Vikan - 31.05.1990, Side 48
►
- Ég man nú eiginlega ekki
hvað ég hugsaði í fyrstu
skiptin. Maður hugsaði bara
um textann og að komast í
gegnum þetta. Ég ætla ein-
hvern tíma að fá að skoða
fyrsta útsendingarkvöldið mitt
og bera það saman við hvern-
ig þetta er núna. Þó að ég hafi
komist í gegnum þetta og fólki
þótt ég gera það skammlaust
hlýt ég að hafa verið ógurlega
stressuð miðað við það sem
ég er núna. Ég hef alla vega
verið stífari þó að ég haldi að
ég sé það ekki núna. Ég man
að ég hafði svo mikinn hjart-
slátt að ég var hrædd um að
það myndi sjást, að peysan
hreyfðist.
Það hjálpaði mikið að það
var mikið af góöu fólki á næstu
grösum. Þeir hjá Sjónvarpinu
eru auðvitað líka alltaf spennt-
ir þegar einhver nýr er að byrja
og hugsa kannski með sér: -
Hvernig stendur þessi sig f
beinni útsendingu? Skyldi hún
klúðra þessu? Sumir horfðu á
mann svo að maður fékk
vissulega styrk.
Þú byrjaðir aö vinna hjá Út-
varpinu og starfar þar enn?
- Já, þegar ég var í þessu
námi, félags- og fjölmiðlafræð-
inni, vorum við látin gera út-
varpsþátt. Svo var ég einu
sinni uppi á Útvarpi út af þess-
um þætti og þá sótti ég um
sumarvinnu. Ég fékk þá vinnu
hjá barna- og unglingadeild
við að gera unglingaþætti fyrir
Rás 2 og var við það eitt
sumar. Svo um leið og ég var
búin í náminu þá var ég komin
með útvarps-bakteríuna. Þá
fannst mér dagblöð ekki
spennandi lengur þó að mér
hafi áður þótt þau vera aðal-
draumurinn. Núna finnst mér
útvarpið sérstaklega skemmti-
legur vinnustaður. Þeir sem
koma þangað inn verða alveg
veikir, þeir smitast. Núna sé
ég um þátt á Rás 2 sem er út-
varpað á kvöldin. Það er Zikk
Zakk unglingaþátturinn.
Hver eru áhugamálin fyrir
utan fjölmiðlun?
- ( frítímum þykir mér
skemmtilegast að fara í
leikhús. Það er gaman að fara í
hin ýmsu leikhús og fylgjast
með. Það stafar líka af því að
sambýlismaður minn er leikari,
Kristján Franklín Magnús.
Hann er einn af þessum
ungu og upprennandi leikur-
um?
- Já, hann hefur alla vega
nóg að gera. Hann var í Höll
sumarlandins, Hótel Þingvöll-
um og einnig í barnaleikritinu
Töfrasprotanum. Svo má
nefna að hann hefur verið í
sjónvarpsverkefnum og lék
forstjórann í Afsakið hlé sem
sýnt var fyrir skömmu.
Það eru engin börn í fjöl-
skyldunni enn þá.
- Nei, engin börn enn, því
allt hefur sinn tíma.
Áttu nokkra ósk um barna-
fjöldann? Ég man eftir ungri
konu sem sagðist ætla að eiga
tíu. Ert þú meö nokkur slík
fyrirheit?
- Nei, alls ekki. Mér þykir
svo skemmtilegt aö vinna, en
það gæti verið æskilegt og
skemmtilegt að eiga svona tvö
börn. Ég set ekki markið
hærra. Það væri þá mögulegt
aö vipna úti líka.
Annars tekur húsbyggingin
allan hugann eins og er. Við
erum að byggja eða réttara
sagt að gera upp gamalt hús.
Við keyptum hús til flutnings og
fluttum það í Skerjafjörð. Þar er
verið að hanna hverfi fyrir
gömul aðflutt hús sem á að
vernda. Ég held þau veröi tíu.
Við byggðum kjallarann undir
húsið og erum að gera þetta í
stand. Það er tímafrekt og því
eru frístundirnar fáar eins og
er. Það er ýmislegt sem okkur
Kristjáni þykir gaman að gera
saman eins og að fara á
gönguskíði og vera í dansi en
það er ekki hægt að sinna
slíku eins mikið og við vildum.
Svo flytjum við væntanlega inn
í húsið í sumar og þá fer þetta
vonandi að lagast.
Eru nokkur önnur framtíðar-
áform umfram þaö sem þiö
eruð aö gera núna? Nokkurt
takmark?
- Ég veit ekki. Það væri þá
helst að fá tækifæri til að læra
meira um útvarp og sjónvarp.
Ég gæti hugsað mér að fara til
útlanda og læra meira. Aðal-
málið er að koma upp húsinu
og fara síðan að læra meira.
Það væri skemmtilegt.
Eitt sem tengist áhugamál-
um og áformum er garðrækt.
