Vikan


Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 13

Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 51—52, 1941 11 Ógleymanlegur hundur. Sunnybank Bobby var risastór, mó- rauður og hvítur hundur, sonur hins fræga Bruce, sem ég átti líka. Hann dó fyrir 17 árum. Þrátt fyrir það man ég betur eftir honum en mörgum manni eða konu, sem dáið hafa síðan. Ég valdi hann úr átta hvolpa hóp, þegar hann var fimm mánaða gamall og átti hann að verða heimilishundur minn og félagi. Bobby var einn af þeim fáu hundum, sem þurfa aðeins að heyra skipun einu sinni til þess að skilja hana og muna. Pyrsta daginn benti ég honum á stað á skrifstofu minni og annan í borðstofunni,. þar sem hann mátti liggja. Hann gleymdi því aldrei. Bobby hafði einkennilegasta hundsheila, sem ég hefi nokkru sinni rekið mig á. Hann var mjög hreykinn af afreksverkum sín- um. Þegar hann var hvolpur, kenndi ég honum að ganga stigann upp á næstu hæð. Þetta fannst Bobby þvílíkt þrekvirki, að hann hljóp upp og niður stigann í margar vikur, ef einhver gestur var kominn, sem hann gat sýnt þetta. Þessi saga endurtók sig með allt nýtt, sem hann lærði. Þegar ég vaknaði á morgnana, stóð hann alltaf þegjandi og þolinmóður við rúmið mitt. Hann varð hamslaus af gleði, þegar ég opnaði augun, gelti um það bil tvær mínútur og var allur á hjólum. Síðan var hann þögull, það sem eftir var af deginum. Einu sinni elti hann mig upp á háaloft, en þar var ég að leita að fáeinum gömlum bréfum, sem geymd voru í lítið notuðu Eftir ALBERT PAYSON TERBUNE. herbergi þar. Ég benti á ákveðinn stól og sagði honum að liggja í honum. Það liðu tvö ár, áður en hann elti naig þangað aft- ur af tilviljun. Á þröskuldinum sagði ég honum, án þess að gefa nokkra bendingu, að hann ætti að finna sinn stól af fjórum stólum, sem voru þar, og leggjast í hann. Bobby hikaði aðeins andarták og horfði vandræðalega á stólana. Þá rankaði hann við sér og skreið upp í stólinn, sem ég hafði helgað honum í fyrra skiptið. Eftir fyrstu gönguferðina okkar á þjóð- veginum, þurfti ég aldrei að kalla á hann, þegar bíll nálgaðist, eða gefa honum bend- ingu um að ganga rólega við hhð mér, þangað til ófreskjan væri farin fram hjá. Framhald á bls. 47. Orðaþraut. ÓLIN F AST AKUR TE YG V ALT S K AR Á S A R LlNU ÆTAN Framan við hvert þessara orða á að setja einn staf, svo að ný orð myndist. Séu þeir stafir lesnir að ofan og niður eftir, myndast nýtt orð. Það er nafn á borg í Asíu. Sjá svar á bls. 47. I Vitid |»ér það? | = 1. Við hvern sagði Jesús: „Áður en han- | inn galar tvisvar, muntu þrisvar af- = | neita mér.“? | | 2. Eru nokkrar reikistjömur á milli jarð- = | arinnar og sólarinnar? | | 3. Hvað er ,,mural“ ? | 1 4. Hver hefir skrifstofu í Downing Street = 10 í London? | = 5. Hvað er fjallið Skjaldbreiður hátt? 5 6. Hvað heitir söngleikurinn, sem er um 1 japanska stúlku, er varð ástfangin af I | amerískum sjóliðsforingja ? | | 7. Hvenær gaf Guðbrandur Þorláksson \ Hólabiskup biblíima út á íslenzku? E 8. Með hve mörgum brauðum og fiskum I mettaði Jesús fimmþúsimdimar ? | = 9. Er Miðjarðarhafið stærra en Mexico- | I f lóinn ? = E 10. Hvað þýðir orðið „limitera" í verzlim- | | armáli ? = 11. Hve margar bænir eru í „Faðirvor- = 1 inu“ ? 1 = 12. Hvað er heimaklettur í Vestmannaeyj- = = um hár? = = 13. Hvort berst hljóð hraðar í lofti eða | 1 vatni? | = 14. Hver tók við konungdómi eftir Gustav = Adolf í Svíþjóð ? | = 15. Hver voru fyrstu orð Charles Lind- = berghs, þegar hann hafði lent á flug- | 1 vellinum í Paris og 10000 manns voru | þar samankomnir til að fagna honum ? = = 16. Hvenær dó Hallgrimur Pétursson? | | 17. Hvað er „sampan"? | | 18. Undir hvaða minnismerki hvílir óþekkti | | hermaðurinn í París? f 19. Hve mörg orð eru í styzta versinu í | E biblíunni ? E 20. 1 hvaða löndum, sem ekki eru kaþólsk, | = eru biskupar ? | 21. Hvaða frægur maður var kvæntur | kvikmyndaleikkonunni Billie Burk? | 22. Hvenær dó Páll Vídalín lögmaður? | 23. Hvenær og hvaðan fóru sígarettur að | breiðast út í Evrópu? j 24. Hvað er Rauða-Rússland ? 1 25. Hver er elzta borg heimsins, eftir frá- j = sögn biblíunnar ? I Sjá svör á bls. 47. | fékk eins margar flöskur af messuvíni heim með sér og hnakktaskan rúmaði, og loforð um meira seinna. Og af því að drott- inn hafði nú stígið fyrsta sporið, kom Lýður til kirkju á jóladag og tók undir sálmasönginn og söng hátt, mjög hátt. Séra Björn hafði gaman af að halda ræð- ur, við hátíðleg tækifæri talaði hann lengi. Lýður sat hjá altarinu og dáðist að mælsku vinar síns, unnti öðrum að njóta þess líka, og blundaði sjálfur á meðan. 1 miðri ræð- unni þurfti meðhjálparinn að taka skarið af einu altariskertinu, hann gerði það með fingrunum, brenndi sig, og fleygði skarinu — það lenti í hárkollu Lýðs. Lýður svaf vært og hraut. Brátt fór að rjúka úr koll- unni. 1 fátinu ætlaði meðhjálparinn að slökkva á skarinu með því að blása á það, við það gaus eldurinn upp úr hárkollunni, eldtungur umluktu höfuð Lýðs eins og dýrðarbaugur, hann vaknaði af værum draumi, sá meðhjálparann standa og blása að eldinum í höfði sínu, fleygði logandi hárkollunni framan í hann — og hrópaði hástöf um: Hafðu það þá allt, helvítis brennuvarg- urinn! Að svo búnu skundaði Lýður út úr kirkjunni og heim til tunnunnar, hún var guðsgjöfin hans. Þegar leið að þrettánda hafði Lýður með hjálp vina og gesta og einkum af eigin rammleik tæmt tunnuna. Næsta sunnudag fór hann til altaris. Þegar séra Björn rétti að honum kaleikinn, greip Lýður hann með báðum höndum — og andvarpaði: Gott var það, rekavínið mitt! .... Skömmu seinna dó hann reyndar. Séra Björn talaði yfir honum og talaði fallega. Þeir, sem fylgdu, og það voru margir, höfðu oft grátið af hlátri yfir uppátækj- um Lýðs, en nú grétu þeir af öðrum ástæð- um. Jón fangi fylgdi og fékk að haida í einn hankann — hann var ekki skyldugur til þess, það var heldur enginn, sem hafði dæmt hann til þess, en hann vildi gera það. Lýður hlaut þannig virðulega útför — en ekkjan. var kvíðin. Þegar búið var að fylla gröfina með frosnum moldarhnausunum, og logndrífan var sem óðast að þekja yfir öll ummerki, tók hún séra Björn á eintal: Hvar heldurðu að Lýður sé núna, séra Björn? spurði hún kvíðafull. Séra Björn horfði hugsandi á hana — og sagði: Hefðir þú í raun og veru viljað hafa Lýð öðruvísi, madama Rannveig, ef frá eru teknir einstaka smágallar hans? Madama Rannveig hristi höfuðið — hún hugsaði: En ég þekkti hann — hann var þó maðurinn minn. Heldurðu, að drottinn sé ekki eins um- burðarlyndur? spurði séra Björn. Efalaust, svaraði madama Rannveig: En afturhvjarf hans núna undir það síð- asta ... V i ð eigum ekki að rannsaka hjörtun og nýrun, svaraði séra Bjöm og brosti með sjálfum sér að endurminningu, sem skaut upp í huga hans. En hann gat verið harður í horn að taka, sagði madama Rannveig — en þó í þeim tón, sem hefði hún séð honum bregða fyrir á hinum rétta stað. Séra Bjöm sagði með kaldranalegum galsa: Það er drottinn líka! Þeir koma sér áreiðanlega saman! ... Ó-já, þetta var í gamla daga. En nú eru menn orðnir svo siðsamir og vitrir. Fang- amir em lokaðir inni í búrum. Og jafnvel guðsmennirnir reykja sígarettur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.