Vikan - 31.05.1990, Síða 32
TEXTL ANNA TOH'ER
á er kvennagulliö Ric-
hard Gere mættur til
leiks á hvíta tjaldinu,
kvenaðdáendum hans til
mikillar gleði. í þessari mynd
sýnir hann á sér nýja hlið þar
sem þetta er rómantísk
grínmynd. Við þekkjum hann
helst úr alvarlegum hlutverk-
um en með leik sínum í þess-
ari mynd sannar hann að hann
á til skemmtilega glettna takta.
Richard Gere á því enn eftir
að auka hróður sinn meðal
kvenfólksins. Fyrst fékk hann
konur til að gráta en nú geta
þær hlegið dátt. Margar telja
þetta helstu kosti hvers
manns. Ekki megum við
gleyma augnakonfekti karl-
peningsins. Sú sem leikur á
móti kyntákninu er Julia Ro-
berts sem einhverjir kannast
við úr kvikmyndinni Steel
Magnolias.
Inntak myndarinnar er í
stuttu máli á þessa leið: Fyrir-
tækjastórlaxinn Edward Lewis
(Richard Gere), betur þekktur
meðal vina - og óvina - undir
nafninu Úlfurinn á Wall Street,
kann að sneiða hjá leiðindum
en þegar kemur að ástinni er
hann gjörsamlega villtur.
Götudrósin Vivian Ward
(Julia Roberts) er leikin við-
skiptakona sem af einskærri
tilviljun lifir á því að selja ást -
frá því að selja hvern klukku-
tíma, peninga út f hönd, til
fastra viðskiptavina.
Þegar tilviljun leiðir þau
saman fær Edward þá snjöllu
hugmynd að bjóða Vivian að
sjá með eigin augum hvernig
viðskiptavinir hennar lifa.
Hann kynnir henni ævintrýa-
veröld valds og forréttinda og
fyrir atbeina Edwards eykst
eðlilegur yndisþokki og glæsi-
bragur Vivian.
Öskubuska breiðgötu Holly-
wood er ekki sú eina sem tek-
ur breytingum á einni viku.
Edward er heillaður af verð-
launanemanda sínum og gerir
sér grein fyrir að samband
þeirra Vivian sé kannski besta
fjárfesting hans til þessa.
Tveir einstaklingar, sem
hafa lifað hvort í sínum heimi,
hittast af einskærri tilviljun. Við
fyrstu sýn virðast þau ekkert
eiga sameiginlegt en þau eru
að mörgu leyti mjög lík. Þau
eru bæði í viðskiptum, bæði
gera samninga. Þannig heyja
þau baráttu sína við veröldina
en uþþgötva svo ástina á ólík-
legasta stað.
Þetta hefur Richard Gere
um myndina að segja: „Per-
Richard Gere tröllmyndarlegur í
hlutverki stórlaxins Edwards
Lewis sem gerir það gott á við-
skiptasviðinu en er ósköp
slappur í kvennamálum.
Götudrósin, sem leikin er af
hinni snotru Juliu Roberts,
hleypir heldur betur lífi í hvers-
dagslíf stórlaxins...
32 VIKAN ÍITBL. 1990