Vikan - 31.05.1990, Side 23
Bróðursonur Gretu Garbo, Áke Fredriksson, ásamt Gun konu sinni og dótturinni Catharina. Áke heldur á mynd af frænku sinni.
FRÆNDI GREÍU GARBO SKÝTUR ÓVÆNT UPP KOLUNUM:
FÆR ÁKE MILUAREA
í ARF EFTIR GARBO?
oo
CH
oo
CZ.
o
O
oo
oo
CD
ZD
o
cz
ZD
Q
oo
o
I
LÍKLEGUR ERFINGI AÐ HLUTA
ÞEIRRA AUÐ/íVA SEM GRETA
GARBO LÉT ERIR SIG ER NÚ
KOMINN FRAM í DAGSLJÓSIÐ.
HANN HEITIR ÁKE FREDRIKSSON
OG ER BRÓÐURSONUR LEIK-
KONUNNAR FYRRVERANDI. HAFA
AMERÍSKIR LÖGFRÆÐINGAR
TALIÐ AÐ HANN EIGI RÉTT TIL ARFS
TIL HELMINGA Á MÓTI GREY
^ÉISFIELD, SEM ER BRÓÐURDÓTTIR
GARBO, SVO FREMI AÐ LEIK-
KONAN HAFI EKKI LÁTIÐ EFTIR SIG
ERFÐASKRÁ.
Ake Fredriksson er 64
ára gamall eftirlauna-
maður sem býr I bæn-
um Oxelösund I Svíþjóð.
Hann er kvæntur og á þrjú
börn en fram til þessa hafa
engir utan fjölskyldunnar vitað
um skyldleika hans og Gretu
Garbo. Faðir Áke hét Sven
Gustavsson og var eldri bróðir
Grétu. Hann átti Áke utan
Mörgum þykir sterkur svipur
með Catharinu og frænku
hennar, Gretu Garbo.
hjónabands með þjónustu-
stúlku á Grand Hotel í Stokk-
hólmi og þeir feðgar sáust
aldrei, en Sven lést árið 1967.
Móðir Áke gat ekki alið önn
fyrir honum og hann dvaldi á
barnaheimili þar til hann var
kominn á fjórða ár. Þá var
hann tekinn í fóstur af hjónun-
um Arvid og Valborg Rosen
sem bjuggu á bóndabýli
skammt frá Katrineholm.
Það var ekki fyrr en árið
1956 sem Áke fór að grennsl-
ast fyrir um sína raunverulega
foreldra og komst þá að því að
hann var bróðursonur Gretu
Garbo. Hann hitti hálfbróöur
sinn, Sven Gustavsson yngri,
árið 1981 og fór vel á meö
þeim. Sven hugsaði mikið um
þessa frægu frænku sína og
skrifaði henni bréf þar sem
hann minntist á Áke en aldrei
barst svar frá Garbo. Sven átti
mikið af myndum af Gretu
Garbo sem Ake fékk í arf þeg-
ar Sven lést fyrir tveimur árum.
ARFURINN NEMUR
MILUÖRÐUM
Greta Garbo ávaxtaöi sitt
pund vel og er talið að hún hafi
átt fasteignir og önnur verð-
mæti sem samsvarar nokkrum
milljörðum íslenskra króna.
Áke býr í þriggja herbergja
íbúð ásamt Gun konu sinni og
yngstu dótturinni sem heitir
Catharina og er 25 ára. Eldri
börnin tvö, Christer og Anneli,
eru flutt að heiman. Áke starf-
aði sem vélvirki en varð fyrir
slysi fyrir fimm árum og varð
þá að hætta að vinna. Fari svo
að hann fái arfinn ætlar hann
að láta féð renna til barna
sinna. Raunar þykir dóttirin
Catharina hafa sterkan svip af
Gretu Garbo.
Þau hjón Áke og Gun segj-
ast þiggja arfinn með þökkum
ef hann fellur þeim í skaut, en
|3au geti líka vel án hans verið.
Áke segir að rétt sé að láta
Gretu kólna í gröfinni áður en
farið verði nánar út í rannsókn
á rétti hans til arfs en sem áður
segir telur hann sig hafa þær
upplýsingar frá amerískum
lögfræðingum að hafi Greta
Garbo ekki skilið eftir sig
erfðaskrá eigi að skipta arfin-
um milli hans og Gray Reis-
field.
HTBL 1990 VIKAN 23
UÓSMYNDIR: THORSTEN LAURSEN