Vikan - 31.05.1990, Síða 55
A Hópurinn saman kominn. F.v. Dagur
Gunnarsson, formaður leikhópsins, Marteinn
Marteinsson, Margrét Óskarsdóttir, Oddný
Kristjánsdóttir, Ólöf Kristjánsdóttir, Jóhann
Valdimarsson, Sólveig Þura Jónsdóttir, Jóna
María Norðdal, Sigurbjörg Eiðsdóttjr, Elsa
Gísladóttir, Bjarni Guðmundsson, Ágústa
Óskarsdóttir og Bjarni Gunnarsson.
◄ Dr. Diaforus læknir t.v., leikinn af Bjarna
Guðmundssyni, og sonur hans, Tómas Diaforus,
nýútskrifaður læknir, leikinn af Bjarna
Gunnarssyni. Faðirinn viil gifta son sinn
Angelique, dóttur hins ímyndunarveika en sá
ætlar að notfæra sér þjónustu læknanna því
hann er sannfærður um að hann sé haldinn
ýmsum kvillum.
◄ ◄ Marteinn Marteinsson i hlutverki Cleants,
hins unga leynilega elskhuga. Margrét
Óskarsdóttir sem Angelique, dóttir hins
ímyndunarveika sem vill fá annan tengdason. Sá
er sonur dr. Diaforus læknis. Fiðluleikarinn er
Ágústa Skúladóttir.
urnar sem eru heljarmiklar, púðraöar í bak og
fyrir.
Búningar sem þessir eru mjög dýrir ef á að
kaupa þá og fjárhagur leikhóþsins bauð ekki
upp á að ráðist yrði í slíkar fjárfestingar. Þeim
hugmyndum var velt upp að vera bara í ein-
földum svörtum búningum með blúndulaf úr
ermum og slaufur á skóm, sem myndu einung-
is gegna táknrænu hlutverki í stað fullkominna
búninga. Ekki var hægt að fá leigða eða lán-
aða búninga þar sem þeir eru mjög dýrir og
enginn fæst til að lána slíkt. Hvað var til ráða?
Haft var samband við Karl Aspelund sem
hafði staðið fyrir hönnun á svipuðum búning-
um fyrir þjóðleikhúsið og hafði hann einnig
kennt búningasögu fyrir ýmsa aðila. Sú hug-
mynd kom fram að fá iðnskólanema á síðasta
ári í fataiðndeild til að sauma búningana og
þegar þessi hugmynd var viöruð við þá tóku
þeir strax mjög vel í hana. Karl hélt fyrirlestur
fyrir þá um klæðnað þessa tímabils og út frá
Búningur úr smiðju iðnskólanemanna mátaður á
Ágústu. Það eru þær Sólveig Þura, Ólöf, Jóna
María og Oddný sem virða fyrir sér afrakstur
mikillar vinnu.
Hárkollan mátuð á Margréti Óskarsdóttur.
Hárkollumeistararnir eru úr fjöltæknideild
Myndlista- og handíðaskóla Islands, Sigurbjörg,
Jóhann oa Elsa.
þeim uþplýsingum hófust nemarnir handa við
saumaskapinn. Þeir lögðu mikla vinnu ( að
leita að ódýrum efnum, svo sem gardínuefnum
og öllu tiltæku sem kæmi að notum við verk-
efnið.
Fantasía leitaði einnig til Myndlista- og
handíðaskólans, nánar tiltekið til fjöltækni-
deildar hans, eftir fólki sem vildi taka að sér að
búa til hárkollurnar. Þar fengust einnig mjög
jákvæðar undirtektir. Hárkollumeistarar Þjóð-
leikhússins voru nemunum innan handar og
bentu þeim á ódýrar leiðir við að framkvæma
verkið. Meðal annars að nota hamp i kollurnar,
sem er bæði ódýrt og vel meðfærilegt efni.
Þess má geta að nám í hárkollugerð tekur
um þrjú ár úti í hinum stóra heimi og er árangur
þessara nema vægast sagt frábær miðað við
að þeir eru að stíga sín fyrstu spor á þessari
braut. Það sama má segja um búningana sem
iðnskólanemarnir saumuðu og eru mikið
vandaverk.
Þeim sem hafa áhuga á að sjá ímyndunar-
veikina, sem er mjög líflegur gamanleikur sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara, er bent á
aö fyrsta sýningin verður í Skeifunni 3c 27.
maí næstkomandi.
HTBL.1990 VIKAN 53
LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON