Vikan - 31.05.1990, Qupperneq 45
Liðsmenn hljómsveitarinnar vinsælu Heart t.v.: Howard Leese, Nancy Wilson, Ann Wilson, Denny
Carmassi og Mark Andes. Hljómsveitin kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir hálfum öðrum áratug og hef-
ur alltaf staðið fyrir sínu.
Einhvern tíma fyrir óralöngu sagöi
ágætur maöur að rokk og ról væri
komið til að vera. Þessi maður hefur
sennilega ekki gert sér grein fyrir
sannleiksgildi orða sinna, hversu oft
þau yrðu notuö eða þeirri staðreynd að þau
standast tímans tönn. Rokkið verður alltaf til
og verður alltaf vinsælt. Rokksveitir koma og
fara, sumar verða vinsælli en aðrar eins og lög
gera ráð fyrir og sumar ná því markmiði að
komast á spjöld sögunnar. Allir kannast við
hljómsveitir á borð við Led Zeppelin, Kiss,
Deep Purple og svo mætti lengi telja. Eitt hefur
einkennt rokkhljómsveit í gegnum tíðina. Þær
hafa oft náð að halda vinsældum sínum um
áraraöir og alltaf staðið fyrir sínu. Ein slík er til
umfjöllunar að þessu sinni, hljómsveit sem
fyrst kom fram á sjónarsviðið í kringum 1975
og er núna meðal þeirra vinsælustu.
Hljómsveitin heitir Heart og sendi nýlega frá
sér nýja breiðskífu, Brigade, sem er sú tíunda
í röðinni. Brigade hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda og fyrsta smáskífulagið, All I
Wanna Do is Make Love to You, er þegar þetta
er skrifaö topplag íslenska listans. Við fjölium
betur um plötuna á eftir.
Hljómsveitin Heart vakti fyrst á sér athygli
snemma á áttunda áratugnum þegar hún spil-
aði mikið í klúbbum í Vancouver í Kanada og
Seattle í Bandaríkjunum. Þau spiluðu fjórum
sinnum á kvöldi fyrir framan óútreiknanlegt fólk
og það kenndi þeim mikið og gaf þeim góðan
tíma til að móta sinn eigin tónlistarstíl og finna
rétta hljóminn. Hægt og rólega náðu þau að
afla sér vinsælda og lítið óháö útgáfufyrirtæki
tók sénsinn, gaf út fyrstu Heart-breiðskífuna,
Dreamboat Annie. Platan sló i gegn, seldist í
rúmlega fjórum milljónum eintaka og innihélt
tvö lög sem urðu vinsæl, Crazy on You og
Magic Man. Nú var leiðin til frægðar og frama
bein og breiö og í kjölfarið fylgdu fleiri breið-
skífur og fleiri vinsæl lög. Plöturnar komu ein
af annarri, Little Queen, Magazine, Dog and
Butterfly, Bebe Le Strange og Private Audition.
Á tveimur síðastnefndu plötunum stjórnuðu
liðsmenn Heart sjálfir upptökunum en eftir að
Private Audition kom á markað 1982 urðu
mannabreytingar í Heart. Wilson-systurnar
Ann og Nancy voru í upphaflegu útgáfunni af
Heart, hafa ávallt verið í fylkingarbrjósti og eru
andlit hljómsveitarinnar út á við. Gítarleikarinn
Howard Leese hefur einnig verið í Heart frá
upphafi en nú komu nýir menn til leiks, Denny
Carmassi trommari og Mark Andes bassaleik-
ari.
Fyrsta platan með hinni nýju hljómsveit var
Passionworks og Heart þótti hafa tekið stór-
stígum framförum við mannabreytingarnar.
Vélin var komin í gang. Þegar Passionworks
kom á markað fór Heart í tónleikaferðalag og
náði samspili sem komst fyllilega til skila á
plötunni Heart. Platan fór á toppinn í Banda-
ríkjunum og inniheldur topplögin What About
Love og These Dreams. Hið síðarnefnda söng
Nancy Wilson sem oft var nefnd „hin Wilson-
systirin'' og var þetta fyrsta lagið sem hún söng
sem náði langt. Síðast þegar spurðist hafði
breiðskífan Heart selst í 8.102.969 eintökum.
Geri aðrir betur. Það er ekki auðvelt að gera
nýja plötu með slíkar tölur á bakinu og pressan
verður nánast óbærileg. Hljómsveitin Heart lét
það ekki á sig fá, geröi plötuna Bad Animals
sem inniheldur m.a. lagið Alone sem er enn
þann dag í dag það vinsælasta sem Heart hef-
ur sent frá sér. Eftir útkomu þeirrar plötu var
haldið í heljarmikið tónleikaferðalag um Evr-
ópu og Japan og þótt hljómsveitin hefði ekki
komið fram á þeim slóðum í heil sex ár var alls
staðar uppselt mörgum vikum fyrir tónleika.
Þá er það nýja platan, Brigade. Nancy
Wilson, Ijóshærða Heart-systirin, sagði um
plötuna: „Þegar við kláruðum tónleikaferðalag-
ið um Evrópu og Japan var ég gjörsamlega
búin. Ég held við höfum öll verið alveg búin.
