Vikan


Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 16

Vikan - 18.12.1941, Blaðsíða 16
14 VIKAN, nr. 51—52, 1941 |=>Heimilið .. ............... Jóla-matseðill. Aðf angadagsk völd. Hamborgarsúpa. 60 gr. smjör. 60 gr. hveiti. 2 1. soð. 1 blómkálshöfuö. 1 selju- rót. Smjörinu og mjölinu er blandað vel saman í potti og sett yfir hægan hita eða inn í nokkuð heitan ofn. Við og við hrært í þvi. Jafningurinn er tilbúinn, þegar hann er orðinn ljós- brúnn. Soðinu er smátt, og smátt bætt út í og látið sjóða við hægan hita í stundarfjórðung. Grænmetið er soðið og látið sundurskorið út í súpuna, áður en hún er borin fram. Lambshryggur. Hryggurinn er þveginn í heilu lagi og látinn á pönnu eða skúffu, ofur- litlu smjöri makað á hann og salti stráð yfir og skúffan siðan látin í vel heitan bakaraofninn. Eftir % klukkustund, þegar hryggurinn byrj- ar að brúnast, er (4 1. af sjóðandi vatni hellt yfir og smátt og smátt bætt % 1. á, þangað tii kominn er 1 1. Þá er þetta látið sjóða í vel heit- um ofni í 2 klukkustundir. Steikin er borin heil fram á stóru fati með grænmeti, lauk og brúnuðum kartöfl- um. Ofurlitlu bráðnu smjöri er hellt yfir steikina. Sósa: 80 gr. af smjöri er brúnað, 40 gr. af hveiti er hrært út í, þynnt með soðinu af steikinni og pipar og salti bætt í eftir smekk. Hrísgrjónabúðingur. Djúpur diskur af hrisgrjóna- graut. 1 matsk. smjör. 50 gr. sykur. 35 gr. möndlur. 4 plöt- ur matarlím. 2 dl: rjómi. 1 matskeið sitrónusafi. Grauturinn er hrærður með bráðnu smjörinu, sítrónusafanum, sykrinum og þeyttum rjómanum. Hýðið er tek- ið af möndlunum og þær brytjaðar smátt niður og látnar út í. Ein heil AUT, sem þér þurfið í ljúffengustu réttina, fáið þér hjá mandla er höfð og fær sa einhver verðlaun (marcipan-karl), sem hana hlýtur. Að lokum er matarlímið leyst upp og þvi bætt út í. Öllu er nú hrært vel saman og látið í skál og látið stífna. Saftsósa er borin fram með búðingnum. ♦ Jóladagur. Hangikjöt með grænum baunum og kartöflum í jafningi. Eplakaka. 750 gr. flysjuð og sundurskorin epli eru soðin í rúmum hálfum liter af vatni og !4 kg. sykri, þangað til það er orðið að stífum graut. Þá er kartöflumjöli, sem hrært hefir verið út í bolla af köldu vatni, bætt út í. !4 kg. tvíbökur eru muldar og brún- aðar á pönnu í 150—200 gr. af smjöri eða smjörlíki og 85 gr. sykri. Síðan er sett lag af tvíbökunum í glerskál, þá lag af eplamaukinu o. s. frv., þar til komin eru 5 lög (tvíbökur efst og neðst). Sultutau er stungið í kökuna á víð og dreif með teskeið. %1. af rjóma er þeyttur og ofurlítið af van- ilju og sykri bætt í hann. Að lokum er kakan skreytt með rjómanum og ofurlitlu sultutaui. Gott er að búa eplakökuna til 2—3 dögum áður en á að nota hana. Þarf þá aðeins að skreyta hana, þegar á að bera hana fram. Einnig má nota þurrkuð epli í kökuna og samsvarar þá % kg. af þurrkuðum eplum þessari uppskrift, sem nægir handa 6 manns. ♦ Annar jóladagur. Smásteik. 125 gr. salt flesk (má ekki vera of feitt) er skorið í litla ferninga og steikt með 2—3 stórum laukum, þangað til það er orðið ljósbrúnt. 1 kg. nautakjöt er skorið i ferninga (1—iy2 cm. á hverja hlið), velt upp úr hveiti, salti og pipar og steikt á pönnu, þangað til það er orðið ljós- brúnt. Þá er fleskinu og nautakjöt- inu blandað saman, y2 1. soði eða vatni hellt á það og látið sjóða í 2 klukkustundir við hægan hita í lok- uðum potti, og á þá kjötið að vera orðið meyrt. Gætið að, hvort steikin er hæfilega sölt og saltið eftir smekk, ef með þarf. Ofurlítið hveiti er hrært út til að jafna sósuna. Kjötið er boriö fram á stóru fati og masaðar krtöfl- ur látnar utan með á fatinu. Sveskjugrautur. y2 kg. sveskjur. 1 y2 1. vatn. 250 gr. sykur. Tvær kúfaðar matskeiðar kartöflumjöl. Sveskjumar eru þvegnar vel, látn- Fallegur eftirmiðdagskjóll. Nú er mikið í tízku að hafa tvenns konar efni í kjólunum. Þessi kjóll er úr silkiefni (crepe) og flaueli. Erm- arnar eru sniðnar út í eitt, en saum- aðar við flauelisbandið á erminni. Bolurinn er aðskorinn og nær frá handvegi niður á mjaðmir. Hann er einnig úr faueli. Pilsið er rykkt við flauelisstykkið að framan. ar standa næturlangt i vatninu og soðnar, þangað til þær eru orðnai' meyrir. Þá eru þær teknar upp og steinarnir teknir úr þeim, látnar í vatnið aftur ásamt sykrinum og látnar sjóðq. í 5 mínútur. Siðan er kartöflumjölsjafningnum hrært út í og suðan látin koma upp. MILO HEILÐSÓLUBIRCÐIR: ÁRNI JÓMSSON, HArNARSTB.5 REYKJAVÍlC .0000©00000&00»©fr©0000©00©frÓ©0&<>frfrfrfrfrfr-&0000»»0000000»
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.