Vikan


Vikan - 18.12.1941, Side 8

Vikan - 18.12.1941, Side 8
6 VIKAN, nr. 51—52, 1941 yiwi öl lœújdu uQtKöLhJa/ÁÍdí IIK ú gengur um götur borgarinnar í Wr önnum aðfanganna fyrir jólin. Fullar búðir, troðin stræti, ys og erill, mas og fliss, árekstrar og olnbogaskot,. eitt og eitt andlit, sem þú þekkir, ein og ein kveðja, handaband í flaustri, ef ekki er alveg komið að lokunartíma, „gleðileg jól“ með ákvæðishraða. Allt þetta skilur eftir skapnaðarlausa, persónulausa, andlitslausa aðkenningu hjá þér, sem kann að vef jast fyrir vitund þinni um leið og hún slokkn- ar á koddanum að kvöldi, erilþjökuð og úrvinda. Má vera að upp úr þessari móðu standi eitt eða tvö andlit, sem lýstu mikilli gleði eða augljósri sorg. Má vera að þau hafi birt þér flöktandi vitneskju um mikil örlög. Og það veiztu, að innan allra þess- ara mislitu klæða, bak við öll þessi andlit, eru fólgnar tilfinningar, lífsstríð og saga einstaklinga í óendanlegri, óyfirsjáanlegri margbreytni. En eftir hundrað ár verður allt þetta fólk horfið í moldina og saga stríð og örlög flestra gleymd, hvort sem það var glatt þetta kvöld eða hryggt, Ijótt eða fallegt, ríkt eða fátækt, gáfað eða heimskt. Þá verða það aðrir, sem hlæja eða gráta, ýtast og hrindast, heilsast og kveðjast í Austurstræti, — ef það verður þá heldur til. Þetta er engin jólahugleið- ing, en það er nú samt hugleiðingarefni fyrir okkur báða, mig og þig, svo blátt áfram og ófrumlegt sem það annars er. Hefur aldrei vaknað hjá þér sú spurning, sem laust mig einu sinni á köldu vetrar- kvöldi í skarkala f jölfarins strætis: Hvað er allt þetta fólk, allt þetta ógrynni af mann- verum um öll stræti og torg, byggðir og ból jarðarinnar? Er mannfólkið annað en strá, sem spretta úr moldinni, vaxa, drekka í sig döggina og geislana, skjálfa fyrir vind- unum og fölna fyrir frostinu og falla fyrir ljánum í algjöru tilgangsleysi og án nokk- urs takmarks? Hvað er mannhafið, og hvað er ég, fallandi dropinn í flaumi þess? Guð? Er það satt, sem oss hefur verið sagt, að til sé sú meðvitund, sem umlykur allt þetta ógrynni, greinir þessa mergð í einstaklinga, fylgist með hverju feti til hryggðar eða gleði? Hefur nókkurn tíma nokkrum hlut verið haldið fram, sem sé eins hóflaus, eins ótrúlegur eins og þetta? Maður getur skilið, að Guð hafi í hendi sér göngu hnattanna, að hann hafi skapað sér þessa flugeldamergð til gamans og hafi stjórn þeirra sér að dægradvöl. Það er að minnsta kosti hófleg og sanngjörn hugs- un. En að hann skipti sér um kraðakið, sem kviknar á einu fátæku fylgitungli eins hinna geislandi djásna í geimnum, sinni óværunni, sem skríður í moldinni á myrk- um öreigahnetti í afkima ómælisins, ér það ekki óhugsanleg f jarstæða, hreint og klárt örvitahjal? Þó ekki liggi í augum uppi að afneita slíkri fjarstæðu út frá Guði sjálf- um, ef hann er þá til, er það þá ekki sjálf- Eftir séra Sigurbiörn Einarsson. gert út frá mannlífinu sjálfu, öllu þess auvirði, endalausu fávizku, glöpum og giftuleysi ? Og svo gat hann þarna austur í Gyð- ingalandi gengið um og talað um föður- inn á himnum eins og hvern annan sjálf- sagðan hlut, föðurinn, sem vissi um ein- staklinginn, leitaði hans, annaðist hann, hefði örlög hans rist inn í hjarta sér. ,,Já, jafnvel hárin á höfði yðar eru öll talin,“ — hvað þá andvörpin, áhyggjurnar, ákvarðanirnar til ills eða góðs. Og Jesús frá Nazaret gekk um og sagði frá þessu, hann kenndi það ekki eins og kenningu, sem maður fikrar sig fram til með því að brjóta heilann og draga ályktanir, liann sagði frá því, eins og maður segir frá því, sem maður hefur séð og þreifað á og er hafið yfir allar umræður. Og hann hikaði ekki við að innsigla þessa vissu sína með afneitun allrar frægðar, heiðurs og hylli, já, með afsali þess, sem vér elskum þó mest, lífinu sjálfu. Og þessi látlausa frá- sögn hans, þessi hógværa vissa, var smit- andi. Eftir dauða Jesú hafa margir gerzt reiðubúnir að innsigla hana með lífi sínu. Á hverju hefir þessi vissa nærst? Er það lífshvöt dýrsins, nýtt stig í þróun þeirrar hvatar, sem hefir legið til grund- vallar fyrir lífsbaráttu tegundanna frá öndverðu, — hvaðan sem sú hvöt kann að vera komin? Ef til viíl situr Höfuð- smiðurinn með hnettina og geimblysin og hefir að skopi flónsku óværunnar á þessu fjarlæga, myrka hnattkrýh? Eða nærir Höfuðsmiðurinn þessa óra sér að augna- gamni, sem eitt lítið apaspil til tilbreyt- ingar við hliðina á sigurverki vetrarbraut- anna ? Það kann að vera skynsamleg hugs- un. En ennþá hefir enginn Jesús frá Naza- ret boðað slíka trú, né neinn látið lífið fyrir hana. Eða er það svo, sem ýmsir lærimeistarar nútímans boða, að maðurinn sé ekki annað en hendingarfyrirbæri blindra duttlunga í náttúrunni? Ég skil, að slíka hugsun geti sett að manni sem hrylling á köldu kveldi. En hitt skil ég ekki, að það sé boðað sem fagnaðarerindi, eins og mikið lausnarorð undan skaðsam- legum hégiljum. Og það skil ég heldur ekki, að sömu mennirnir, sem kenna þetta og trúa þessu, skuli verða undrandi, þegar tilfinningin fyrir mannslífinu hverfur hér í álfu, þegar loks er farið að gera alvöru úr því að líta á manninn eins og grasið á jörðunni. Það er sjálfsögð og sjálfkrafa ályktun hinnar skynsamlegu forsendu. En svo er það hann, Jesús frá Nazaret, sem var svo allsendis ófróður um nokkurt spurningarmerki aftan við hugtakið „himneski faðir“. Vissi hann ekkert um meiningarleysi mannlífsins? Sá hann ekki eins vel og ég og þú allar þessar mann- verur, alla þessa kös, sem er eins og illa samin og óleysanleg gáta? Sá hann ekki grimma harma, kvöl og böl, allar þessar fórnir, sem virðast færðar út í bláinn? Hvað vissi hann? Hvað kom til, að hann gat með fullkomnu, hóglátu öryggi lagt oss á tungu: Faðir vor; þú sem ert á himn- um? Hvað kom til, að hann gat sagt án nokkurs hiks, án nokkurs efa: Það er ekki vilji föður yðar, sem er á himnum, að einn einasti þessara smælingja glatist. Þetta boðaði hann eins og skilaboð að handan. Og nú skal ég segja þér eitt: Ég er viss um , að hann hefir heyrt rétt og skilað rétt. Ég veit ekki, hvernig því víkur við. Ég get ekki skilið það, ekki skýrt það. Það er mér undursamleg ráðgáta, að ég skuli vita með fullkominni vissu, að Jesús frá Nazaret vissi betur, hvað hann var að segja, en allir aðrir til samans, stórir og smáir, að þetta eina orð ,,faðir“ af vörum hans skuli vera máttugra í vitund minni, en hver hvíslandi efasemi og óttablandin spurn, sem svífur yfir fólkinu á jörðinni. Það er talað um manngildi, mannrétt- indi, virðingu fyrir einstaklingnum, lífi hans, tilfinningum hans. Allt þetta er í voða eins og stendur. Allt þetta er svívirt og fótumtroðið í dag, og morgundagurinn gefur ekki mikil fyrirheit um sjálfkrafa umskipti í þeim efnum. Og þegar þú athug- ar nánar þau áhrif, sem þú verður fyrir af iðandi mannf jöldanum á strætinu, þá við- urkennir þú máske líka, að það þarf nokk- uð til, til þess að þú getir fundið til ábyrgð- ar, samúðar og hluttekningar með öllu þessu fólki, það þarf nokkuð til, til þess að þér sé í rauninni ekki nákvæmlega sama um allt þetta fólk, sem mætir þér á köldu vetrarkvöldi, — þessu kalda vetrar- kvöldi, sem heitir jarðlíf, — að tveim eða þrem undanskildum ef til vill. Það þarf nokkuð til, til þess að þú sért ekki tiltölu- lega hlutlaus gagnvart staðreynd dagsins: „Milljónir falla, milljónir kveina af hungri og sorgum, svo heyrist um heim allan.“ En þegar þú heyrir röddina að handan, rödd Nazareans: „Það er ekki vilji föður yðar, sem er á himnum . . .,“ þá fyrst sérðu mannlífið í nýju ljósi, þá fyrst eigirðu eitt einasta brennandi verkefni, þá eignastu eina einustu ósk, eina einustu þrá: Að afmá helstafi tilgangsleysisins af mannlífinu, að fá sálir, fnannssálir, til þess að taka undir með röddinni^á Nazaret: Faðir vor, þú sem ert á himnum.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.