Vikan


Vikan - 31.05.1990, Síða 40

Vikan - 31.05.1990, Síða 40
Ég er gjörsamlega búin og mlðurmín afáhyggjum Kœra Jóna Rúna! Ég veit ekki hvort ég er að leita að uppruna mínum en mér líður eins og ég hafi tapað sjálfri mér í upphafi lífs míns. Núna er ég á milli fimmtugs og sextugs. Mér finnst ég vera eins og vindlítill bolti sem hrekst til og frá í ölduróti lífsins. Þráft fyrir að hafa áft foreldra á lífi fram á fullorðinsár og stóran systkinahóp finnst mér ég hafa verið einmana frá upphafi. Ég á erfitt með að tjá mig og innan um fólk verð ég mjög óörugg með sjálfa mig og sit oftast hljóð. Finnst ég ekkert markvert hafa að segja. Örlögin hafa hagað því þannig að ég á tvö börn. Annað þeirra er unglingur og fylgir náftúrlega sínum tíðaranda. Ég reyni að þvinga unglinginn minn ekki en tala mikið við hann og gefhonum eins mikið frjálsrœði og hœgt er. Þetta er góður unglingur, þótt iatur sé. Mér finnst ómanneskjulega erfitt að ala upp ungling eins og tíðarandinn er. Kapphlaupið er svo mikið eftir einskisverðum hlutum og flestir hlaupa með eins og best þeir geta. Ég bjó lengi með móður minni og systkini sem var mjög drykkfellt. Það var verulega erfitt að slíta sig burtu því mamma var mjög ráðrík og stjórnsöm, því miður. Ég er líklega veikgeðja og hef láfið ganga alltoflengi á mér til að halda friðinn, sem ég elska. Nú er ég orðin svo sundurfœff og meyr. Tilfinningalífið er eins og kvika. Effir að mamma dó hefur systkini mitt, sem er í óreglunni, búið eitt og er sjálfu sér versf, en þarf mikla hjálp og hefur náttúrlega hrint öllum frá sér. Systkini mínu þótti vœnt um annað barna minna og hefur stutf það fjárhagslega en sér nú eftir því og heimtar allt til baka. Hefur meira að segja gengið svo langt að fá lögfrœðing í málið og gengur auk þess berserks- gang þegar minnst varir. Þetta barn mitt er í námi erlendis og hefurþessi framkoma haft mikil áhrifog barnið orðið gjörbreytt. Ég er gjörsamlega búin og er miður mín af áhyggjum. Eins hefur þetta haft slœm áhrif á það barnið mitt sem er enn heima. Ég lœt flest áhugamál mín liggja á milli hluta, einfaldlega vegna þess að það hefur aldrei gefist neinn tími eða nœði til að sinna slíku. Vonandi sérð þú eitthvað sem ég sé ekki til að leiðbeina mér og hvetja. Með þakklœti, Friður. Einmanaleiki óþaríi SVAR: ar sem þú ert kona, kæra Friður, er svolítið erfitt að nota þetta dul- nefni. Kannski ég noti bara nafnið Björg. Ég vona að þér sé sama. Þakka þér innilega fyrir þréfið og ekki síst hve ein- lægt það er. Viö reynum nú [ sameiningu að skoða ástandiö séð frá skrift þinni og innsæi mínu. Við finnum kannski eitt- hvað sem þér hefur sést yfir og gæti auðveldað þér að byrja nýtt og hamingjuríkara líf ef hægt er. SJÁLFSÞEKKING ER NAUÐSYNLEG Ef við reynum fyrst að átta okkur á hvers vegna þú virðist ekki átta þig á sjálfri þér langar mig til að benda þér á fáein at- riði sem kannski skýra þetta sérstaklega. Þú ert núna aö fara í gegnum eitt áhugaverð- 40 VIKAN UTBL.1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.