveð-
inn. Svanhildur bætir við að hún hafi alltaf leyft
honum að ráða á pallinum. „Bara þar,“ segir
hún og hlær viö. Hún heldur áfram: „Ég hef
aldrei mætt öðru en sanngirni í þessum
bransa. Þegar ég var ung og óreynd stelpa
fékk ég ætíð sama kaup og gömlu jálkarnir
sem árum saman voru kannski búnir að vera
meira og minna að spila. Öllum var gert jafn-
hátt undir höfði."
Hverjir eru helstu kostir og gallar við það fyrir
hjón að hafa tónlist að atvinnu sinni?
„Ég hef stundum verið spurð að því hvort
mér finnist ekki leiðinlegt að eiga aldrei frí um
helgar. Það hefur aldrei háð mér. Ég held líka
að margt fólk í skemmtanabransanum hafi að
sumu leyti meiri tíma fyrir fjölskylduna en aðrir.
Ég var til dæmis alltaf með krökkunum mínum
alla daga. Það er ómetanlegur kostur."
TÓNLISTARMENN
ELDAST BETUR...
Ólafur Gaukur situr þungt hugsi en segir
skyndilega: „Svei mér þá ef mér finnst ekki
tónlistarmenn eldast betur en annað fólk."
„Já, horfðu á okkur!" segir Svanhildur. „Við
erum Ijóslifandi dæmi.“ „Ég er ekki að meina
okkur," skýtur Gaukur inn í. „Ég er að hugsa
um kunningja okkar. Mér finnst þeir líta svo
Ijómandi vel út,“ segir hann hálfvandræöaleg-
ur. „Og margir þeirra eru orðnir nokkuð við
aldur. Ég veit ekki hvort þetta er staöreynd,
mér bara finnst það. Kannski liggur þetta í því
að tónlistarfólk er að starfa við það sem því
þykir skemmtilegt. Það hrífst svolítið á hverjum
degi. Tónlistin getur hrifið mann tíu sinnum á
dag. Hún er voldug og hún er óendanleg." Eftir
stundarkorn heldur hann áfram: „Helstu ókost-
irnir eru að vinna á nóttunni. Ég kýs heldur aö
vinna á daginn. Áður fyrr var ég líka stundum
þreyttur á að spila á sama skemmtistaðnum
kvöld eftir kvöld. Ég reyndi að bæta það upp
með því að koma með ný lög fyrir hljómsveit-
ina. Það er leiðinlegt að vera sífellt að spila
sömu lögin.“ Svanhildur segir: „Ég held að það
sé kostur þegar hjón taka þátt í starfi hvors
annars. Ég er viss um að mér hefði hundleiðst
að sitja heima á kvöldin og um helgar á meðan
Gaukur var að spila. Ég gæti trúað aö það sé
stundum erfitt að vera kona tónlistarmanns og
taka engan þátt í starfinu með honum. Það er
ef til vill viss hætta á að afbrýðisemi kvikni."
Þú hefur þá ekkert orðið leið á Gauki þar
sem þið hafið unnið svo mikið saman?
„Jú, ég er alveg ferlega leið á honum," segir
hún og brosir stríðnislega til manns síns.
Gaukur segir: „Ég veit ekki betur en að við höf-
um plumað okkur ágætlega saman í gegnum
árin.“ „Jú, þetta hefur alveg gengið upp, Gauk-
ur minn.“
„ÓLÍK AÐ MÖRGU LEYTI“
Eruð þið hjónin ólík?
„Já, já, við erum ólík að mörgu leyti. Þegar
við til dæmis dveljum erlendis vill Gaukur helst
gista á Holiday Inn eða Hilton og borða á
McDonalds." Mótmæli heyrast frá honum:
„Hvaða vitleysa. Ég er ekkert svo mikið fyrir
McDonalds. Hins vegar vil ég fara öruggar
leiöir þegar um gistingu er að ræða. Ég kýs að
hafa almennilegt rúm og bað. Ég er lítið fyrir að
ráfa um öngstræti og villast inn á einhverjar
búllur.“ „Ég hef aftur á móti óskaplega gaman
af að kanna hið óþekkta," segir hún og heldur
áfram: „Annars erum við mjög samheldin, höf-
um svipaðan smekk varðandi margt.“
„ALLTAF AUÐVELT AÐ
FELA SIG BAK VIÐ GERVIÐ"
Öðlast fólk, sem hefur atvinnu sína af því að
skemmta öðrum og nýtur mikilla vinsælda,
ekki ákveðið sjálfstraust?
