Vikan - 31.05.1990, Qupperneq 46
TEXTUÓN KR GUNNARSSON
/
EGHAFÐ
HJARTSLÁTTIBYRJUN
- SEGIR SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR ÞULA í VIKU-VIÐTALI
46 VIKAN ÍITBL. 1990
Fæst okkar vilja viður-
kenna að sjónvarpið
skipti okkur miklu máli.
En ef grannt er skoðað hefur
sjónvarp meiri áhrif en við í
fljótu bragði gerum okkurgrein
fyrir eða við viljum vera láta.
Og andlitin, sem birtast kvöld
eftir kvöld á skjánum og
blanda sér f andrúmsloftið í
stofunni, þau fara að skipta
okkur máli hvort sem okkur lík-
ar betur eða verr. Auðvitað
getum við úthýst þessu fólki
með því að slökkva á tækinu
eða skipta yfir á aðra stöð.
Það gerum við þó yfirleitt ekki
ef við þykjumst þurfa á fréttum
eða afþreyingu að halda. Það
er svo með kunnuglegu andlit-
in á skjánum eins og allt
annað fólk sem við um-
göngumst í daglega
lífinu að það hefur
mismunandi áhrif
á okkur. Sumir
gera okkur glatt í
geði með Ijúfu
brosi, aðrir vekja undrun eða
gera okkur jafnvel gramt í
geði. Samferðamennirnir eru
margir og fjölbreytilegir.
Sama gildir um andlitin á
skjánum og þegar nýtt andlit
ryðst inn í stofu til manns er
forvitnin vakin, ekki síst ef
ásjónan lumar á dulúðugu eða
Ijúfu brosi. Það gerir manni
alltaf gott.
Sigríður Arnardóttir þula
birtist okkur fyrst á skjánum í
október síðastliðinum. Hún
virtist strax vera nokkuð örugg
og ófeimin við að brosa örlítið
um leið og hún kynnti næsta
dagskrárlið. Hún féllst á að
spjalla lítilsháttar við lesendur
Vikunnar og gera örlítið
grein fyrir sér. Hver er þessi
unga kona?
- Ég er Reykvíkingur.
Móðir mín heitir Rann-
veig Haraldsdóttir og
starfar sem fulltrúi við
Menntaskólann við
3und. Faðir minn er dr.
lirn Erlendsson og hann
itarfarvið fiskútflutning.
Hver var aödragand-
inn að því að þú
byrjaðir hjá Sjón-
varpinu?
- Ég man nú varla hver að-
dragandinn var þó ekki sé
langt síðan. Ég útskrifaðist úr
Háskólanum i fyrravor og byrj-
aði að vinna hjá Ríkisútvarp-
inu, þar sem ég er ennþá, en
svo vantaði mig eitthvert auka-
starf. Sambýlismaður minn og
ég erum að byggja eins og
gengur hjá ungu fólki. Ég hef
alltaf verið spennt fyrir sjón-
varpi. Ég var búin að vera í
félags- og fjölmiðlafræði í Há-
skólanum og einnig hafði ég
unnið sem blaðamaður á
dagblaði. Ég veit ekki hvort
þaö var forvitni eða hvað það
var en mig langaði til að kynn-
ast sjónvarpi líka. Mér finnst
þetta heppileg aukavinna. Það
eru kannski átta vaktir á mán-
uði. Ég sótti því um og fékk
vinnuna. Mér finnst þetta
spennandi því að ég hef alltaf
verið heldur jákvæð gagnvart
Sjónvarpinu. Allt frá því að ég
var krakki hef ég alltaf tekið
mikið eftir sjónvarpsþulunum
og ég hef haft mínar ákveðnu
skoðanir á þeim. Svo vantaði
mig líka peninga eins og á
stóð.
Þú minntist á Háskólann.
- Já, ég tók BA próf í fé-
lagsfræði með fjölmiðlafræði
sem aukagrein.
Varstu ekki taugaóstyrk
þegar þú komst fyrst fram í
sjónvarpinu?
- Jú, ég var voða spennt.
Annars hafði ég gaman af að
taka þátt í félagslifi í skólanum
og þegar ég til dæmis tók þátt
í ræðukeppni var ég alltaf tals-
vert kvíðin viku fyrirfram. Þeg-
ar svo á hólminn var komið var
kvíðinn að mestu búinn að fá
útrás. Ég tek kvíðann líklega
út fyrirfram svo aö ég er tiltölu-
lega róleg þegar á hólminn er
komið.
Nú hlýtur að vera tvennt ólikt
að koma fram á fundi eða í
sjónvarpi þar sem þú sérð
enga nema kannski þá sem
eru við upptökutækin. Hugs-
arðu þá kannski til fjöldans
sem er að horfa og hlusta?
►
Vandaðar setlaugar í fullri dýpt 90 cm
NORM-X setlaugarnar eru sérhannaðar fyrir íslenska veðráttu og hitaveituvatn. Efnið er poly-
6thylene, sem þolir jafnvel að vatnið frjósi í lauginni. Liturinn og yfirborðsáferðin halda sér
óbreytt árum saman. Verðið er ótrúlega lágt vegna háþróaðrar framleiðsluaðferðar og magn-
íramleiðslu. Átta ára reynsla við íslenskar aðstæður.
"'NORM-X
Verð frá 39.900 - gerið verðsamanburð
SUÐURHRAUN 1, 210 GARÐABÆR
SÍMI 53822
Flestir bursta tennur kvölds og morgna. Á
daginn erum við sífellt að fá okkur
eitthvað, t.d. ávexti, brauð, sælgæti, kaffi
með sykri...Við það myndast sýrur sem
skemma tennurnar.
Venjulega tekur það um klukkustund fyrir
varnarkerfi munnholsins - munnvatnið -
að gera sýruna sem veldur tannskemmd-
um óvirka.
Með því að tyggja V6 verður sýran
samstundis óvirk.
V6 inniheldur hið virka efni Carbamid,
nákvæmlega sama efnið og finnst í
munnvatni.
V6 eflir hverja máltíð! Fæst í apótekum og nú einnig víðar. M