Vikan - 18.12.1941, Side 31
VTKAN, nr. 51—52, 1941
29
kemur prófessorinn. Eins og prófessorinn
sér, hefi ég flýtt mér hingað.“
„William,“ Jennifer leit frá einum til
annars. „Hefir þú sagt þessum herra, —
ert það þú, sem hefir —.“
„Ekki að reiðast, ungfrú góð! Prófessor-
inn vissi ekki, að hann hefði sagt mér
neitt, fyrr en um seinan. Ég hafði það
upp úr prófessornum.“
„Dr. Canfield,“ sagði Jennifer og
sneri sér að William, „viljið þér ekki út-
skýra það fyrir hr. Garafola, hvers vegna
ég get ekki tekið á móti hans góða boði.“
„Hvers vegna getur þú það ekki?“
Jennifer starði á hann. „William, hver
heldur þú að ég sé? Heldurðu að ég sé
næturklúbbs söngkona?"
„Nei, ég held, að þú sért tepruskjóða?"
sagði William hlægjandi. „Næturklúbbs-
söngkona, það eru víst ljótu manneskj-
umar — þú, litla ítroðningsvél.“
„Yður skjátlast alveg, ungfrú Lamport,"
skaut nú Garafola inn í. „Margir miklir
listamenn hafa byrjað á þennan hátt, og
þér eruð listakona. Sammy Slade sagði við
mig: Garafola, sagði hann, geti ung stúlka
fengið áheyrendur nútímans, sem eru orðn-
ir leiðir á öllum hlutum, til þess að stökkva
upp á stólana af hrifningu, þá er hún lista-
kona----------.“
Jennifer settist á rúmstolckinn sinn,
þegar hún kom upp í herbergið sitt. Var
álit Williams á henni rétt? Hún minntist
þess, hve málrómur hans hafði verið
háðslegur. 1 hans augum var hún lagleg,
en leiðinleg ung stúlka, langt á eftir tím-
anum.
„Enginn af kennurunum frá Branley
mundi nokkurn tíma láta sér detta í hug
að koma inn á næturklúbb," hafði William
sagt hlæjandi. „Skólinn, fréttir það ekki
og þú hefir nægan tíma til að syngja þar.“
*
Það reyndist líka mjög auðvelt. En það
lá við að Jennifer skammaðist sín, þegar
ungfrú Austruther, forstöðukona skólans,
sagði vingjarnlega við hana:
„Þetta er ljómandi, ungfrú Lamport. Það
gleður okkur að kennarar skólans haldi
áfram námi utan skólans. Þér segið að
yður langi til að kynna yður gamlar,
enskar þjóðvísur.“
„Það er nú mest að gamni mínu, en ekki
til þess að halda áfram námi,“ sagði Jenni-
fer í öngum sínum. „Ég veit ekki, hvort
ég ætti —.“
„Jú, við tölum ekki meira um það.
Skólanefndarformaðurinn sagði í vikunni
sem leið: „Góður kennari heldur alltaf
áfram að læra.“ Byrjið þér bara á þjóð-
vísunum. Það getur einhver annar tekið
fyrir yður tíma, ef yður liggur á-----.“
Stóri salurinn í Piccolino-klúbbnum var
ekki opinn nema á kvöldin, og þar æfði
Samúel Slade nýju númerin í dagskrá
kvöldsins á milli kl. 5—6 hvern síðari
hluta dags. Á dagskránni var Jennifer
kölluð Jenny Lamb.
Sammy Slade var elskulegur, ungur
maður, ákaflega músikalskur, gáfaður og
fljótur að skilja. Hann æfði söngvana með
Jennifer og hljómsveit sinni og fékk báða
aðila til að gera úr söngvunum meira en
nokkurn hafði grunað að í þeim lægi.
1 rauninn var þetta skemmtilegt, ákafi
og dugnaður Sammys lét Jennifer næstum
því gleyma því, hvað þetta var allt saman
þýðingarlaust. Stundum var William við
æfingarnar, á eftir fóru þau þá út og borð-
uðu saman.
Stundum voru líka blaðamenn viðstaddir
æfingarnar, eða einhverjir áhrifamenn úr
þeim flokki Lundúnabúa, sem fyrst og
fremst skemmtir sér.
„Þeir segja frá því,“ sagði Garafola
brosandi við Jennifer einu sinni. „Þeir út-
vega þá réttu kvöldgesti. Sjáið nú þennan
unga, renglulega mann þarna. Það er Toby
Winter, flugríkur og kominn af einhverri
tignustu ættinni í Mayfair. Hahn er annars
aldrei vanur að koma á staði eins og þenn-
an. Nú, hvað segið þér svo? Kann ég mitt
hlutverk eða ekki?“
„Það er ótrúlegt, hverju þér áorkið,“
sagði Jennifer með beiskju. Hún vildi ekki
auglýsingar, og fannst allur þessi gaura-
gangur eitthvað brjálæðiskenndur.
Mest leiddist henni þó nautnaseggirnir,
sem komu til þess að glápa á þessa „nýju
hjá Garafola.“ Hún leit á letingjann Toby
Winter og fitjaði upp á nefið.
'^miaiMMMMMIMIMMMMMMMMMMMMIMMMMIMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIt IIHMMIMMMIIIIIIIimilMMMMIIMIIIIMMIMIIIIMIIIIMMMMMMMIIMMMMMIMMMMMIMIMUMMMMMMMMMMMMMMMM |
5
B
I
1 Notið eingöngu hina heimsfrœgu
MORLEY-S;OKKA
e
Dað bezta verður ávalt ódýrast.
= Skrá^ett vörumerki.
I
I
§ '
po/a ydar softfcav þessa áretynsíu ? (zf þét sæud
þtáð úv M O R L E Y- sofcfc í s/násjá sfczjrisí
/jdut fcoersnegna þeír fafca þnoffi og 'ðáru síífí fcefur.
<§érfcner þrááur er jafn, mjúfcur og sérsfafcíega
fe/yjaníegur.
Kaupið hina heimsfrægu MORLEY-sokka, fást í fiestum verzlunum.
'"m"n.........................................ÚUUUHiH...................................
nnnmmwiWmrfnnwii ■lí.mnaiwlmn™'................„iii,i.,..„„.„„.„»„i