Vikan


Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 6

Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 6
 4 VIKAN, nr. 51—52, 1941 [Hjálmar Jónsson fæddist á Halllandi við Eyjafjörð 1796. Móðir hans var ógift og' heimilislaus, og vafi lék á um faðernið. Förukona var til fengin að bera svein- inn næturgamlan til hreppstjóra. En fátæk ekkja tók bamið upp af götu sinni, og hjá henni ólst Hjálmar upp til fermingaraldurs. 1820 fluttist hann vestur í Skagafjörð, kvæntist ungur, hlóð niður ómegð, átti við þrotlaust basl og örbirgð að búa til dauðadags, 1875. Þrátt fyrir alla kreppu tókst Hjálmari að afla sér mikillar menntunar, og orti því betur, sem hann varð eldri. Mun hann jafnan verða talinn eitt af svipmestu skáldum íslendinga. Held eg nú loks mín hinstu jól, hörmunga klæddur skugga, fýkur í gjörvöll frelsis skjól, fjöll hylja sól, fátt má öreígann hugga. Jeg á þig eftir, Jesús minn, jörðin þó ÖU mér hafni, I þér huggun og frelsi finn, fróun hvert sinn flýtur af þinu nafni. AUt er tapað, ef tapa eg þér, trygðavinurinn blíði, aldrei brugðizt í heimi hér hefur þú mér, hjálpar snauðum í stríði. Iæitt hefur mig þín líknarhönd lífs á fallhættu stræti, greitt mín vandræða gjörvöli bönd, glatt líf og önd, gefið mér oft meðlæti. Mér hefur góða menn á iáð marga til hjálpar senda, þeim sé næst guði þökkin tjáð, þeirra lífs ráð þrifast lát fram til enda. (Islenzk lestrarbók.) ]. Ráð mitt er nú á reiki allt, rök dauðans öli sig sýna, iíkamans slitið hreysið ha.ilt hrynur gjörvallt, heyrn og sjón óðum dvína. Jesús mitt líf og læknir er með lifanda orði sinu, gimstein einn, sem gefið hér guð hefur mér, geymi eg í hjarta mínu. Og'þó að synda sektin há sífelt mig geri klaga, fyrir skuidinni enn jeg á, svo ekki má undir straffið mig draga. Nauðhjálpari minn, Iíristur klár, kom mína þörí' að bæta, örmagna styn jeg eUi-grár, angistar tár oftíega liinnar væta. Svo er þá allt mitt syndugt líf sorganna flíkum vafið, amar söknuður, ellin stíf, örbirgð og kíf, allt er hörmungum kafið. Dýrð sé Guði í upp- hœðum . . . Framhald af bls. 3. Nei, í ljósadýrð hinna steinlögðu stræta er vafasamt, að þeir hefðu nokkru sinni orðið hennar varir, vafasamt, að þeir yfirleitt hefðu horft til himins. Það er eitt af undrum jólanna að þau grípa athygli vora, einnig at- hygli vor, sem búum við hin stein- lögðu stræti og beina henni til himins. Þau minna oss á það, börn þess- arar tímanlegu jarðar, að vér eig- um yfir oss eilífan himin Guðs máttar og miskunnar — að það er yfir oss vakað í hæstri hæð. Sá var boðskapur hans, sem varð hold og bjó með oss, fullur máttar og miskunnar, svo að vér sáum dýrð hans, dýrð sem einget- ins sonar frá föður. Og ég held mér sé óhætt að full- yrða, að ríkara þakkarefni á ekki mannlegt hjarta — ekki ef vér erum hreinskilin og grandskoðum vorn eiginn huga í ljósi vorra eigin örlaga. Megi hann því hljóma sem ein- lægast og almennast af vörum vorum á þessum jólum lofsöngur- inn: „Dýrð sé guði í upphæðum.“ Og af því ríkari fúsleik skyldum vér taka undir þann lofsöng, sem vart mun, án þakklætis og elsku til Guðs, vera að vænta fegurðar og friðar á jörðu. Dýrð sé guði í upphæðum og friður á jörðu. Alít nú iáðir andvörp mín, er jeg til himins sendi, orðum jeg kvaka þeim til þín í þjáning og pín, þinn sonur mér sem kenndi. Son guðs, frá þessu segi eg þér, sjálfur því liðið hefur, ailt hvað á jörðu amar mér í eymdum hér, — efiaust því styrk þú gefur. J7ó laðæn. Vertu hjá mér, þig skal blíðan biðja, byrg ei eyrun, þó að ég sé smár. Vilt þú ekki hjálpa, styrkja, styðja, stærsti Jesú, drottinn máttarhár. Ver mér nær, ef harmadapur dagur dregur táraský á augu mín. Ver mér nær, ef lán og heillahagur horfir við — þá gef ég minnist þín. I. F.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.