Vikan


Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 37

Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 37
 VIKAN, nr. 51—52, 1941 35 5 FRAMHAIDSSAGA: Bréf drottningarinnar, „Ég hefi skemmt mér prýðilega," sagði Wray- son. „Ungfrú Edith hefir verið mjög vingjarnleg við mig.“ „Það gleður mig, að þið skulið vera orðnir svona góðir vinir," sagði ofurstinn. „Hún er nokk- uð frjálsleg í framkomu, er ég hræddur um, og hún er líka ófurlítil skvaldurskjóða, en hún er ágæt til að skemmta manni, sem hefir taugar eins og þér. Mér virðist þér vera nokkuð fðlur ennþá.“ Wrayson var að því kominn að segja honum frá myndinni, en það var eins og tunga hans festist við góminn. Hann hafði verið beðinn um að koma með föt með sér og borða kvöldverð, og á meðan hann skipti um föt, tók hann þá ákvörðun, að hann skyldi horfast í augu við stað- reyndirnar og taka öllu eins rólega og hann gæti. Það gat ekki leikið nokkur efi á um það, að etúlkan, sem hann hafði komið að í íbúð sinni og seinna hjálpað út úr húsinu, var sú sama og myndin var af. Hún var dóttir ofurstans. Það fór hrollur um hann, þegar honum datt í hug, að það var ofurstinn sjálfur, sem benti á þann mögu- leika, að kvenmaður gæti verið flæktur inn í málið. Hálfklæddur settist hann á stól og huldi and- litið í höndum sér. Kvöldverðarbjallan reif hann upp úr draumum hans. Hann spratt á fætur. Hann toatt hálsbindi sítt með skjálfandi fingrum og lauk við að klæða sig og reyndi að bægja þess- .um leiðinlegu minningum frá sér. Kátína hans við borðið var næstum óráðskennd. Edith Fitz- maurice, sem sat við hlið hans, fannst hann vera prýðilegur sessunautur. Aðeins ofurstinn leit áhyggjufullum augum til hans við og við. Hann sá greinilega, að kátína vinar hans var uppgerð ,og þessi undarlegi, brennandi neisti í augum hans gerði ofurstann órólegan. Þcir voru einu karlmennirnir við borðið, og þegar konurnar höfðu dregið sig í hlé, bauð ofurstinn honum vindil og benti á portvínsflösk- „Ef þér kærið yður ekki um meira vín, skulum við fara út í garðinn og reykja,“ sagði hann. Wrayson stóð strax upp. „Ég veit ekki, hvað ■að mér gengur, en mér finnst ég vera að kafna.“ Þeir gengu út í milt og svalandi kvöldloftið. JNætui'gali söng í trjánum og loftið var mettað angan vorblómanna. Wrayson andaði djúpt og var eins og honum létti. „Við skulum setjast, ofursti," sagði hann. „Ég þarf að segja yður ofurlítið.“ Ofurstinn fór með hann að bekk, sem stóð í garðinum. Nokkrar stjörnur blikuðu á himninum, en tunglið sást ekki.' Runnarnir og trén virtust svört i rökkrinu og sáust einkennilega greini- lega, þegar þau bar við himininn. „Munið þér, ofursti, að ég sagði yður frá ungri stúlku, sem ég hitti í íbúð minni þetta margum- rædda kvöld?“ spurði Wrayson lágt og var und- arlega loðmæltur. Ofurstinn kinkaði kolli. „Já, auðvitað! Hvað unl hana? Ef ég á að vera hreinskilinn, er ég hræd'dur um, að ég —“. Wrayson tók í flýti fram í fyrir honum: „Segið þér ekkert, ofursti,“ sagði hann. „Bíðið þangað til þér. hafið heyrt það, sem ég hefi að eegja. Ég hefi séð mynd af henni í dag.