Þótt það sé gaman að spila og koma fram er
hinn þátturinn svo hryllilega þreytandi, hótelin,
rúturnar og það allt saman. Þegar við fórum
svo að vinna að Brigade-plötunni var eins og
þreytan væri horfin, fiðringurinn var kominn
aftur og mig langaði meira en nokkuð annað
að spila á tónleikum. Við lögðum allt sem við
eigum í nýju plötuna og hún er að mínu mati
það besta sem við höfum gert. Við eigum enn
mikið eftir."
Á nýju plötunni vinna fimmmenningarnir í
fyrsta sinn með upptökustjóranum Richie Zito
og gefa honum hæstu einkunn. „Hann reyndi
aö fá fram hinn eina sanna Heart-hljóm," segir
gítarleikarinn Howard Leese. „Mér líkaði sér-
staklega vel að vinna með honum vegna þess
að hann er sjálfur gítarleikari og leyfði mér að
gera nokkurn veginn það sem ég vildi. Reynd-
ar leyfði hann okkur öllum aö leika lausum hala
og þess vegna er Heart eins og hún er á Brig-
ade-plötunni. Hún er örlítið hrárri en hinar
plöturnar en það er einmitt svona sem við vilj-
um hafa það. Á nýju plötunni fór ég aö ráði
Paul Stanley úr Kiss. Han sagði mér einhvern
tíma fyrir löngu að hann notaði aldrei hljóðhrif
(effekt), bara gítarinn og magnarann. Ég próf-
aði þetta og líkaði vel. Þetta heyrist á plötunni.
Trommuleikari Heart, Denny Carmasgi, er
ekkert að skafa utan af því: „Á síðustu tveimur
plötum okkar höfðum við fjarlægst tónleika-
hljóminn okkar, sem gerði okkur sérstök. Á
nýju plötunni reyndum við að nálgast þennan
hljóm og þessa tilfinningu á nýjan leik vegna
þess að svona erum við í raun og veru." Breið-
skífan Brigade hefur hlotið mikið hrós í tónlist-
artímaritum um allan heím og þykir hafa fest
hljómsveitina Heart L sessi á meðal þeirra
bestu. Hljómurinn þykir ferskur og hljóðfæra-
leikur allur er óaðfinnanlegur. En hvað finnst
liösmönnum Heart um hluti eins og tónleika,
nýju plötuna og það að vera heima í faðmi fjöl-
skyldunnar?
Á tónleikum: Denny Carmassi trymbill: Þar
sem ég er trommarinn sé ég allt sem fram fer
á sviðinu fyrirframan mig. Það er heilmikil tján-
ing í gangi á tónleikum, án orða. Áhorfendur
taka alls ekkert eftir þessu. Handahreyfingar
og augnagotur. í miðju lagi snýr Ann sér
kannski að mér og grettir sig eins og hún best
getur. Þetta hefur stundum orðið til þess að
okkur fipast, en það tekur enginn eftir því.
Á ferðalagi: Ann Wilson: Þegar við förum í
tónleikaferðalag reynum við að taka með okk-
ur eins mikið af persónulegum og heimilisleg-
um hlutum og við getum. Við tökum hundana
okkar með okkur og oftar en einu sinni og oftar
en tvisvar hefur okkur veriö hent út af hóteli
vegna þeirra. Einu sinni átti meira að segja aö
handtaka okkur vegna þess að við vorum með
hundana okkar í svítunum. Maðurverðurbara
að læra að losa spennuna, jafnt á sviðinu sem
og í hótelherberginu."
Tíundi áratugurinn: Howard Leese gítar-
leikari: Þegar tónlistarunnandi kaupir plötu
með Heart fær hann allt það besta frá okkur.
Við höfum spilað saman það lengi að laga- og
textasmíðar eru orðnar skemmtilegar og það
heyrist á plötunum. Við ætlum að halda áfram
að bæta okkur í framtíðinni og verðum lengi
að, miklu lengur."
Heima: Denny Carmassi: Ég dreg mig að
mestu út úr þessu öllu saman þegar ég er
heima. Ég bý í litlu þorpi skammtfrá Los Ange-
les og get lokað rokk og ról-heiminn úti. Maður
þarf virkilega á því aö halda. Ég loka þetta allt
saman úti og keyri bílana mína. Ég á Ferrari
og einn Ford Hi-Boy árgerö 1932 og keppi svo-
lítið í kvartmílu."
MarkAndes bassaleikari: Ég bý rétt utan við
Ventura f Kaliforníu og er nógu nálægt rokkinu
í LA. Ég spila mikið þegar ég er ekki með
Heart. Ég hef spilað með Party Ninjas (hópur
tónlistarmanna sem spila og safna peningum
til að finna týnd börn) og lék með Sam Kinison
þegar hann söng Wild Thing. Þaö er alltaf nóg
aö gera."
Washington (þar sem Ann, Nancy og How-
ard búa) og Los Angeles: Ann Wilson: Það er
svolítið erfitt að koma til LA til að hljóðrita.
Borgin er svo ástfangin af sjálfri sér en auðvit-
að verður maður aö líta á björtu hliðarnar líka.
Fleiri og fleiri flytja nú frá LA til Seattle og fólkið
í Seattle er alls ekki ánægt með það. Ég sá
límmiða á bílstuðara um daginn og þar stóð:
Farðu og njóttu dagsins einhvers staðar ann-
ars staðar."
11 TBL. 1990 VIKAN 45
SNORRI STURLUSON SKRIFAR