Vikan - 31.05.1990, Side 52
Gufusoðinn skötuselur
í bambuskörfu
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 20 mín.
Hófundur: Bjarki Hilmarsson
Fiskur
HRÁEFNI:
AÐFERÐ:
800 g skötuselur
1 laukur
1 paprika, rauð
1 paprika, græn
2 tómatar
1 courgette
5—6 rif hvítlaukur
10 g engifer, ferskur
Sósa:
5 msk. sojasósa
örlítið af cayanapipar
2 msk. tómatsósa
2 msk. ólífuolía
laukur
hvítlaukur
salt og pipar
■ Skötuselurinn er skorinn í sneiðar og raðað í bambuskörfu.
■ % af lauknum er skorinn í sneiðar ásamt papriku, tómat og courgette og
raðað ofan á skötuselinn. Engiferinn er afhýddur og skorinn í strimla og 3
hvítlauksrif og sett yfir grænmetið. Kryddað, saltað og piprað.
■ Karfan sett í pott með litlu vatni og þétt lok yfir. Ef bambuskarfa er ekki
til er hægt að sjóða fiskinn á smurðri pönnu með litlu vatni og þéttu loki.
Suðan látin koma Uþp og svo slökkt undir og látið standa í 5 mínútur.
■ Sósa: Sojasósa, cayana, tómatsósa, restin af lauknum saxaður, 2 hvít-
lauksrif söxuð, salt og pipar sett í skál. Blandað saman með þeytara og
ólífuolíunni bætt rólega saman við.
LU
_J
CC
o
“5
I
œ
Helstu áhöld: Pottur, bambuskarfa §
(fæst í Pipar og salti), hnífur, 1
bretti, skál, þeytari. s
Ódýr Ixl Auðveldur □ Heitur H o
Kaldur □ Má frysta □ Annað: 3
Jarðarberjaturn
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 15 mín.
Höfundur: örn Garðarsson
HRÁEFNI:
Tuiles (smjörkökur):
2,5 dl eggjahvíta
200 g sykur
150 g hveiti
125 g bráðið smjör
200 g fersk jarðarber, hreinsuð
og skorin í sneiðar
1 dl rjómi, þeyttur
6 cl Grand Marnier
1 msk appelsínubörkur, fínt saxaður
2 dl vanillusósa — sjá uppskrift í
4. tbl. ’89, uppskrift nr. 46
snjóegg á vanillusósu
4 msk þykk súkkulaðisósa
4 falleg myntublöð
Helstu áhöld: Palletta, pönnuköku-
spaði, ofnplötur, hrærivél, bretti,
hnífur, sprautupoki.
Ódýr □ Auðveldur □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
Ábætir
AÐFERÐ:
■ Allt sett í hrærivélarskál og þeytt í 5 mín. Sett með teskeið á vel smurða
þlötu og sett síðan í 200°C heitan ofn í 3-5 mín. Tekið strax af þlötunni og
látið standa á borði meðan kökurnar eru að kólna.
■ Ágætt er að strá möndlum á deigið fyrir bakstur.
■ Turn: Kexkaka, jarðarber og rjómi, síðan aftur kaka ofan á og svo koll
af kolli.
■ Súkkulaðisósa er sett á barmana á disknum, síðan vanillusósan ofan í,
jarðarberjaturninn í miðjuna og skreytt með súkkulaðidropum.
■ P.S. Við bakstur á tuiles er nauðsynlegt að platan sé vel smurð. Hægt
§ er að nota sprautupoka fyrir deigið og sprauta jafna toppa því deigið lekur
$ út í ofninum.
e ■ Þegar kexkökurnar eru teknar af þlötunni eru þær strax mótaðar í báru
sj með því að leggja þær á kökukefli eða kústskaft.
”3
1
œ
o
'Z
o
<
2