“ Ofurstinn tók vindilinn lit úr munninum og leit á hann. „Mynd af henni!“ sagði hann. „1 dag! Hvar? Kæri vinur, þetta er mjög æsandi. Já, þér vitið um álit mitt á þessari ungu —“. Forsaga : Kv™ nokkurt, þegar ° rithofundurmn og blaða- maðurinn Herbert Wrayson kemur heim, finnur hann unga stúlku vera að skoða skjöl í skrifborði hans. Hún hafði farið óvart inn til hans, en ætlað til Morris Barnes á hæðina fyrir ofan. Síminn hring- ir og Wrayson er beðinn fyrir skilahoð til Barnes. Wrayson sofnar í stól, vaknar um nóttina og mætir stúlkunni á ganginum. Hann finnur Barnes í vagni fyrir utan. Barnes hefir verið myrtur og ekillinn fer með likið á lögreglustöðina. Rúmri viku seinna sitja sex menn í Sheridan-klúbbn- um og ræða morðið. Þrír þeirra, Fitz- maurice ofursti, Mason og Heneage, eru góðir vinir Wraysons. Ofurstinn fer- til Wraysons um kvöldið, og segir Wrayson honum alla söguna. Morguninn eftir kemur Bentham, sá er bað fyrir skilaboðin um nóttina, til Wraysons á skrifstofu hans. Hann vill fá einhver bréf, sem Wrayson kannast ekki við. Ofurstinn þíður vinum sínum i garðveizlu. Þar sér Wrayson mynd af stúlkunni, sem var í íbúð hans um kvöld- ið, og hann kemst að raun um að þetta er dóttir ofurstans, sem hefir orðið ósátt við föður sinn. Aftur tók Wrayson fram í fyrir honum, og nú var hann mjög ákafur. „Ég hefi séð mynd af henni á heimili yðar, ofursti,“ sagði hann. „Dóttir yðar sýndi mér hana — í myndahefti!" Ofurstinn sat eins og maður, sem allt í einu hefir breytzt 1 steingjörving. Höndin, sem hélt á vindlinum, skalf svo mikið, að askan féll niður á frakka hans. „Haldið áfram,“ hvíslaði hann. „Ég spurði ungfrú Edith af hverjum myndin væri og hún sagði mér, að það væri dóttir yðar! Stjúpsystir ungfrú Edith! Fyrirgefið mér, ofursti, en ég mátti til með að segja yður þetta!“ Það var eins og ofurstinn hefði fallið alveg saman. Vindillinn datt úr hendi hans niður í gras- ið, án þess að hann tæki eftir þvi og sársauka- drættir voru um munn hans. „Dóttir mín — dóttir — Louise dóttir mín!“ stamaði hann. „Þér getið ekki meint þetta, Wray- son?“ „Þetta er satt,“ sagði Wrayson. „Ég þori að leggja líf mitt að veði fyrir, að unga stúlkan, sem ég sagði yður frá, er sú sama og ég sá myndina af í dag. Ég sá líkinguna strax, þegar ég sá Edith dóttur yðar.“ Ofurstinn hafði hulið andlitið í höndum sér. „Ó, guð!“ tautaði hann og það hljómaði næst- um eins og grátur. Síðan varð dauðaþögn, aðeins næturgalinn hélt áfram að syngja. VIII. KAPlTULI. Barónsfrúin sat og fitlaði við fáein vínber, á meðan hún horfði kæruleysislegu og þreyttu augnaráði í kringum sig í salnum. „Kæra Louise,“ sagði hún. „Ég verð að viður- kenna, að það er alveg satt, sem sagt er um land ykkar, að það sé hversdagslegt. Og þið eruð sjálfsagt leiðinleg þjóð! Mér dauðleiðist að vera hér.“ Unga stúlkan, sem hún hafði nefnt Louise, yppti öxlum. „Mér líka og okkur flestum," svaraði hún ólundarlega. „En hvað viltu láta gera? Maður neyðist til að búa einhvers staðar.