„Ég hef ekki fundið fyrir því, nema síður sé,“
svarar Svanhildur. „Þrátt fyrir að fólki gangi vel
er ekkert víst að það hafi mikið sjálfstraust.
Þeir sem hafa það að atvinnu sinni að
skemmta öðrum eru oft á tíðum að drepast úr
feimni og „komplexum". Ég er viss um að fólk-
ið í skemmtanabransanum er mun hlédrægara
en annaö fólk. í starfi sínu fær þaö vissa útrás.
Það er auðvelt að fela sig á bak við gervi. Þeg-
ar ég stend á sviðinu fel ég mig kannski dálítið
á bak við gervið. Þar er ég önnur persóna. Þótt
ótrúlegt megi virðast hef ég alltaf verið fremur
hlédræg. Þegar ég er að syngja þarf ég yfirleitt
að Ijúka fyrstu þrem lögunum af áður en ég næ
mér almennilega á strik."
Gaukur segir: „Ég þekki dæmi um leikara
sem fór í klessu þegar hann átti að tala frá eig-
in brjósti. Hann var búinn að vera hrókur alls
fagnaðar allt kvöldið, þar til hann sagði nokkur
orð sjálfur. Hún segir: „Já, það er líklega alltaf
erfiðast að vera maður sjálfur." Ég spyr Ólaf
Gauk hvort hann sé feiminn að eðlisfari.
„Já, ég fann fyrir feimni sem ungur maður.
Með árunum er ég orðinn veraldarvanari og
feimnin háir mér ekki lengur."
„MERKILEGIR FORDÓMAR
GAGNVART AMERÍKÖNUM"
Þau hjónin hafa ásamt börnum sínum dvalið
sjö sumur í Ameríku þar sem Ólafur Gaukur
var í tónlistarnámi. Þau kunnu mjög vel við sig
þar og Ólafur Gaukur talar um að Ameríkanar
séu upp til hópa öndvegis fólk. „Nágrannar
okkar vildu allt fyrir okkur gera.“ Hann heldur
áfram: „Þaö eru merkilegir þessir fordómar
sem sumir hafa gagnvart Ameríkönum. Um
daginn heyrði ég konu segja: „Ég þoli ekki
Ameríkana.'1 Síðar kom í Ijós að hún talaði
hvorki ensku né hafði nokkurn tíma komið til
Bandaríkjanna. Fólk þarf að kynnast hvert
öðru. Þá kemur fljótt í Ijós að fólkið er alls stað-
ar eins. Ágætisfólk. Svo fyrirfinnast auðvitað
inn á milli nokkrir vitleysingar sem eyðileggja
heiminn."
Dóttir ykkar söng inn á plötu um jólin ásamt
þér, Svanhildur. Haldið þið að hún eigi eftir að
leggja sönginn fyrir sig?
Svanhildur segir: „Hún hefur áhuga á því en
ég veit ekki hvað verður." Gaukur bætir við:
„Þó ég segi sjálfur frá þá veit ég að hún hefur
hæfileika til þess. Ég er dómbær á slíkt þar
sem ég hef unniö meö ótal tónlistarmönnum í
gegnum árin. Þaö er líka kostur að hún tekur
sjálfa sig ekki of hátíðlega heldur leikur sér
dálítið að þessu. Ég tel það veigamikið i listum
að fólk hafi fyrst og fremst gaman af því sem
það er að fást við en líti ekki á málið of alvar-
legum augum. Ég held að ég geti fullyrt að þaö
sé meðal annars forsenda fyrir því að árangur-
inn verði góður.“ Sjálfur segist hann ekki taka
sjálfan sig hátíðlega en sé aftur á móti mjög
kröfuharður á allt sem hann geri. „Ég er aldrei
alveg ánægður með það verk sem ég skila.
Það hefur stundum háð mér að vera svona
mikill fullkomnunarsinni.“
Að lokum - eigum við von á að heyra frá
ykkur mæðgum á nýjan leik?
„Þaö er aldrei að vita. Við erum samt ekki
með neitt sérstakt í huga enn sem komið er,“
segir Svanhildur. „En ég er áreiðanlega ekki
hættur að gera plötur," segir Ólafur Gaukur.