Ég vann oft hjá Skógræktinni á
sumrin þegar ég var í skóla.
Það finnst mér alveg paradís
fyrir unglinga og skólafólk.
Síðan er garðrækt áhugamál
hjá mér. Mig langar til að koma
upp garði í Skerjafirðinum.
Það verður pláss til þess og þá
einmitt í gamla Tívolíinu. Þar
verður garðurinn, kannski á
gamla skotbakkanum.
Þegar við flytjum inn í okkar
nýja, gamla hús ætlum við aö
halda partí og þá verður einmitt
Tívolí-stemmning. Þá verður
spiluð platan Tívolí með
Stuðmönnum. Það verður að
hafa Tívolí-stemmningu á
þessum stað.
Hvað er gamla, nýja húsið
gamalt?
- Það er frá 1903. Það er
að hluta til uppgert og er vel
með farið hús.
Á það sér einhverja sögu?
- Já, en við eigum eftir að
kynna okkur þá sögu nánar.
Við höfum samt fundið ýmis
plögg frá fyrstu eigendunum.
Óttastu nokkuð draugagang
í gömlu húsi?
- Nei, ég held að það hafi
bara búið gott fólk í þessu húsi
svo að því hlýtur að fylgja góð-
ur andi út í Skerjafjörð.
Með þessum orðum þökk-
um við Sigríði spjallið og árn-
um henni og Kristjáni allra
heilla.
. mummm
HRINTI HONUM
Kœri draumróðandi!
Mig dreymir ekki mikið en nú
síðustu nœlur hefur mig dreymt
mikið, Hér er einn af þessum
draumum,
Ég var í skólanum, Þö kemur
strákur sem ég þekki ekki mikið
en hann var með mér f bekk í
fyrra. Við fórum erfthvað að
rífast og ég hrinti honum
þannig að hann datt aftur fyrir
sig og missti eina tðnn. Hann
varð mjög reiður og ég sá mjðg
eftir því að hafa hrint honum
svona harkalega en fannst
hann samt hafa átt þetta skilið.
Efflr þetta voru allir reiðir við mig
og mér leið mjðg illa.
Síðan langar mig að spyrja
hvað það merkir að dreyma
kvenmannsnafnið Ásta.
RÁÐNING
Þú ert greinilega á þeim aldri að
vera að „lakast á við“ slráka. Að
missa tönn þýðir að þroskast, svo
liklega munu einhverjir þroskast í
byltunum semþú veitirþeim. Einnig
þroskast þú við að nota strákahlið-
ina á þér og vera ákveðin. Þegar fólk
er reitt út i mann i draumum eru aðr-
ir hlutar af sjálfum manni að dæma
eitthvað sem maður hefurgert, sagt
eða hugsað. Þessir hlutar geta verið
innprentaðir af samfélaginu og upp-
eldinu. Hluti af þér álítur samt sem
áður að þú eigir rétt á þvi að hrinda
frá þér strákum (í óeiginlegri merk-
ingu) þar til að þú ert tilbúin að
semja við þá.
Kvenmannsnafnið Ásta táknar
ástina.
HITTUMST AFTUR
Mig dreymdi að ég og frœndi
minn vœrum ein heima. Svo
kom strákur, sem ég var hrifin af,
og léteins og hann œtti heima
þama en það átti bara að vera
eðlilegt. Svo áffl hann að fara
að pakka saman einhverju dóti,
sem áffi að vera hérna um allt
hús, og þegar hann var að láta
þetta niður í tðskuna tók ég effir
því að hann var með aðeins
síðara hár en síðast þegar ég
sá hann. (Ég hef ekki séð hann
í nokkra mánuði.) Það var
slegið með litlum flétfum f.
Svo fór ég til hans og spurði
hvort hann œtlaði ekki að kyssa
mig bless, en hann sagði nei. En
svo tókst mér að smella einum
kossi á hökuna á honum. Svo
tókum við utan um hvortannað
og kysstumst. Þegar við vorum
hœtt því, sagði hann að við
myndum hittast aftur. Þegar
hann var að fara leit ég út um
gluggann og sá kœrastann
minn keyra framhjá. Þá vaknaði
ég.
RÁÐNING
Draumurinn bendir til þess
að þú hafir ekki alveg útkjáð
samskiptin milli þín og stráks-
ins sem þú varst hrifin af,
svona djúpt i undirmeðvitund-
inni.
Dótið sem hann tekur sam-
an eru tilfinningarnar sem þú
berð enn til hans, þrátt fyrir að
þú sért nú með öðrum. Það er
tími til kominn að pakka þeim
saman og fjarlægja þær. Þú
hefur innst inni haft samvisku-
bit vegna þessara óuppgerðu
tilfinninga, því þú vaknar við
það að sjá kærastann þinn í
draumnum. Hluti af þér veit að
síðhærði ungi maðurinn þarf
48 VIKAN íiTBL. 1990