“ Barónsfrúin andvarpaði og tók sígarettuveski úr gulli af keðju sem ýmsir fallegir smámunir hénngu á. Árvakur þjónn kom þjótandi með eld- spýtu. Barónsfrúin andvarpaði ánægjulega og hallaði sér aftur á bak í stólnum. Hún reykti sígarettu sína með meðfæddum glæsileik. „Auðvitað verður maður að búa einhvers stað- ar á jörðunni, satt er það,“ sagði hún. „En hvers vegna í London? Mér finnst þessi borg vera lang sveitalegust af öllum stórborgum, sem ég þekki til. Hana vantar allt fjör og tilbreytingu. Allir hér eru svo kurteisir og hræðilega, hræði- lega leiðinlegir. En hvað Paris og Berlín og jafnvel Brússel eru allt öðruvísi." „Jæja — við megum ekki dæma of hart. Við verðum líka að taka ofurlítið til greina þær kringumstæður, sem við búum við. Er það ekki satt?“ sagði Louise. „Við höfum svo lítil tæki- færi til að kynnast og skemmta okkur.“ Barónsfrúin gretti sig. „Þú sjálf, kæra vin- kona, ert mjög áberandi ensk,“ sagði hún. „Þú mundir aldrei kynnast hér, þótt tækifæri væri til þess. Mér finnst ég vera fjötruð með járn- hlekkjum, þegar ég er með þér. Hvernig skyldi standa á því? Langar þig aldrei út og skemmta þér reglulega vel?“ „Ég skil þig ekki vel,“ svaraði Louise þurr- lega. „Ef þú átt við, að ég hafi óbeit á að halda áfram kunningsskap, sem stofnað er til af til- viljun, þá hefir þú á réttu að standa. Þá vil ég heldur láta mér leiðast." Barónsfrúin andvarpaði. „Þá þýðir ekki að tala um það. Við skulum fitja upp á einhverju nýju. Eigum við að fara í leikhúsið í kvöld?“ „Ef þig langar til þess,“ svaraði Louise kæru- leysislega. „Bn það er víst ekki margt, sem við erum ekki húnar að sjá?“ „Við skulum ná í blað,“ sagði barónsfrúin. „Við getum ekki setið hér og horft hvor á aðra allt kvöldið. Við verðum að heyra hljómlist, þá líður tíminn dásamlega fljótt. „Heyrðu, Louise," sagði hún allt í einu, „mér datt dálítið í hug. Getum við ekki t. d. farið í „Alhambra" ? Við gætum leigt einar svalirnar og sazt aftast í þær.“ „Það er alls ekki viðeigandi," svaraði Louise stíft. „En ef þig langar mikið til þess, þá — og þó veit ég ekki — ég veit sannarlega ekki.“ Hún þagnaði allt í einu og hallaði sér lítið eitt áfram í stólnum — það var eins og allt kæru- leysi hennar væri rokið út i veður og vind. Kinn- ar hennar, sem áður voru fölar,- voru nú eld- rauðar og þreytuleg augu hennar höfðu fengið undarlegan gljáa. Var það ótti eða aðeins undrun ? Barónsfrúin eyddi tímanum ekki i spurningar, en lyfti nefgleraugunum sínum og horfði i sömu átt og Louise. Maður kom úr hinum enda salsins og horfði fast á borð þeirra. Hann var hár og grannur; hann var mjög fölur og drættir, sem báru vott um einbetni, voru um munn hans. Barónsfrúin sá strax, að hann kom fram eins og hefðarmaður. Hún lagði nefgleraugun niður og leit brosandi á Louise. Hún var þegar tilbúin að taka á móti honum. Ungi maðurinn nam staðar við borð þeirra og snéri sér strax að Louise. Barónsfrúin hleypti brúnum, þegar hún sá, hve kuldalega Louise tók á móti honum. Hún hallaði sér ofurlítið áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.