Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 17
nálgast einhvern meiri poppmarkaö. Paö er
hins vegar afgreitt hliðarspor. Okkur finnst
miklu meira gaman aö vera ein af bestu
„instrumental'1 hljómsveitum heims í stað þess
að vera einhvers staðar í botnbaráttunni sem
popphljómsveit."
NÆST PLATA FYRIR
AMERÍKUMARKAÐ
Hvað er framundan hjá Mezzoforte?
„Næsta verkefni er að gefa út safnplötu fyrir
Ameríkumarkað. Við höfum aldrei gefiö út
plötu þar fyrr. Við aetlum að gramsa dálítið í
gamla efninu okkar, betrumbæta og jafnvel
endurnýja það að hluta til. Það þýðir ekkert að
gefa út plötu með yfirskriftinni „Síðustu átta
árin með Mezzoforte". Platan þarf að vera ný-
tískuleg og falla í kramið. í þetta skipti ætlum
við að passa okkur á því að eyða hvorki of
miklum tíma né peningum í vinnslu plötunnar,"
segir Eyþór.
Undanfarnar tólf helgar hafði Ellen tekið þátt
í sýningu sem fram fór í Sjallanum á Akureyri.
Hún segist í fyrsta sinn á ævinni hafa orðið
flughrædd. „Norðlendingar hlæja bara að mér.
Þeir kippa sér ekki upp við það þó að vélin þurfi
að hringsóla yfir flugvellinum í dágóða stund
og geti ekki lent,“ segir hún og brosir.
Ellen er gædd fleiri hæfileikum en að hafa
sérstæða og fallega söngrödd. Hún semur líka
lög. „Við höfum verið að æfa lag sem Ellen
samdi,“ grípur Eyþór fram í. „Já, það fjallar um
að ég er alltaf að fljúga til Akureyrar og Eyþór
til Abú Dabí,“ segir hún hlæjandi.
„ÁGÆTT AÐ TAKA ÞÁn í
SVONA SÖNGVAKEPPNI
Ellen hefur tekið þátt í Söngvakeppni Sjón-
varpsins og Landslagskeppninni. „Mér fannst
mjög gaman aö syngja Línudansinn eftir
Magnús Eiríksson í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins í fyrra. Það er skemmtilegt að syngja öll
lögin hans Magga. Hann er alveg frábær laga-
höfundur. Mér þykir líka vænt um lagið Vanga-
veltur eftir Friðrik Karlsson. Það tók þátt í
Landslagskeppninni nú í ár. Ég er ánægð með
þann texta. Ég er viss um að hann höfðar til
margra. Ég hef nýlokið við að syngja þetta lag
við spænskan texta eftir Tómas R. Einarsson.
Það lag verður á væntanlegri sólóplötu Friðriks
Karlssonar. Mér finnst ágætt að taka þátt í
svona söngvakeppni. Það er spennandi að
vera þátttakandi. Aftur á móti hef ég engan
sérstakan áhuga á að komast í verðlaunasæti.
Keppni af þessu tagi á fyllilega rétt á sér. Þar
gefst ómetanlegt tækifæri fyrir tónlistarmenn
sem eru að stíga sín fyrstu skref. Samkeppni
hvetur menn til að setjast niður og semja lög.
Þannig fæðast mörg ný og góð lög sem ef til
vill myndu aldrei annars líta dagsins ljós.“
Að lokum - hvað er framundan hjá Ellen
Kristjánsdóttur og flokki mannsins hennar?
„Við munum spila eitthvað hér heima. í
ágúst stendur svo til aö fara til Færeyja. Djass-
klúbbur eyjaskeggja stendur fyrir djasssam-
komu og fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum
ætla að mæta þar,“ sögðu þau.
Fulltrúum Vikunnar fannst nú tími til kominn
að slíta samtalinu við þau hjónin. Við höfðum
átt ánægjulega kvöldstund og orðið margs vis-
ari um hagi þeirra.
Myndirnar hér á síðunni eru frá samkvæminu þar sem Stendhal kynnti hið nýja húðkrem
Prévenance. Á þessari mynd sjást þær saman Valerie Simon og Rósa Matthíasdóttir. uósm : magg
„Kremið Prévenance vinnur
beint á áhrifaþáttum þeim er
leiða til öldrunareinkenna húð-
arinnar. Húð okkar saman-
stendur af mismunandi upp-
byggingarefnum, collageni, el-
astíni og hinum ýmsu efna-
samböndum prótíns. Með
aldrinum eru það collagen
samböndin sem ráða mestu
og verður því að vernda þau af
hinni mestu kostgæfni. Lífs-
ferill collagens hefst i föstu
formi en þróast með árunum í
að vera meira í fljótandi formi.
Þaö er ensím, sá lífræni
hvati sem þekktur er sem coll-
agenese, sem brýtur niður
húðkremið komi til varnar. Það
innihaldi afar virkt efni sem
nefnist C.P.F., Collagen Prot-
ective Factor. Það virki hvetj-
andi á náttúrulega þætti húð-
arinnar, hindri starfsemi coll-
agenese og hægi á möguleik-
um collagen [ föstu formi að
verða því fljótandi að bráð.-
Prévenance, sem einnig
inniheldur sólarvörn, er notað
kvölds og morgna og hentar
konum og körlum á öllum aldri.
Og Rósa vildi vekja sérstaka
athygli á því atriði, að karl-
menn hefðu að sjálfsögðu
sama gagn af kreminu og
konur. □
Hrukkum sagt
stríð á hendur
„Það er hægt að hægja á
og seinka verulega hrukku-
myndun,“ fullyrti franski
snyrtifræðingurinn Valerie
Simon er hún kynnti ís-
lenskum snyrtivörusölum
og fréttamönnum nýjasta
kremið frá Stendhal f sam-
kvæmi á Hótel Sögu fyrir fá-
einum dögum. Kremið sem
verið er að markaðssetja
heitir PRÉVENANCE og er
árangur þrotlausrar vinnu
starfsfólks rannsóknarstofu
Stendhal, Sanofi. En á rann-
sóknarstofunni og f verk-
smiðjunni starfa um 1500
manns.
Rósa Matthíasdóttir, sem er
umboðsaðili Stendhal á ís-
landi, sagði blaðamanni Vik-
unnar nánar frá hinu nýja húð-
kremi:
collagen í föstu formi og breyt-
ir því í fljótandi og raskar
þannig því jafnvægi sem húð
ungrar manneskjunnar hefur
verið í. Og þegar húðin missir
styrkleika sinn og vöðvaþétt-
leika hefst hrukkumyndunin.
Hinn náttúrulegi öldrunarferill
er hafinn.“
Og það er einmitt hér sem
Rósa og Valerie segja að nýja
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON