Vikan


Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 22

Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 22
ALMATTUG AUGLÝSINGIN Framhald af bls. 19. saman. Það er ekki gert með ástinni eins og menn héldu áður en auglýsingastofurnar kom- ust í sjónvarpið. Heldur aðallega og nærri eingöngu með súputeningi. Það er sama hvað maðurinn minn er að gera þegar ég hringi I hann og segist vera með súputening á borðum. Hann hendir öllu frá sér og hraðar sér heim. Leigubílstjórar yfirgefa fullt aftursæti af for- ríkum Japönum og hlaupa af stað. Líka þótt þeir hefðu verið fljótari að fara bara á bílnum. Byggingar hrynja af því að verkfræðingar eru háðir glútamati, fréttir eru ekki lesnar af þvi að þulurinn gengur ekki með súputening á sér. Takist mér ekki að skapa ringulreið í þjóð- félaginu með lífshækju húsmóðurinnar, súpu- teningnum, þá get ég haft frosna, tilbúna rétti. Þeir hafa sömu áhrif á eiginmenn. Freðmetið hefur þann aukakost að mér nægir að minnast á það á skrifstofunni þar sem ég vinn og öfund- aruppþotið verður slíkt að vinna fellur niður. Eftir viku erum við hjónin bæði búin að missa vinnuna. En þá höfum við bara meiri tíma til að horfast í augu yfir súputeninga- seyði, sem verður það eina sem við höfum efni á. Upp úr því fer kynngikraftur Knorr dvínandi og ég verð að gera annað og meira til að halda sambúðinni gangandi. Nefnilega er komið aö almenningstengslunum. Fyrst og fremst verð ég að halda mömmu hans góðri. Hún er stöðugt inná gafli hjá okkur. „Auður,“ segir hún í eldhúsinu og það gætir alls ekki meinfýsni í röddinni, „ertu viss um að vaskurinn sé hreinn hjá þér???“ Þá garga ég ekki á hana heldur segi röddu sem brimar af hamingju: „Já, því ég nota Lýso- form til að þvo hann!!!“ Svo horfumst við í augu yfir glampandi vaskinn. Við höfum náö saman. Við erum Eitt. Því við notum báðar það eina rétta til að þvo vaska. En hún er ekki hætt. „Auður,“ segir hún næst, „ertu viss um að uþþþvotturinn verði hreinn hjá þér?" Þá hlæ ég bara, silfurklingjandi hlátri, þegar dauðlegar eiginkonur langaði að drekkja tengdó í uppþvottavatninu, og segi: „Auðvitað verður uppþvotturinn hreinn. Vin- ur minn Sveltó sér um það.“ „En þú notar svo lítið af honum ... ???“ segir tengdó þá, því hún er svarinn fjandmaður fiska og vill að sem mest eitur renni til sjávar. „En ein teskeið er nóg!!!“ segi ég og hefst strax handa við að þvo upp heilmikið sem ég geymdi, einmitt af því að ég átti von á þessum nefrekstri. „Svei mér þá!“ segir tengdó andartaki seinna, „er þetta ofnskúffan frá í gærkvöldi? Þessi með öllu þessu brennda í?“ Þið sjáið að hún er þarna oft á dag og alltaf með einhvern skæting. „Já,“ andvarpa ég en það er gleöiandvarp. Svo höldum við stuttan fund um hvað froðan er dásamleg og þuklum báðar á henni. Það er nautnasvipur á okkur á meðan. Uppþvotta- skærunum lýkur með því að ég strýk brúsann með Vini Mínum Sveltó þannig að hugsandi tengdamóður hefði strax dottið í hug að kynlíf okkar hjóna væri ekki í lagi. Næst þarf hún að gera athugasemdir við hvernig ég þvæ þvottinn. Þar kemst ég í helgra manna tölu því hnýtingar hennar kæta mig bara. Og viti menn, hún getur gefiö frá sér áhyggjurnar af að sonur hennar fái ekki almennilega þvegnar skyrtur, því ég nota sko rétta þvotta- efnið. En - get ég straujað? Eða get ég átt von á því að maðurinn minn haldi fram hjá mér með konu sem straujar betur? Ég sigli í gegnum þann skerjagarð hjóna- bandsins með þremur mismunandi straujárn- um, tveimur tæknivæddum strauborðum, ein- um strauskáp og gufubursta sem ég nota til að leggja síðustu hönd á ímynd míns elskaða í dyrunum. Á meðan hann er í vinnunni geri ég allt hreint með á fjórða hundrað sérhæfðum hrein- lætisvökvum. Þegar hann kemur heim fær hann ekki gaseitrun í dyrunum heldursogarað sér pestina og hrópar: „Hvílíkur ilmur!“ Chaneldagar okkar eru liðnir. Hann er orð- inn ammoníakfrík. EN HANN? Þarf hann ekkert að gera til að treysta hjóna- band okkar? Ekkert sérlega mikið, annað en verða dol- fallinn ef mér tekst að bleyta upp pakkasúpu. Hlutverk hans er að halda uppi ímynd okkar út á við. ímynd okkar er fólgin í barnum og bíl- unum. Stundum hringja vinir hans úr bílasímanum í Porschinum. Þau hringja aldrei heiman frá sér svo ég held að þau búi í Porschinum og hringsóli á milli fólks sem á Glen Grant. Þau taka það alltaf fram að þau vilji ekki koma nema við eigum Glen Grant. Þetta þóttu nú ekki góðir siðir þegar ég var að alast upp og það hefur freistað mín að segja þessu fólki að við eigum ekkert Glen Grant og það verði að snúa sér annað. Eða kaupa bara sjálft flösku, úr því þau lifi á þvf. En maðurinn minn, það verður að viður- kennast, er gunga. Hann rásar út í rigninguna og leitar uppi flösku á öllum tímum sólarhrings. Svo nær hann ekki heim áður en þetta glimm- erpakk mætir og verður að laumast upp í vinnukonulyftunni með flöskuna. Þá var það skárra, fólkið sem var alltaf að koma og hringa sig í sófanum og lepja Chivas Regal. Það sendi þó stundum flösku til baka og alltaf farmiða fyrir tvo til Bahamaeyja með, svona í staðinn fyrir kortin sem almenningur notar. Stundum förum við og drekkum Chivas Regal hjá þeim. Maðurinn er skurðlæknir en hann er aldrei að skera neinn upp þegar við komum. Ekki einu sinni í miðri viku. Heldur er hann alltaf að mála angóraköttinn þeirra hjóna. Hann er svo hæfileikaríkur. En um leið og við göngum inn leggur hann frá sér penslana án þess að hreinsa þá og kastar sér á flöskuna. Ég held það geti verið að hann hafi misst vinn- una vegna slælegra mætinga og ofdrykkju en maðurinn minn verður æfur þegar ég minnist á það. Svo þekkjum við líka hjón sem drekka Glen Cameron. Hann er alltaf einn úti á hraðbátnum og hún er alltaf ein heima. Þau hafa ekki talast við í tvö ár. Þegar hún heyrir lystisnekkjuna hans leggja að kajanum fyrirframan kúluhúsið þeirra, sem er allt innréttað í hvítu, þá vefur hún um sig laki (hvítu, í stíl), liðast með fýlu- svip niður stigann og setur klaka í tvö glös og hellir Glen Cameron út á. Svo kemur hann inn, horfir hatursaugum á hana og veiðir klakann upp úr glasinu. Þá fer hún í enn meiri fýlu. En samt heldur hún áfram að setja klaka í viskíið hans og hún veit aö hann vill ekki klaka. Kannski er það þess vegna sem þau tala ekki saman. Ég hef reynt að fá manninn minn til að um- gangast fólk sem drekkur ögn minna en eftir að við vorum boðin heim til verkfræðingsins og hann kom til dyra með gúmmíhanska og gat ekki heilsaö af því að hann var að þvo klósettið með sérstökum verkfræðilegum hreinsilegi hefur maðurinn minn neitað aö eiga samneyti við þau hjónin. Hann hefur reyndar annað að gera þessa dagana en að sinna almenningstengslum okkar. Það gera bílaumsvifin hans. Hann hefur skipt um bíl ellefu sinnum í ár og nú vill hann skipta aftur af því að „16 strokkar eru bara fyrir þá sem geta leyft sér það. Hinir verða að horfa á“. Maðurinn minn vill ekki vera áhorfandi að neinu. Hvar hann ætlar að koma þessu flug- vélamóðurskipi fyrir veit ég ekki. Takist honum að finna tvö samliggjandi bílastæði fyrir utan fyrirtækið verður hann óvinnufær af áhyggjum af að árstekjum hans verði stolið á meðan hann fitlar við einkaritarann eða fyllir barskáp- inn á skrifstofunni. Á meðan undirbý ég fyrsta brúðkaupsafmæli okkar. Við ætlum til Feneyja. Þar lætur hann tæma Markúsartorgið og ræður hljómsveit. Hann lætur líka vera fullt tungl og á meöan hljómsveitin spilar Lagið Okkar gefur hann mér enn einn demantshringinn. Ég vona bara að það verði sjónvarp á hótel- herberginu. Ef við missum af auglýsingunum, þó ekki væri nema í nokkra daga, gætum við hrunið aftur af merinni. Við maðurinn minn megum ekki til þess hugsa að snúa heim ang- andi af úreltu viskíi og akandi á bíl frá í síðasta mánuði. □ 22 VIKAN ÍITBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.